Fréttatíminn - 31.03.2017, Blaðsíða 36

Fréttatíminn - 31.03.2017, Blaðsíða 36
36 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 31. MARS 2017 Bryndís Silja Pálmadóttir bryndis@frettatiminn.is Sjónvarpsþættirnir eru hugarsmíði þeirra Dan Harmon og Justin Roi-land. Þættirnir hafa gert garðinn frægan víðsvegar um heim og eiga sér dyggan hóp aðdáenda hér á landi sem sam- einast í hópnum Ríkharður og Marteinn – íslenskir Rick og Morty aðdáendur. „Það virðist vera komið í tísku að safna saman nördum,“ segir Geir kátur, sem er líkt og Rakel í mörgum álíka facebook hópum. Inni í Ríkharðs og Marteins-hópn- um eru margskonar málefni milli himins og jarðar tengd þáttun- um rædd og aðdáendur bera saman bækur sínar, deila hug- leiðingum um þættina, fyndnum efnum og styðja hvern annan í örvæntingunni eftir þriðju serí- unni. Höfundar þáttanna hafa svo sannarlega látið áhorfendur bíða eftir. Þau Stefán, Rakel Ósk og Geir eru stjórnendur hópsins en Stefán stofnaði hann fyrir nokkru síðan. Í upphafi snerust umræður hóps- ins að miklu leyti að skondnum íslensku þýðingum, líkt og sjá má á nafni hópsins en nú hefur biðin eftir nýrri þáttaröð knúið meðlimi enn frekar til umræðna og sam- stöðu. „Nú erum við búin að bíða í tvö ár eftir meiru, þeir láta mann alveg hanga og bíða en maður get- ur alveg horft endalaust á þetta,“ segir Rakel sem er sjálf búin að horfa margoft á flesta þættina. Hún gerði líka könnun inni í hópnum um áhorf á seríunum. Þá kom í ljós að ákveðinn hópur aðdáenda hafði séð þættina oft- ar en fjörutíu sinnum. Stofnend- urnir stóðu líka fyrir svokölluðu Pup Quiz, annað árið í röð, þar sem eldheitir aðdáendur mættu á skemmtistaðinn Húrra til þess að svara erfiðum spurningum um þættina. „Í fyrra var alveg pakkað, við þurftum að sækja aukaborð og eitthvað. Núna var náttúru- lega alveg fullt hús og ég átti fullt af vinum sem fóru bara heim því þeir fengu ekki sæti. Ég er að pæla í að finna stærri stað fyrir þetta næst,“ segir Rakel. „Í gegnum fífla- ganginn ná þættirnir samt að vera hjartnæmir,“ segir Geir en þau Rakel eru sammála um að þættirn- ir taki á ótrúlega siðferðislegum pælingum sem vekji áhorfanda til umhugsunar. Þess vegna séu þeir einmitt svona áhugaverðir og vinsælir. Siðferðislegar spurningar í litríkum búningi Þeir Rick og barnabarn hans, Morty, ferðast til ótal heima og pláneta í þáttunum. Mini Verse Rick er snjall uppfinningamaður. Í þættinum The Ricks Must be Cr- azy ferðast þeir Rick og Morty inn í pínulítinn heim sem Rick hefur skapað inni í geimflaug sinni til þess að hlaða batteríin. Gazorpazorp Hér feðrar Morty hinn ungi lítið skrímsli sem á uppruna sinn að rekja til plánetunnar Gazorp- azorp. Rick og systir Morty, Sum- mer, ferðast því þangað til þess að leysa málin. Eins og í flestum þáttunum er hér að finna furðu- legar, siðferðislegar pælingar höf- undanna. Allskonar Rick Í veröld þar sem eru til ótal vídd- ir og heimar eru að sjálfsögðu til ótal útgáfu af þér sjálfum. Á Rick plánetunni er að finna ótal útgáfur af Rick sjálfum, alveg eins og öll- um öðrum. Í tæplega sjö hundruð manna hópi á facebook ræða aðdáendur þáttanna Rick og Morty ýmis hjartans málefni. Stjórnendur hópsins eru þau Stefán, Rakel og Geir sem eru öll þrjú eldheitir aðdáendur þáttanna. Þau Geir og Rakel segja vinsældir þáttanna mega rekja til frumleika höfundanna og siðferðislegra spurninga sem þættirnir kasta fram í litríkum búningi. Geir og Rakel Ósk eru eldheitir aðdáendur þáttanna Rick and Morty, enda hafa þau séð þættina margoft. Mynd | Heiða Vinabekkir á skólalóðum hvetja börn til að gefa færi á sér í leik og bjóða öðrum að vera með. Á skólalóðum nokkurra grunn- skóla á höfuðborgarsvæðinu hefur verið komið upp svokölluðum vinabekkjum þar sem börn geta sest ef þau vantar einhvern til að leika eða tala við. Eru þeir meðal annars staðsettir við Melaskóla og Ingunnarskóla. Bekkjunum er komið upp að frumkvæði skóla eða foreldrafélaga og hafa verið börnunum hvatning til að gefa færi á sér í leik, eða bjóðum öðr- um að vera með. Bekkirnir eru málaðir í glaðleg- um litum og ímynd þeirra gerð jákvæð. Það má nefnilega alls ekki vera þannig að það sé neikvætt að setjast á vinabekkinn og að börn- in vilji ekki láta sjá sig þar. Með því að setjast á bekkinn er barn ekki endilega að segja að það vilji enginn leika eða að það sé skilið út undan, heldur er um að ræða lausnamiðaða hugmynd til að gefa færi á sér. Stundum leita líka fleiri en einn á bekkinn í sama tilgangi og þá geta þeir fundið félaga í hver öðrum. | slr H V ÍT A H Ú S IÐ / A ct av is 7 1 3 0 4 0 Íbúfen® Íbúprófen 20 mg/ml mixtúra Dreifa – Með appelsínu og vanillubragði hollur kostur á 5 mín. Plokkfiskur Sestu hérna hjá mér Bekkirnir. Í apríl mánuði renna 100 krónur af hverri seldri dós til stuðnings Bláa naglans Curcumin „Gullkryddið“ er margfalt áhrifameira en Túrmerik! HEFUR ÞÚ PRÓFAÐ CURCUMIN? Gullkryddið sem hefur reynst þúsundum Íslendinga vel. Bætiefnin innihalda hvorki rotvarnarefni né fylliefni og eru án allra aukaefna. „Ég mæli tvímæla- laust með vörunum frá Natural Health Labs.“ Helga Lind – Pilateskennari og einkaþjálfari Fæst í öllum helstu apótekum, heilsuverslunum og heilsuhillum stórverslana. www.balsam.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Fréttatíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.