Fréttatíminn - 31.03.2017, Page 41
FRÉTTATÍMINN
facebook.com/noisirius
JAFNVEL BETRA
EN lasagna!
N Ó I SÍ RÍ U
S
med súkkuladiperlum
© Paws. All Rights Reserved.
Í bíó með
börnin
Þessa dagana stendur
yfir svokölluð Barna kvik
myndahátíð í Reykja vík og
er hún haldin hátíðleg í kvik
myndahúsinu Bíó Paradís við
Hverfis götu. Þar eru sýndar
fjölmargar skemmtilegar kvik
myndir fyrir börn, sumar hverj
ar jafnvel frítt. Fréttatíminn tók
saman nokkrar kvikmyndir
sem áhugavert væri að fara að
sjá um helgina. | bsp
Líf mitt sem Kúrbítur
Þessi teiknimynd fjallar um ungan
franskan pilt sem er kallaður
Kúrbítur. Kúrbítur er sendur á
munaðarleysingjahæli og er dvölin
honum erfið í fyrstu en þegar líður
á fer hann að bindast öðrum börn-
um vináttuböndum. Huglúf og
hjartnæm mynd sem tilnefnd er til
Óskarsverðlauna.
Hentar: 7 ára og eldri.
Regína
Frábær íslensk kvikmynd sem ætti
heldur betur að framkalla nostalg-
íu hjá stórum hópi. Regína er ung
stelpa sem áttar sig einn daginn á
kraftinum sem hún hefur í söng
sínum. Regína og Pétur vinur
hennar áforma að koma foreldrum
sínum saman.
Hentar: Öllum.
Snipp, Snapp og Snut
og Hvad ske?
Þeir félagar Snipp, Snapp og Snut
búa í litríkum heimi þar sem allt
er fullt af góðgæti og blöðrum. S-in
þrjú fljúga um til þess að uppgötva
alla króka og kima. Fallegir litir í
sænskri teiknimynd um vináttuna.
Hentar: Þeim allra yngstu (3+).
Stelpan, mamman og djöflarnir
Kvikmyndin fjallar um Siri sem
býr með dóttur sinni í lítilli íbúð í
fjölbýli. Djöflarnir ráða ríkjum í lífi
móðurinnar en dóttirin upplifir
veröldina á annan hátt. Dóttirin Ti
elskar móður sína skilyrðislaust og
sér ekki djöflana sem móðirin sér
heldur notar sitt eigið ímyndunar-
afl til að skreyta veröldina. Kvik-
myndin er frumsýnd frítt í sam-
starfi við Geðhjálp og er á sænsku
með enskum texta.
Hentar: Eldri börnum og fullorðnum.