Fréttatíminn - 31.03.2017, Page 26
26 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 31. MARS 2017
Halla Harðardóttir
halla@frettatíminn.is
Þegar ég var stödd hér á kvennadeildinni fyr-ir mörgum árum síðan, ólétt að fyrsta barninu mínu, talaði ég enga ís-
lensku og það var mjög erfitt fyr-
ir starfsfólkið að giska á hvaðan ég
væri. Ég lít út fyrir að vera einhvers-
staðar frá Asíu en svo tala ég eins og
Bandaríkjamaður því ég er þaðan,“
segir Edythe Mangindin sem er fædd
og uppalin í San Fransisco en for-
eldar hennar eru frá Filippseyjum.
Edyth kom hingað í fyrsta sinn með
íslenskum kærasta frá San Frans-
isco fyrir nítján árum. „Ég heillað-
ist algjörlega af þessu fallega landi
og flutti hingað tveimur mánuðum
síðar og varð ólétt um leið!,“ seg-
ir hún og hlær. „Skyndilega var ég
óléttur innflytjandi sem skildi ekk-
ert í tungumálinu og þekkti engan.
Það var dálítið erfitt,“ viðurkennir
Edythe.
„Ég fann strax að ég yrði að læra
tungumálið en það var erfitt því ég
þekkti engan nema manninn minn
og við töluðum alltaf saman á ensku.
Þegar ég var svo farin að ná íslensk-
unni átti ég barnið mitt og þurfti
aftur að byrja að tala ensku því það
er mælt með því að þú talir móður-
málið við barnið fyrstu árin. Ég skal
viðurkenna að það var mjög krefj-
andi að aðlagast móðurhlutverkinu
og ég fékk mikla heimþrá á þessum
tíma,“ segir Edythe sem komst á
þessum tíma í samband við Samtök
kvenna af erlendum uppruna sem
hún segir hafa bjargað sér.
„Ég man alltaf þegar ég var í
skoðun hérna, nýflutt og óörugg
með mig og sagði við ljósmóðurina
að þetta hlyti að vera besta starf í
heimi. Og hún sagði mér að drífa mig
bara í að læra tungumálið og fara í
nám, ég gæti það alveg ef ég vildi. Og
ég gerði það. Auðvitað hélt ég að ég
að ég kæmist aldrei inn, en sem bet-
ur fer gekk allt upp! Það er allt hægt
ef maður vill það,“ segir Edythe sem
byrjaði í hjúkrun þegar eldri strák-
urinn hennar fór á leikskóla. Hún
átti sitt annað barn þegar hún var á
öðru ári í náminu, útskrifaðist vorið
2015 og vann á hjartadeild Landspít-
alans þar til hún byrjaði svo í fram-
haldsnámi í ljósmóðurfræði síðast-
liðið haust. „Þetta hefur verið mjög
krefjandi því ég var að læra íslensku
á sama tíma en þetta bjargaði mér
samt alveg. Ég vissi að mig langaði
til að gera eitthvað við líf mitt hér,
ég þurfti að taka ákvörðun um það
hvort ég myndi fara að vinna starf
sem krefðist ekki íslenskukunnáttu
og sem mér myndi líklegast leiðast
í, eða láta drauminn minn rætast og
gera eitthvað gagn í samfélaginu.“
Auk þess að verða ljósmóðir þá
dreymir Edythe um að aðstoða kon-
ur í hennar stöðu. „Ég þurfti mik-
ið á heilbrigðisþjónustu að halda
allt fyrsta árið mitt og það var svo
erfitt því ég talaði ekki tungumálið.
Starfsfólkið gerði oft ráð fyrir því að
ég talaði hvorki íslensku né ensku
og ávarpaði stundum manninn
minn án þess að líta á mig, og það
er mjög algengt. Það er ekkert mál
að breyta þessu og það vil ég gera
því innflytjendur eru sístækkandi
hópur á Íslandi. Um daginn var ég að
skoða nöfn mæðranna sem áttu að
eiga þann daginn og ég tók eftir því
að öll nöfnin voru erlend. Þetta er
orðið svo fjölbreytt samfélag og mig
langar að tryggja að þessar konur fái
allan þann stuðning sem þær þurfa.
Ég var einu sinni þessi kona sem gat
ekki talað og vissi ekkert hvað ég
ætti að gera í þessu landi. Það þarf
að valdefla þessar konur því þannig
verður samfélagið betra. Það geta
allir tekið þátt í samfélaginu og það
hafa allir sitt að gefa.“
INNFLYTJANDINN
Edythe Mangindin
„Starfsfólkið gerði
oft ráð fyrir því að ég
talaði hvorki íslensku
né ensku og ávarpaði
stundum manninn minn
án þess að líta á mig, og
það er mjög algengt.“
Það er allt hægt
ef maður vill það
Það styttist í að draumur Edythe Mangindin um að verða
ljósmóðir rætist en leiðin þangað var ekki auðveld.
Draumur Edythe Mangindin um að verða ljósmóðir er að rætast. Hún vill tryggja
að konur af erlendum uppruna fái allan þann stuðning sem þær þurfa. Mynd | Heiða
FULL BÚÐ AF NÝJUM VÖRUM Á FRÁBÆRU VERÐI
Fákafeni 9, 108 RVK | Sími 581-1552 | www.curvy.is
STÆRÐIR 14-32 EÐA 42-58