Fréttatíminn - 31.03.2017, Side 12
Þessi vika hefur ver-ið sorgleg í meira lagi. Hún byrjaði á yfirgangi og hótunum eigenda HB
Granda gagnvart starfsfólki sínu
og samfélaginu á Akranesi. Þessir
eigendur, tvær fjölskyldur fyrst
og fremst, en einnig nokkrir af
stærstu lífeyrissjóðum landsins,
hafa haft aðgang að sameigin-
legum auðlindum þjóðarinnar
gegn fáránlega lágu endurgjaldi
árum og áratugum saman. Þeir
hafa verið í forystu þess auðfólks
sem hefur beitt stjórnmálaflokk-
um sem þeir styrkja til að lækka á
sér álögur og koma sér undan að
greiða eðlilegan skatt til sameigin-
legra sjóða, sem ætlað er að standa
undir velferðarkerfi almennings.
Fyrst knúðu þeir á um lækkun
á tekjuskatti fyrirtækja svo þeir
gætu dregið meira fé til sín upp
úr rekstrinum. Síðan knúðu þeir á
um lækkun fjármagnstekjuskatts
svo þeir þyrftu ekki að borga
tekjuskatt til jafns við launafólk.
Síðan knúðu þeir á um lækkun
veiðigjalda, eftir að þau voru loks
sett á, svo þeir fengu stærri hluta
af arðinum af auðlindinni.
Eigendur HB Granda hafa verið í
forystu þess auðfólks sem sveigt
hefur öll grunnkerfi samfélagsins
að sínum þörfum. Þeir þurfa ekki
að á velferðarkerfinu að halda,
þeim er sama þótt þeir þurfi að
borga fyrir heilbrigðisþjónustu,
þeir geta menntað börnin sín án
aðstoðar lánasjóðs námsmanna
og styrkt þau til kaupa á fasteign-
um svo þau séu ekki háð leigu- eða
vaxtabótum. Eigendur HB Granda
svífa ásamt fáeinum öðrum Ís-
lendingum hátt yfir samfélagi
annars fólks. Hagsmunir þeirra
fara í engu saman með hagsmun-
um venjulegs launafólks.
Eigendur HB Granda hafa styrkt
stjórnmálaflokka til að lækka á sig
álögur og síðan til þess að brjóta
niður velferðarkerfi venjulegs
fólks. Þeir hafa staðið gegn eðli-
legum launakröfum starfsfólksins
og hafa komist upp með að borga
fiskverkafólki sínu skammarlega
lág laun á sama tíma og þeir hafa
dregið upp úr fyrirtækinu marga
milljarða ár hvert, margfalda þá
upphæð sem þyrfti til þess að
tryggja öllum starfsmönnum fyrir-
tækisins mannsæmandi kjör.
Á meðan eigendur HB Granda
hafa brotið niður velferðarkerfið
og launakjör verkafólks hafa þeir
tekið undir kröfur annars auð-
fólks og eigenda fyrirtækja um að
samfélagið og sameiginlegir sjóðir
eigi að þjóna sér betur. Lækka enn
frekar skatta og álögur. Aðlaga
gengisskráningu að sínum þörf-
um. Byggja upp innviði svo þeir
geti auðgast enn frekar á starfsemi
fyrirtækisins.
Þar sem almenningur og sam-
tök hans hafa að mestu lagt nið-
ur vopn í baráttu fyrir bættum
kjörum og ríkari réttindum hafa
eigendur HB Granda og aðrir ofsa-
ríkir Íslendingar farið sínu fram
á undanförnum árum. Stjórnvöld
standa og sitja samkvæmt þeirra
óskum.
Og eftir því sem samfélagið er
sveigt meir að þeirra hagsmunum
því útblásnari verða þeir af frekju
og yfirgangi. Þeir eru eins og börn,
stjórnlaus af frekju. Gallinn er
að þessi börn fara með öll völd á
heimilinu og hóta að reka annað
heimilisfólk að heiman ef þau fá
ekki sleikjó og kandíflos í kvöld-
matinn.
Nýlegt Hrun dró fram að taum-
laus kapítalismi tortímir ekki
aðeins fjárhagsgrunni fjölskyldna
og þeirra sem verst eru staddir,
brýtur ekki aðeins niður réttindi
fólks og lífsviðurværi og rífur ekki
aðeins í sundur samfélagið; heldur
eyðileggur sjálfan kapítalismann.
Þegar kapítalistarnir fengu öllu að
ráða átu þeir fyrirtækin að innan
og eyddu þeim.
Það er því ekki aðeins af ást á fólki
sem við eigum að taka völdin af
hinum ofsaríku, áður en þeir kné-
setja allt venjulegt fólk og gera að
þrælum sínum, heldur getum við
gert það af samlíðan með kap-
ítalistunum sjálfum. Við getum
lagt á þá eðlilega skatta og hafnað
kröfum þeirra til að framlengja
líf kapítalismans. Að öðrum kosti
mun hann hrynja.
En sú mynd sem gefin er af hin-
um ofsaríku og ofsafreku í rann-
sóknarskýrslu um einkavæðingu
Búnaðarbankans er svo skelfileg
að kannski er það ómannlegt að
ætlast til að venjulegt fólk finni
til samkenndar með þessu fólki.
Þetta eru engisprettur sem gleypa
í sig uppskeruna á akrinum en
krefjast þess samt að við tignum
það fyrir að vera forsenda þess að
nokkur vaxi þar.
Gunnar Smári
ENGISPRETTUR-
NAR STJÓRNA
AKRINUM
lóaboratoríum lóa hjálmtýsdóttir
12 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 31. MARS 2017
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Setjum undir á staðnum
Dráttarbeisli
undir flestar tegundir bíla
VÍKURVAGNAR EHF. STYRKUR, ÞJÓNUSTA OG ÁREIÐANLEIKI
STÆRÐ FRÁ 360-550 L
FARANGURSBOX
Víkurvagnar ehf. - Hyrjarhöfði 8. - 110 Reykjavík -
Sími 577-1090 - www.vikurvagnar.is - sala@vikurvagnar.is
VÍKURVAGNAR EHF. STYRKUR, ÞJÓNUSTA OG ÁREIÐANLEIKI
HJÓLAFESTINGAR
Víkurvagnar ehf. - Hyrjarhöfði 8. - 110 Reykjavík -
Sími 577-1090 - www.vikurvagnar.is - sala@vikurvagnar.is
1-3 HJÓL Á FESTINGU
VÍKURVAGNAR EHF.
Víkurvagnar ehf. | Hyrjarhöfða 8 | 110 Reykjavík
Sími 577 1090 | vikurvagnar.is | sala@vikurvagnar.is
Einnig mikið úrval varahluta
í Ifor Williams og aðrar gerðir af kerrum,
ásamt úrvals viðgerðarþjónustu.
Ifor Williams vélavagn
3500 kg. heildarburður, pallur 3,03 x 1,84 m
Verð 685.484 kr. +/vsk