Fréttatíminn - 31.03.2017, Blaðsíða 40
Hlaupið er í laginu eins og kaka en
er í raun glært hlaup úr svoköll-
uðu gelatíni eða matarlími, fyllt
með t.d. rækjum, fiski eða öðru
sem fallegt er á að líta. Matarlímið
er hinsvegar nokkuð bragðlaust
og hægt er að bæta hvítvíni eða
rósavíni í gelatínið til þess að
breyta lit og bragði.
Anna Kristjánsdóttir lærði að
gera fiskihlaupið þegar hún var
ung kona í Búðardal. Hún hefur
gert hlaupið ótal sinnum í gegn-
um tíðina í margskonar mynd og
gerir það stundum enn á hátíðis-
dögum. Þá gerir hún helst sína
eigin uppskrift sem inniheld-
ur bæði rækjur og egg. „Þetta
væri voða smart í forrétt,
ef öllum þætti þetta ekki
svona vont,“ segir Anna og
hlær enda hefur hlaupið
fallið úr náð hjá mörgum
í seinni tíð. „Fiskikak-
an var til dæmis notuð
í forrétt. Ég gerði hana
alltaf með því að hræra
rósavíni eða hvítvíni út í og það
var ofsalega flott.“
Nú gerir hún útgáfu af hlaup-
inu sem hún kallar rækjuhlaup,
þó hún þekki fáa sem gera kökuna
enn. „Ég byrja á því að kaupa lít-
inn pakka af rækjum og set skraut
í botninn, helst eitthvað rautt eins
og papriku eða tómata. Svo set ég
gúrku og harðsoðin egg í botninn
og helli svo matarlíminu yfir.“
Fiskihlaupið á sér þó enn
dyggan hóp aðdáenda, enda
voru vinsældir hlaupsins ekki að
ástæðulausu. Fréttatíminn mælir
því með að hver dæmi fyrir sig og
prófi sig áfram með hlaupið. | bsp
40 | FRÉTTATÍMINN | FÖSTUDAGUR 31. MARS 2017
P Á S K A E G G
með piparfylltum lakkrís
Fiskihlaupið Umdeilt
góðgæti úr fortíðinni
Fiskihlaupið, öðru nafni fiskihringurinn, var
sérstaklega vinsælt góðgæti á 8. áratug síðustu
aldar. Hlaupið þótti bæði fallegt á að líta og
gómsætt enda prýddi það köld veisluborð um
landa allt.
Rækjuhlaup Önnu er dæmi um kaldan
rétt sem var sérstaklega vinsæll á 8.
áratug síðustu aldar. Mynd | Heiða
Rækjuhlaup Önnu
Hráefni
½ kg rækjur
5 dl vatn
2 harðsoðin egg
Agúrkusneiðar
Tómatsneiðar
Fiskkrydd eftir smekk
Sítrónupipar eða safi úr hálfri
sítrónu
5 blöð matarlím (Gelatin)
• Notið skál eða hringform. Skerið
eggin í eggjaskera og raðið í botninn
ásamt agúrku- og tómatsneiðum.
• Setjið rækjurnar yfir, bræðið matar-
límið, blandið því út í vatnið ásamt
kryddi og hellið yfir rækjurnar.
• Rétturinn er tvo til þrjá tíma að stífna.
• Hvolfið honum á bakka og skreytið
með hverskonar grænmeti.
Ath: Í staðinn fyrir matarlím má nota 1
pakka Toro lys buljong-gele aspik-hlaup
(gelatinduft).
Þegar ástin kulnar: Góð
ráð við sambandsslitum
Bryndís Silja Pálmadóttir
bryndis@frettatiminn.is
Sólrún Lilja Ragnarsdóttir
solrunlilja@frettatiminn.is
Flest höfum við gengið í gegnum sambandsslit í lífinu og jafnvel upplif-að mikla ástarsorg. Að ná sér upp úr slíkri lægð
getur tekið langan tíma en þá er
mikilvægt að dreifa huganum og
reyna að gera eitthvað sem bætir
og kætir og er gott fyrir sálina.
Fréttatíminn leitaði til nokkurra
einstaklinga eftir skotheldum
ráðum í ástarsorg og ekki stóð á
svörum. Vert að taka fram að þess-
ir einstaklingar eru ekki endilega
að ganga í gegnum ástarsorg eða
sambandsslit á þessari stundu,
en flestir hafa þeir einhvern tíma
upplifað slíka sorg og jafnvel
valdið henni.
Axel Flóvent
Tónlistarmaður
„Eins aug-
ljóst og það
hljómar þá
eru sam-
bandsslit
ekkert alltaf
það auðveld
og sérstak-
lega þegar
maður er
meðvirkur. Þá er það besta sem
maður getur gert að vera hrein-
skilinn. Það hljómar kannski eins
og góð hugmynd að lofa gulli og
grænum skógum við manneskju
sem þú ert að hafna, eða lofa ein-
hverju við manneskju sem er að
hafna þér. Það er mjög slæm hug-
mynd, þó það geti gert mómentið
aðeins bærilegra eins og það
stendur.
Eftir sambandsslitin er best að
finna sér beina braut til að móta,
þó svo að það sé best að byrja á
því að grenja yfir Friends og tak-
ast á við söknuðinn. Að átta sig
á því að það er góður hlutur að
syrgja aðeins á þessum tímamót-
um, allavega til að byrja með, þú
varst í sambandinu af ástæðu,
þú fannst einhverja tengingu við
þessa manneskju sem er ekki leng-
ur þín/þinn, og þó svo að það er
vissulega það rétta þá þýðir það
alls ekki að þú megir ekki sakna.
Eftir það er alltaf gott að búa sér til
markmið til að styrkja sjálfstæða
sjálfið, og fylla upp tímarammann
eftir gott sjálfsvorkunnartímabil.“
Díana Sjöfn
Meistaranemi í menningarfræði og skáld
„Fyrsta lagi
búa til möntru
sem minnir
á að lífið er
of stutt til að
velta sér upp
úr hlutum sem
af ástæðu eiga
ekki leng-
ur hlutdeild
í yndislegri
reynslu af lífi.
Síðan skal semja níðvísu, klippa
hárið, æfa upp kúlurass, eyða um
efni fram, drekka góð vín og fara
út að dansa – muna að eyða út
messenger um helgar. Opna huga
fyrir nýjum ástum sem gætu end-
að illa. Endurtaka.“
María Lilja Þrastardóttir
Fjölmiðlakona og annar höfundur bókar-
innar Ástarsögur íslenskra kvenna.
„Mér hefur
gefist best að
hlusta á vini
mína. Tala
ógeðslega
mikið við fólk
sem elskar mig
og einangra
mig ekki. Fara
í páverball-
öðukarókí,
borða góðan mat og detta svo
rækilega í það í góðum hópi þegar
líðanin er aðeins upp á við. Svo er
sund og gufa líka „golden“ til að
hreinsa hugann. Svo auðvitað fara
í sleik. Það er líka næs.“
Þórhallur Auður Helgason
Söngnemi
„Mín reynsla
hefur verið sú
að það sé gott
að finna sér ein-
hverja plötu eða
tónskáld sem
verður „break-
-up“ tónlistin
þín. Þú þarft að
sætta þig við
að hún muni
alltaf vera tengd
því. Svona eins og bláu tuskurnar
heima eru bara notaðar á klósett.
Síðan þarf að forðast eins og heit-
an eldinn alla tónlist sem mað-
ur tengir við sambandið í a.m.k.
nokkra mánuði, annars týnist
maður bara í nostalgíu og maður
getur legið í henni endalaust og
liðið sæmilega með það í einhverri
meðvirkni gagnvart sjálfri sér.
Ekki gera það.“
Dansa, gráta yfir Friends, drekka góð vín, fara í bað, hlusta á tónlist, detta
í sleik. Þetta eru nokkur af þeim ráðum sem ráðgjafar Fréttatímans gáfu
sem skotheld í sambandsslitum.
Ragnheiður Haralds og Eiríksdótt-
ir, hjúkrunarfræðingur og blaða-
maður, er hokin af reynslu þegar
kemur að samböndum og sam-
bandsslitum og er sérfræðingur á
þessu sviði. Hún nefnir fimm lykil-
atriði sem gott er að hafa í huga.
1„Ef sambandsslitin eru brjálæð-islegur skellur og áfallið mikið
gætir þú þurft að hugsa bara um
grunnþarfir þínar til að byrja með.
Sofa, borða, hvílast. Hugsa vel um
þig. Fara í notaleg böð – gera hluti
sem gleðja þig. Hafðu einhvern
með í ráðum – góða vinkonu eða
vin, það er ómetanlegt.“
2 „Ef ákvörðunin er ekki þín er ekkert sem þú getur gert. Það
er sama hversu mikið þú veltir þér
upp úr ástæðunum sem kunna
að liggja að baki – því miður getur
þú ekki stýrt því sem aðrir gera
eða hugsa. Það eina sem þú getur
haft áhrif á eru þínar hugsanir og
viðbrögð.
3 Mundu að höfnun hefur ekkert með þig að gera. Hún er alfar-
ið á ábyrgð þess sem hafnar. Það
kjósa ekki allir Sjálfstæðisflokkinn
og það borða ekki allir ananas á
pítsu og það hafa ekki allir smekk
fyrir þig.“
4„Ekki detta í þráhyggjuna. Það kann að vera freistandi að
ræða sambandsslitin daginn út
og inn við vini/vinkonur sem vilja
hlusta og spá og lesa í rúnir með
þér. En mundu þá að það sem þú
notar athygli þína í tekur meira
og meira pláss í lífi þínu. Ef þú
veltir þér upp úr kvölinni verður
hún langvinnari og stærri. Gefðu
þér hálftíma á dag til að ræða sam-
bandsslitin út og inn – tímasettan
hálftíma – utan hans er bannað að
ræða þau.“
5„Mundu að það kemur annar strætó þó að þessi sé farinn.
Jákvæð athygli frá fólki er heilandi
– reyndu að hitta, spjalla við, og
umgangast einhverja sem kunna
að meta kosti þína og finnst þú
sexí. Daður er heilandi í þessum
aðstæðum.“
Páskaegg fyrir sælkera
Súkkulaðiunnendur, sem hafa
gaman af því að prófa nýjar gerð-
ir af páskaeggjum, ættu ekki að
láta þetta massífa súkkulaðiegg
frá SOLID Chockola-
te Company fram
hjá sér fara. Um er
að ræða páskaegg
sem er búið til úr
42 gæða belgískum
súkkulaðibitum og
er 700 grömm að
þyngd, takk fyrir.
Þetta er egg fyrir þá
sem fá sér páskaegg
út af súkkulaðinu
en ekki sælgætinu
sem er inn í. Enda
það oft ekki upp á marga fiska.
Framleiddar eru fjórar tegundir
af páskaegginu, úr ljósu, dökku
og hvítu súkkulaði. Og með kara-
mellubragði.
Hægt er að kaupa eggið á
Amazon fyrir litlar 3500 krón-
ur. Það er enn langt í
páskana og því næg-
ur tími til stefnu.
Láttu það eftir
þér að gæða þér
á góðu súkkulaði
um páskana.