Fréttatíminn - 31.03.2017, Síða 50

Fréttatíminn - 31.03.2017, Síða 50
www.likamioglifsstill.is Ég fæ mest út úr því að hlaupa utan vega og í náttúrunni. Ef ég hefði allan tíma í heimi væri ég hreinlega alltaf í Heiðmörk eða uppi á fjalli og mér finnst auðvitað langskemmtileg- ast að keppa í utanvegahlaupum. Á sumrin fær þessi náttúruþörf að njóta sín en yfir vetrarmánuðina held ég mig innan bæjarmarkanna og tek jafnvel gæðaæfingar inni á hlaupabrettinu,“ segir Katrín Lilja Sigurðardóttir, efnafræðingur með meiru. Katrín Lilja er mörgum kunn sem Sprengju-Kata en hún hef- ur farið fyrir Sprengjugengi HÍ undanfarin ár en í því eru helstu sérfræðingar landsins í efnafræði- brellum. Þá hefur hún komið fram með Ævari vísindamanni undan- farin ár. Meðfram önnum í starfi og barnauppeldi er Katrín þó dug- mikill hlaupari. Fór þetta á þrjóskunni „Hlaupasagan mín er týpísk dæmi- saga um að æfingin skapi meist- arann. Árið 2007, stuttu eftir að ég eignaðist barn númer tvö, steig ég mín fyrstu skref í Fossvogin- um í þeim eina tilgangi að fara út að hlaupa. Þá hef ég varla hlaup- ið lengra en tvo kílómetra og mér fannst það sko ekki auðvelt. Þetta sumar skokkaði ég nokkrum sinn- um en ekki lengra en það að ég komst í raun aldrei út úr Fossvog- inum en ég bjó einmitt við dalinn á þeim tíma. Í lok sumarsins hljóp ég svo í fyrsta sinn í Reykjavíkur- maraþoni og hafði þá aldrei farið lengra en 4 km í einum hlaupa- túr. Mér tókst með þrjóskunni að komast þessa 10 kílómetra á 67:44 og lá veik af áreynslu heila viku eftir hlaupið. Reyndar hefur það kannski spilað inn í árangurinn og upplifunina að ég var orðin ólétt en vissi ekki af því þá,“ segir hún. Árið 2012 urðu svo kaflaskipti á hlaupaferli hennar. „Ég tók þátt í 5 km hlaupi í Öskjuhlíð sem hét „Á meðan fæturnir bera mig“ og af- rekaði að vera fyrsta konan í mark. Ég sem hafði aldrei nokkurn tím- ann unnið til verðlauna í íþróttum! Í kjölfarið byrjaði ég í hlaupa- hópi og það var þá sem hlaupalíf- ið hófst fyrir alvöru. Reglulegar og fjölbreyttar æfingar komu mér fljótt og örugglega í frábært hlaupaform. Tímarnir mínir í 10 km í Reykjavíkurmaraþoni hljóta að vera merki um hversu dugleg ég var að æfa á þessum tíma en þeir voru 55:53, 46:03 og 41:55 árin 2011-13.“ Byrjuð í þríþraut Hversu oft hleypurðu? „Ég er agalega mikil óreglumann- eskja þegar kemur að æfingum en ég reyni að hreyfa mig nánast daglega og hugsa að ég hlaupi að meðaltali þrisvar sinnum í viku. Hlaupaæfingarnar eru fjölbreyttar; tempó, brekkur, sprettir, utan- vega, langt og rólegt en núna er ég mest að hlaupa með Laugaskokki og hlaupahópi Háskóla Íslands, Richa 116. Það er frábært prógram í báðum þessum hópum þannig að ef maður mætir reglulega á æfingar fær maður allan pakk- ann. Svo finnst mér skipta miklu máli að mæta í almenningshlaup til að ýta manni örlítið út fyr- ir þægindarammann. Á veturna halda Powerade hlaupin manni algjörlega við efnið og stemningin í heita pottinum í Árbæjarlauginni eftir hlaupin er frábær! Fyrir utan hlaupin gríp ég í alls konar styrkta- ræfingar en svo var ég líka að láta gamlan draum rætast og skráði mig í þríþrautarfélag um daginn. Nú er á dagskrá að læra sundtökin almennilega, læra að skipta um gír á hjólinu og þá er maður tilbúinn í næstu þríþrautarkeppni!“ Lendir á trúnó á hlaupum Hvað færðu út úr hlaupunum? „Vá, hvað fær maður ekki út úr hlaupunum? Þetta er einfald- lega besta fíknin en það þýðir að maður fær líka fráhvarfseinkenni eftir tvo til þrjá hlaupalausa daga. Ég upplifi mikla frelsistilfinningu að hlaupa úti, finn hvernig ég fæ útrás. Ef ég hleyp ein næ ég ein- hvern veginn að tæma hugann, ég hugsa ekki mikið heldur fer í hug- leiðsluham og kem inn alveg fersk og endurnærð.“ Fær maður meira út úr því að hlaupa með öðrum í hópi eða er bara verið að slúðra? „Ég hef upplifað að þegar ég hleyp löng hlaup með hlaupafélögum þá virkar endorfínið ekki ósvipað á mann og áfengi. Ég hef margoft lent á „trúnó“ á hlaupum. Fólk læt- ur stundum bara allt flakka en það er auðvitað óskrifuð regla að það fer ekkert lengra.“ 2 FÖSTUDAGUR 31. MARS 2017HLAUPOGCROSSFIT Útgefandi: Morgundagur ehf. Ábyrgðarmaður: Valdimar Birgisson. Köllunarklettsvegi 1, 104 Reykjavík • Sími: 531 3300 Nú er tíminn til þess að skipuleggja hlaup sumarsins Nú þegar vorið er á næsta leiti eru margir hlauparar farnir að skipuleggja sumarið sitt og ákveða hvaða hlaup fólk ætlar að hlaupa í sumar. Ótrúlegur fjöldi hlaupa fer fram í sumar og ómögulegt að taka þátt í þeim öllum. Það að undirbúa sig vel og þekkja hlaupaleiðina vel er lykillinn að því að hlaupið gangi vel og að þú náir settu markmiði. Hér eru nokkur áhugaverð hlaup sem gam- an væri að taka þátt í. • Víðavangshlaup ÍR fer fram þann 20. apríl, sem er sumar- dagurinn fyrsti. Þetta er í 102. sinn sem hlaupið er haldið. Hlaupaleiðin liggur um mið- bæinn, hægt er að velja á milli 2,7 km skemmtiskokks eða 5 km hlaupaleiðar sem liggur um miðbæ Reykja- víkur. • Icelandairhlaupið fer svo fram 4. maí. Þetta er í 23. skiptið sem hlaup- ið fer fram. Hlaupið er 7 km og hlaupinn er hringurinn í kring- um Reykjavíkurflug- völl. • Kópavogsmaraþonið verður haldið í annað sinn þann 13. maí. Þrjár vegalengdir eru í boði, maraþon (42,2 km), hálf- maraþon (21,1 km) og svo 10 km. Hlaupið er um Kópa- voginn, hlaupabrautin er mjög flöt og því tilvalin til bætingar. • Mývatnsmaraþonið fer fram 3. júní í ár. Þar verða í boði fjórar mismunandi vegalengdir. Maraþon, hálf- maraþon, 10 km og 3 km leið. Hlaupið er hringinn í kringum Mývatn og endað er í jarðböð- unum við Mývatn. Þetta er einstakt tækifæri til þess að hlaupa í sérlega fallegu um- hverfi. • Miðnæturhlaup Suzuki verður haldið á Jónsmessunótt, eins og undanfarin ár. Hægt er að velja um þrjár vegalengdir: Hálft maraþon, 10 km eða 5 km. Hlaupið er frá Laugardals- lauginni og hlaupið endar þar líka og því tilvalið að skola af sér í lauginni að hlaupi loknu. Einstaklega skemmtilegt hlaup og tímasetningin frábær. • Snæfellsjökulshlaupið er á dag- skrá þann 1. júlí. Hlaupið hefur verið haldið undanfarin 6 ár og hefur verið mjög vel sótt. Ræst er frá Arnarstapa og hlaupið er um 22 km. Þetta er tilvalið hlaup fyrir þá sem vilja prófa öðruvísi hlaup og fá að kynnast utanvega- hlaupum en vinsældir svoleiðis hlaupa hafa vaxið mikið undan- farin ár. • Laugavegshlaupið fer fram 15. júlí í ár. Vegalengd- in er 55 km. Krefjandi hlaup og fólk þarf að vera mjög vel undirbúið. Til marks um auknar vinsæld- ir utanvegahlaupa þá er nú þegar orðið uppselt í hlaupið í ár en áhugasamir geta farið að undirbúa sig fyrir hlaupið 2018. • Reykjavíkurmaraþon Íslandsbanka fer fram í ár þann 19. ágúst. Það hlaup ætti ekki að þurfa að kynna fyrir nokkrum hlaupara og fullt af vegalengdum í boði fyrir alla fjölskylduna. Hlaupin eru besta fíknin Katrín Lilja Sigurðardóttir er mörgum kunn sem Sprengju-Kata sem meðal annars hefur komið fram í þáttum Ævars vísindamanns. Hún bregður sér einnig reglulega í líki Hlaupa-Kötu og hefur náð góðum árangri frá því hún byrjaði að hlaupa fyrir áratug. Frábær hlaup framundan Allar nánari upplýsingar má finna á vefsíðunni www.hlaup.is Kata hefur tekið þátt í allskonar hlaupum síðustu ár og kveðst fá mikið út úr þeim. Hún verði ómöguleg ef hún hleypur ekki í 2-3 daga. Besti árangur Kötu Árið 2013 var algjört toppár. Þá náði ég bestu tímunum mínum í þessum hefðbundnu vegalengd- um eða: 5 km 20:42 (2013) 10 km 41:55 (2013) ½ maraþon 1:36:32 (2013) Ég hef nú bara einu sinni farið heilt maraþon og Laugaveginn, en það var í fyrra. Þar sem ég þekkti ekki vegalengdirnar þorði ég ekki að rembast og fór frekar rólega: Maraþon 3:49:49 (2016) Laugavegur 7:34:01 (2016) Kannski er maraþontíminn ágætur því ég ákvað að taka þátt innan við tveimur sólarhring- um fyrir hlaupið og var alls ekki maraþonformi á þeim tíma. Dætur Kötu styðja hana þegar hún kepp- ir. Þær heita Sumarrós og Hólmfríður.

x

Fréttatíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttatíminn
https://timarit.is/publication/944

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.