Víkurfréttir


Víkurfréttir - 27.05.2004, Qupperneq 32

Víkurfréttir - 27.05.2004, Qupperneq 32
Það skemmtilegasta viðstarfið er fjölbreytileikinn,hér er alltaf eitthvað nýtt að gerast og hlutirnir fljótir að breytast. Þú veist aldrei að morgni þegar þú mætir í vinnu hvernig dagurinn verður. Hér er oft stutt á milli gleði og sorgar en uppúr stendur að við erum alltaf að fást við nýja hluti og læra eitt- hvað nýtt,“ segir Bryndís Sævars- dóttir deildarstjóri D-deildar Heil- brigðisstofnunar Suðurnesja. Bryndís er fædd og uppalin í Kefla- vík. Hún varð stúdent frá Fjölbrauta- skóla Suðurnesja og útskrifaðist sem hjúkrunarfræðingur frá Hjúkr- unarskóla Íslands 1985. Hóf þá strax störf við Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og hefur starfað þar síð- an. Ný hefur staðið mikill styr um hlutverk D-álmunnar í starfsemi HSS. Hvernig finnst þér andrúms- loftið núna? Meðal starfsfólksins hér á deildinni er andrúmsloftið mjög gott. Þessi læti í kringum D-deildina hafa vissu- lega haft áhrif á okkur og stundum hefur okkur þótt nóg um hvað fólk getur verið tilbúið að tala á neikvæð- an hátt um heilbrigðisstofnunina sína. Eðlilegra þætti okkur að bæj- arbúar stæðu vörð um þessa stofn- un og þá starfsemi sem þar er boðið uppá. En mórallinn er góður og við látum ekki bugast þó móti blási, heldur höldum ótrauð áfram að vinna að uppbyggingu starfsins. Varðandi andrúmsloftið úti í bæ, þá veit ég að flestir sem hafa þurft að nýta sér þjónustuna hér eru ánægðir og bera okkur vel söguna, neikvæðu raddirnar koma helst frá einstak- lingum sem ekki hafa kynnt sér starfsemina hér nógu vel. Hver er nákvæmlega starfsemin á deildinni í dag? Starfsemin á deildinni er mjög fjöl- breytt. Þetta er hand- og lyflæknis- deild. Við höfum sérfræðinga í al- mennum lyflækningum, almennum skurðlækningum, blóðmeinafræði, bæklunarlækningum, háls-, nef- og eyrnalækningum, hjartalækningum, kvensjúkdómalækningum, krabba- meinslækningum, lungnalækning- um, lýtalækningum, ónæmisfræði og þvagfæralækningum.Við erum að sinna öllum þessum sérgreinum hér á deildinni. Auk þess sinnum mikið endurhæfingu, t.d. eftir beinbrot, lið- skiptaaðgerðir, slys, og ýmsa sjúk- dóma. Einnig eru hér aldraðir ein- staklingar, bæði langtímavistaðir og í hvíldarinnlögnum, ýmsum rann- sóknum og endurhæfingu. Við höfum aðgang að og vinnum með sjúkraþjálfurum, iðjuþjálfa, fé- lagsráðgjafa, geðhjúkrunarfræðingi, næringarfræðingi og prestum.Auk þess fáum við þjónustu frá rann- sókn, röntgen og eldhúsi. Nýtingin á deildinni hefur verið yfir 100% frá því að hún opnaði í D- álmunni. Þannig að við þurfum ekki að kvarta yfir verkefnaleysi. Það hefur sýnt sig að þörfin er mikil fyrir þessa starfsemi sem allir Suður- nesjamenn bæði ungir og aldnir njóta góðs af. Það er þó þannig að meðalaldur sjúklinganna á hverjum tíma er yfirleitt yfir 60 ár. Hvað eru margir starfsmenn á deildinni? Á deildinni starfa núna 14 hjúkrun- arfræðingar í 8,2 stöðugildum og 23 sjúkraliðar í 15,4 stöðugildum. Að- stoðarlæknir, ritari og starfsfólk í býtibúri og ræstingu, auk þeirra lækna og stoðdeilda sem á undan eru nefndir. Hér er samtaka og gott starfsfólk og mjög góður starfsandi. Hér er tekist á við verkefni með já- kvæðu hugarfari. Ræða sjúklingarnir einhvern tíma um hlutverk D-álmunnar? Það kemur fyrir að sjúklingarnir ræði um það, aðallega í tengslum við að það kemur þeim og aðstandendum á óvart hversu mikla þjónustu það getur fengið hér þegar á reynir og lýsa því yfir að þeir vildu ekki missa þessa starfsemi eða skipta henni út fyrir eitthvað annað. Það eru flestir sammála um að það vanti hjúkrun- arheimili í Keflavík, en þeir sem hafa kynnt sér málið eru líka flestir sam- mála um að D-deildin hentar ekki vel sem hjúkrunarheimili miðað við þær kröfur sem gerðar eru í dag. Hvað er það skemmtilegasta við starfið? Skemmtilegast við starfið er fjöl- breytileikinn, hér er alltaf eitthvað nýtt að gerast og hlutirnir fljótir að breytast. Þú veist aldrei að morgni þegar þú mætir í vinnu hvernig dag- urinn verður. Hér er oft stutt á milli gleði og sorgar en uppúr stendur að við erum alltaf að fást við nýja hluti og læra eitthvað nýtt. Kanntu einhverja skemmtilega sögu af deildinni? Hér gerast oft skemmtilegir hlutir, en eðli málsins samkvæmt eru það oft hlutir sem ekki er hægt að ræða á opinberum vettvangi. Oft koma sjúklingar og aðstandend- ur hingað hlaðnir sínum persónu- legu vandamálum og láta allt bitna á okkur. Þetta hljómar kannski ekki skemmtilega, en við reynum að líta á björtu hliðarnar hér, hlæjum mikið og gerum í því að sjá „skondnu“ hliðarnar á hlutunum. En auðvitað skiptast hér á skin og skúrir og bil milli lífs og dauða er oft ekki breytt. Til dæmis gerðist það hér ekki alls fyrir löngu á næturvakt að hjúkrunarfræðingurinn á vaktinni þurfti að hringja í aðstandendur sjúklings og boða þau hingað um miðja nótt. Þau komu að vörmu spori því að þau höfðu í raun búist við þessari hringingu og vissu að kveðjustundin var að renna upp. Þarna var mikil sorg og hlutverk hjúkrunarfræðingsins að standa við hlið þeirra og reyna að styðja þau í þessu eins og hægt var. Þegar þetta fólk var búið að vera hér á deildinni í nokkrar mínútur var hringt frá fæð- ingardeildinni, en þar var ljósmóðirin ein á vaktinni og vantaði aðstoð við fæðingu. Hjúkrunarfræðingurinn hljóp yfir á fæðingardeild og eftir skamma stund fæddist þar undur- fagur lítill einstaklingur. Þarna ríkti mikil hamingja og gleði hjá nýbök- uðum foreldrum. Hjúkrunarfræðing- urinn okkar af D-deildinni gat þó ekki staldrað lengi við því að hún vissi að hennar biðu mörg og ólík verkefni á deildinni. Hún flýtti sér því aftur yfir á D-deild og skömmu seinna kvaddi þreyttur einstaklingur þetta líf í faðmi fjölskyldu sinnar. Þetta dæmi sýnir að mikið reynir á starfsfólkið hér, sem er oft að vinna undir miklu álagi. 16 VISSIR ÞÚ... Á árinu 2003 voru um 3000 nýkomur á slysamóttöku. Sama ár innrituðust 2199 sjúklingar á sjúkrahúsið. Komur á heilsugæslu til lækna og hjúkrunarfræðinga (2002) voru um 40.000. Skurðaðgerðir voru um 1.400 (2002 og 2003) Á stofnuninni starfa um 280 starfsmenn. HSS hefur sjö starfsstöðvar. Á stofnuninni eru um 100 tölvur. Á hverju ári eru þvegin um 50-60 tonn af þvotti. Á síðasta ári fæddust 225 börn í 223 fæðingum, 100 stelpur og 125 strákar, gerðir voru 32 keisaraskurðir og 23 börn fæddust í vatni. Á síðasta ári fluttu 5 hjúkrunarfræðingar í Reykjanes- bæ og von er á 2 í viðbót í haust. Um 5% fastráðinna starfsmanna HSS búa utan Suður- nesja. Á Landspítala Háskólasjúkrahúsi búa um 7,6% starfsmanna utan höfuðborgarsvæðisins. Bryndís Sævarsdóttir deildarstjóri D-deildar á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja Það reynir mikið á starfsfólkið hér Bryndís Sævarsdóttir deildarstjóri D-deildar að sinna hjúkrun á deildinni. HSS posturinn PDF 25.5.2004 23:11 Page 16

x

Víkurfréttir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.