Fréttablaðið - 07.02.2018, Side 8
Maldíveyar Hermenn á Maldíveyj
um handtóku í gær Abdulla Saeed,
forseta hæstaréttar, og Ali Hameed
hæstaréttardómara skömmu eftir
að ríkisstjórn landsins lýsti yfir
neyðarástandi í landinu.
Þegar Fréttablaðið fór í prentun
höfðu yfirvöld ekki greint frá því
hvað dómararnir væru sakaðir
um en handtökurnar voru heimil
aðar með samþykkt neyðarlaga í
gær. Lögin heimila hermönnum
að handtaka fólk án heimildar og
banna jafnframt fjöldasamkomur,
til að mynda mótmæli.
Talið er víst að handtökurnar
tengist úrskurði hæstaréttar frá því í
síðustu viku um að Abdulla Yameen
forseta beri að sleppa stjórnar
andstæðingum úr haldi. Þá komst
hæstiréttur einnig að þeirri niður
stöðu að réttarhöld ársins 2015 yfir
Mohamed Nasheed, fyrrverandi for
seta, hefðu verið ólögleg.
Þau réttarhöld höfðu Amnesty
International og bandaríska utan
ríkisráðuneytið áður fordæmt.
Sögðu samtökin meðal annars að
réttarhöldin hefðu verið pólitísk
en Nasheed var sakfelldur fyrir að
hafa fyrirskipað handtöku Abdulla
Mohamed dómara.
Ríkislögreglustjóri Maldíveyja
sagði í síðustu viku að hann ætlaði
að framfylgja dómi hæstaréttar um
að frelsa stjórnarandstæðinga. Ekki
gafst þó tækifæri til þess þar sem rík
isstjórn Yameen rak hann sama dag.
Hefur maldíveyska hernum nú verið
gert að berjast á móti hvers kyns til
raun til að steypa Yameen af stóli.
Fyrrnefndur Nasheed sagði við
BBC í gær að aðgerðir ríkisstjórnar
innar, meðal annars handtakan á
fyrrverandi forsetanum Maumoon
Abdul Gayoom, væru með öllu ólög
legar. Um valdarán væri að ræða.
„Maldíveyingar hafa fengið nóg af
þessari glæpsamlegu ógnarstjórn.
Yameen forseti ætti að segja af sér.“
Árið 2016 sagði Nasheed að hann
ætlaði að snúa aftur heim frá Bret
landi, þar sem hann er nú með
pólitískt hæli, og bjóða sig fram til
forseta. Þær kosningar munu fara
fram síðar á árinu en óljóst er hvort
nokkrir stjórnarandstæðingar muni
geta boðið sig fram.
Í gær óskaði hann eftir því á
Twitt er að Indverjar gripu inn í og
sendu sendiboða í fylgd hermanna
til eyjaklasans. Fyrir því er fordæmi
en indverski herinn greip inn í árið
1988 og kom í veg fyrir valdaránstil
raun.
Frá því Yameen komst til valda
árið 2013 hefur ríkisstjórn hans
verið harðlega gagnrýnd fyrir tak
mörkun tjáningarfrelsis, handtökur
stjórnarandstæðinga og afskipti af
dómsvaldinu.
Utanríkisráðuneyti Bandaríkj
anna sagði í tilkynningu í gær að
Bandaríkin stæðu með maldíveysku
þjóðinni. Sagði ráðuneytið enn
fremur að lögregla hefði brugðist
dómstólum og að Yameen forseti
hefði „fangelsað eða sent hvern
einasta áberandi stjórnarandstæð
ing í útlegð“.
Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna
var stuttorðara. Benti það á í tísti að
heimurinn fylgdist nú með Maldív
eyjum. Ríkisstjórnin og herinn yrðu
að fylgja lögum og reglum og að ekki
mætti skerða tjáningarfrelsi ríkis
borgara. – þea
Neyðarlög sett og dómarar handteknir
Hermenn handtóku forseta hæstaréttar á Maldíveyjum. Hæstiréttur hafði skipað forseta ríkisins að leysa stjórnarandstæðinga úr haldi.
Því hugðist lögregla framfylgja en ríkislögreglustjóri var rekinn. Ný neyðarlög gera her landsins kleift að handtaka fólk án heimildar.
SviSS Það er einungis mánaða
spurs mál hvenær NorðurKórea
getur skotið kjarnorkusprengjum á
Bandaríkin. Koma þarf í veg fyrir að
það verði mögulegt og afvopna þarf
ríkið. Þetta sagði Robert Wood, full
trúi Bandaríkjanna, á fundi á vegum
Sameinuðu þjóðanna um kjarnorku
vopn í svissnesku borginni Genf í gær.
NorðurKóreumenn kenndu
Bandaríkjamönnum hins vegar um
að auka spennuna á Kóreuskaga.
Þeir hafi staðsett flugmóður
skip sín nærri skaganum og
íhugi nú að ráðast á höfuð
borgina Pjongjang.
„NorðurKórea hefur
gefið verulega í í
kjarnorkuáætlun
sinni og ítrekað
hótað notkun
kjarnorkuvopna
gegn Bandaríkj
unum sem og banda
mönnum þeirra í þess
um heimshluta,“ sagði
Wood og bætti við:
„Norðurkóreskir embættismenn
fullyrða að þeir muni ekki láta af
áformum sínum og afkjarnorku
vopnavæðast. Nú eru líklega einung
is mánuðir þar til ríkið getur skotið
kjarnorkuvopnum á Bandaríkin.“
Wood gagnrýndi einnig harðlega
vinskapinn sem einræðisstjórnin
hefur sýnt nágrönnunum í suðri
nýverið. Hafa NorðurKóreumenn
til að mynda mætt til við
ræðna. Jafnframt mun ríkið
senda lið á Vetrarólympíu
leikana í Pyeongchang,
SuðurKóreu. „Þetta, sem
ég myndi kalla sjarmaher
ferð, er ekki að plata
n e i n n , “ s a g ð i
Wood. – þea
Norður-Kórea plati engan
Suður-afríka Ríkisstjórn SuðurAfr
íku ákvað í gær að fresta stefnuræðu
forseta. Þetta tilkynnti Baleka Mbete,
forseti þingsins, en sagði ekki hvenær
ræðan yrði haldin í staðinn.
Stjórnarandstaðan fór fram á þenn
an frest vegna þess að greidd verða
atkvæði um vantraust á Jacob Zuma
forseta þann 22. febrúar næstkom
andi. Þótti þeim ótækt að Zuma flytti
ræðu sína, sem samkvæmt áætlun átti
að vera á fimmtudaginn, þegar óljóst
er hvort hann verði yfir höfuð forseti
í mánaðarlok.
Mikill þrýstingur er á Zuma að segja
af sér vegna spillingarmála sem hann
hefur verið sakaður um. Hefur hann
nú þegar misst formannssætið í Afr
íska þjóðarráðinu til Cyril Ramaph
osa. Í yfirlýsingu frá stofnun Nelsons
Mandela í gær sagði að stjórnvöld
hefðu stolið með kerfisbundnum
hætti af suðurafrísku þjóðinni. Zuma
þurfi að víkja fyrr eða síðar.
Þá dró einnig til tíðinda í gær þegar
Jessie Duarte, varaformaður Afríska
þjóðarráðsins sagði á blaðamanna
fundi að leiðtogar flokksins myndu
taka stóra ákvörðun um „alvarlegt
mál“ í dag. „Við höfum rætt framtíð
Jacobs Zuma og þetta mál fer fyrir
yfirstjórn flokksins á miðvikudaginn
[í dag],“ sagði Duarte sem vildi ekki
greina frekar frá málinu og sagði
einungis að það væri mikilvægt
almannahagsmunum. – þea
Fresta stefnuræðu Zuma
Kim Jong-un,
einræðisherra
Norður-Kóreu.
Nordicphotos/AFp
Abdulla Yameen, forseti Maldíveyja, er umdeildur. Nordicphotos/AFp
Maldíveyingar hafa
fengið nóg af þessari
glæpsamlegu ógnarstjórn.
Yameen forseti ætti að segja
af sér.
Mohamed Nasheed, fyrrverandi for-
seti Maldíveyja
Íbúafundur um borgarmál
Miðvikudaginn 7. feb klukkan 20:00
í Golfskálanum Grafarholti
Kaffi og kleinur í boði
Allir velkomnir.
Hvert stefnir Reykjavík?
Jacob
Zuma
7 . f e b r ú a r 2 0 1 8 M i ð v i k u d a G u r8 f r é t t i r ∙ f r é t t a b l a ð i ð
0
7
-0
2
-2
0
1
8
0
4
:2
7
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
9
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
8
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
0
9
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
E
9
-1
F
F
8
1
E
E
9
-1
E
B
C
1
E
E
9
-1
D
8
0
1
E
E
9
-1
C
4
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
7
B
F
B
0
5
6
s
_
6
_
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K