Fréttablaðið - 07.02.2018, Side 24
Útgefandi: 365 miðlar Veffang: Visir.isÁbyrgðarmaður: Elmar Hallgríms Hallgrímsson Sölumaður auglýsinga: Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 512 5439
ÞG Verk hefur á síðustu árum byggt hundruð íbúða fyrir almennan íbúðamarkað og er einn stærsti byggingaraðili
íbúðarhúsnæðis á landinu. MYNDIR/ANTON BRINK
ÞG Verk er í
samstarfi við
íslenskar arki-
tektastofur en
lögð er áhersla
á smekklega
og hagkvæma
hönnun.
ÞG Verk er í startholunum með að hefja uppbyggingu í Vogahverfi en það er
ekki aðeins frábær staðsetning heldur er útsýnið þaðan ægifagurt.
Á þessu ári
mun ÞG Verk
ljúka byggingu
alls 363 íbúða
sem verða þá
tilbúnar til
afhendingar til
væntanlegra
kaupenda.
ÞG Verk hefur á síðustu árum byggt hundruð íbúða fyrir almennan íbúðamarkað
og er einn stærsti byggingaraðili
íbúðarhúsnæðis á landinu. „Okkar
meginstarfsemi er að byggja íbúðar-
húsnæði og einnig atvinnuhúsnæði
til sölu eða leigu. Við erum með
um 170 manns á launaskrá og á
hverjum tíma milli þrjú og fjögur
hundruð starfsmenn undirverk-
taka sem starfa við okkar verkefni.
Árlega skilum við af okkur 250-
300 fullbúnum, nýjum íbúðum til
ánægðra viðskiptavina. Þar fyrir
utan erum við virkir á útboðsmark-
aði og erum yfirleitt með eitt til þrjú
stór útboðsverk samhliða öðrum
verkefnum,“ segir Örn Tryggvi
Johnsen, rekstrarstjóri ÞG Verks.
Fullbúnar íbúðir
„ÞG Verk er tuttugu ára gamalt
fyrirtæki og hefur verið rekið á
sömu kennitölu allan þann tíma.
Við höfum byggt gríðarlega margar
íbúðir í gegnum tíðina á höfuð-
borgarsvæðinu. Áhersla okkar hefur
verið lögð á að byggja hagkvæmar
íbúðir sem henta hinum almenna
kaupanda, þar sem kaupandinn
fær mikil gæði fyrir peninginn.
Okkur er umhugað um að fram-
leiða vandað húsnæði, hvort sem
um er að ræða frágang innan- eða
utanhúss. Við höfum t.d. lagt á það
áherslu að einangra og klæða okkar
byggingar að utan sem við teljum
vera bestu og varanlegustu lausnina
fyrir íslenskar aðstæður. Við skilum
okkar íbúðum fullbúnum með
öllum gólfefnum, innréttingum og
tækjum sem hefur mælst afar vel
fyrir meðal okkar kaupenda og við
teljum okkur hafa verið ákveðna
forgöngumenn í að bjóða slíkar
íbúðir til sölu. Við leggjum okkur
fram um að hafa íbúðirnar smekk-
legar og vel hannaðar,“ segir Örn
Tryggvi.
Öll hönnun er í höndum
íslenskra arkitekta. „Við erum í sam-
starfi við allnokkrar arkitektastofur
og höfum einnig unnið mikið með
Birni Ólafs arkitekt sem er búsettur
í París og er vel kunnur fyrir störf
sín,“ segir Örn Tryggvi.
Gæðamál – kynntu þér bygg-
ingaraðilann
„Okkur hjá ÞG Verki er hugleikið að
íbúðakaup eru oft stærsta fjárfesting
fólks á lífsleiðinni. Því teljum við
mjög mikilvægt að fólk kynni sér
vel hver byggði íbúðina sem það
ætlar að kaupa. Við höfum frá upp-
hafi lagt áherslu á að standa með
okkar verkefnum og eignum, enda
lykilatriði að fólk geti treyst okkur.
Áreiðanleiki, gæði og notagildi eru
okkar einkunnarorð og fyrirtækið
kappkostar að eiga gott samstarf
við viðskiptavini sína,“ segir Örn
Tryggvi.
Afhenda 363 íbúðir 2018
Á þessu ári mun ÞG Verk ljúka bygg-
ingu alls 363 íbúða sem verða þá
tilbúnar til afhendingar til væntan-
legra kaupenda. „Við munum
afhenda 103 íbúðir í Bryggjuhverf-
inu í Reykjavík, 56 íbúðir á Selfossi,
52 íbúðir í Urriðaholti í Garðabæ,
76 íbúðir á Hafnartorgi í miðbæ
Reykjavíkur og 76 íbúðir til aldraðra
í Mörkinni. Þessar íbúðir eru frá 40
m2 að stærð og upp í 260 m2 svo um
er að ræða breitt úrval af húsnæði,“
greinir Örn Tryggvi frá en ÞG Verk
býður markvisst upp á minni íbúðir
þar sem hagkvæmnin er í fyrirrúmi
og hver fermetri vel nýttur.
„Á Selfossi er ÞG Verk t.d. með
vandað og hagkvæmt húsnæði í
byggingu. Baðherbergin eru for-
framleidd, sem er nýjung. Þau eru
framleidd erlendis og sett inn í
íbúðirnar í heilu lagi. Þetta er jafn-
framt fyrsta verkefnið þar sem við
bjóðum upp á rafhleðslulausnir
fyrir rafmagnsbíla á lóðinni sjálfri
til að auðvelda íbúum að reka slíka
bíla,“ segir hann.
Vogabyggð í startholunum
Þá hefst senn bygging 88 íbúða í
Urriðaholti og 370 íbúða í Voga-
byggð, sem er eitt stærsta verkefni
ÞG Verks til þessa. „Við erum einnig
að byggja íbúðir fyrir eigendur IKEA
í Urriðaholti en það er skemmtileg
áskorun að taka þátt í að byggja
fyrsta svansvottaða fjölbýlishúsið á
Íslandi. Svo er stutt þar til fram-
kvæmdir í Vogabyggð byrja en þar
er verið að þróa iðnaðarhverfi yfir í
íbúðahverfi. Þetta er frábær staður
með stórbrotnu útsýni yfir Grafar-
voginn og Esjuna og veðursældin er
mikil,“ segir Örn Tryggvi.
Atvinnuhúsnæði tilbúið á
árinu
Á árinu mun ÞG Verk einnig ljúka
við byggingu glæsilegs atvinnu-
Framhald af forsíðu ➛
húsnæðis. Um er að ræða 9.000 m2
verslunarhúsnæði við Hafnartorg
og 7.600 m2 skrifstofuhúsnæði, auk
fyrsta áfanga að 10.000 m2 húsnæði
við Dalveg í Kópavogi. Segir Örn
Tryggvi það liggja frábærlega við
öllum flutningsleiðum á höfuð-
borgarsvæðinu og henta því mjög
vel fyrirtækjum sem eru með ein-
hvers konar dreifingu á vörum.
Virkir á útboðsmarkaðnum
„Við hjá ÞG Verki erum einnig virkir
þátttakendur á útboðsmarkaðnum
og erum í raun afkastamiklir á þeim
markaði, þrátt fyrir umsvif í eigin
verkefnum. Við erum t.d. með verk-
efni fyrir íbúðir aldraðra í Mörkinni,
alls um 76 íbúðir og sjáum um frá-
gang á verslunarhúsnæði fyrir Regin
á Hafnartorgi. Það er margt í píp-
unum og við sjáum fram á spenn-
andi ár á byggingarmarkaðnum,“
segir Örn Tryggvi að lokum.
Okkur hjá ÞG Verki
er hugleikið að
íbúðakaup eru oft stærsta
fjárfesting fólks á lífs-
leiðinni. Því teljum við
mikilvægt að fólk kynni
sér vel hver byggði íbúð-
ina sem það ætlar að
kaupa. Við höfum frá
upphafi lagt áherslu á að
standa með okkar verk-
efnum og eignum, enda
lykilatriði að fólk geti
treyst okkur.
2 KYNNINGARBLAÐ 7 . F e B R ÚA R 2 0 1 8 M I ÐV I KU DAG U RBYGGINGARIÐNAÐuRINN
0
7
-0
2
-2
0
1
8
0
4
:2
7
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
6
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
3
3
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
1
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
2
4
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
ti
o
n
P
la
te
r
e
m
a
k
e
:
1
E
E
9
-2
4
E
8
1
E
E
9
-2
3
A
C
1
E
E
9
-2
2
7
0
1
E
E
9
-2
1
3
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
8
A
F
B
0
5
6
s
_
6
_
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K