Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.02.2018, Qupperneq 27

Fréttablaðið - 07.02.2018, Qupperneq 27
Húsasmiðjan er rótgróið fyrirtæki en hún var stofnuð árið 1956. Fyrst í stað voru helstu viðfangsefni fyrirtækisins framleiðsla einingahúsa og timbur­ vinnsla en fljótlega hóf Húsasmiðjan einnig að flytja inn og selja timbur. Allar götur síðan hefur Húsasmiðjan þjónustað byggingariðnaðinn og fólk í framkvæmdum og hefur verið leiðandi í sölu í fjölda vöruflokka til byggingariðnaðarins. Árið 2017 var þjónusta við bygg­ ingariðnaðinn aukin til muna en síðastliðið sumar var Fagmanna­ verslun Húsasmiðjunnar opnuð í Kjalarvogi ásamt timbursölu sem er sérsniðin að þörfum fagmannsins og fólks í stærri framkvæmdum. Í Fagmannaverslun Húsasmiðjunnar eru sölumenn og ráðgjafar fyrir timbur, glugga, útihurðir, málningu, múrvörur og allar helstu þunga­ vörur sem byggingariðnaðurinn þarfnast. Þar fá fagmenn og fólk í framkvæmdum ráðgjöf sérfræðinga, tilboð í stærri verk og vöruúrval sem er sérsniðið að þörfum byggingar­ iðnaðarins. Fagmannaverslunin býður einnig upp á mikið úrval af verkfærum en mikið af nýjum og spennandi vörum er á boðstólum í þessari verslun. „Í Fagmannaversluninni má líklega finna fjölbreyttasta úrval landsins af verkfærum á einum stað. Öll vinsælustu vörumerkin eru þar samankomin á einn stað t.d. Hitachi, Dewalt, Makita, Festool og Fein svo einhver séu nefnd. Þarna geta iðnaðarmenn skoðað ólík merki, gert samanburð á verði og gæðum vörunnar og tekið upplýsta ákvörðun með aðstoð söluráðgjafa. Þetta er því sannkölluð „dóta­ búð“ fagmannsins,“ segir Magnús Magnússon, markaðsstjóri Húsa­ smiðjunnar. „Við leggjum einnig mikla áherslu á að þjónusta málara og pípara í Fag­ mannaversluninni. Hér finna mál­ arar gæðamálninguna frá Jotun sem við erum þekkt fyrir og auðvitað allt efni og verkfæri sem þeir þarfnast. Við erum svo með glæsilega lagna­ deild fyrir pípara og sérfræðinga til aðstoðar svo hér finnur iðnaðar­ maðurinn nánast allt fyrir verkið undir einu þaki,“ bætir hann við og heldur áfram: „Ein nýjung sem hefur vakið mikla ánægju viðskipta­ vina okkar er að við bjóðum upp á ókeypis merkingar á vinnufatnaði. Iðnaðarmenn sem kaupa vinnu­ fatnaðinn í Fagmannaversluninni geta fengið hann merktan sínu fyrirtæki. Við merkjum allt hér á staðnum svo þetta gengur hratt og örugglega fyrir sig.“ Vefverslun fyrir fagmenn og fyrirtæki Í lok síðasta árs var opnaður nýr þjónustuvefur og vefverslun fyrir fagmenn og fyrirtæki. „Við höfum nú opnað fyrir reikningsviðskipti í vefverslun fyrir fyrirtæki, iðnaðar­ menn og einstaklinga í stærri fram­ kvæmdum.“ Magnús segir vefverslunina fara vel af stað og að nýr þjónustuvefur hafi vakið mikla athygli enda auð­ velt að nálgast allar upplýsingar um viðskipti sín við Húsasmiðjuna á einum stað. Þar geta iðnaðarmenn og fyrirtæki nálgast allar upplýs­ ingar, úttektaraðila, reikningsyfirlit og margt fleira sem nýtist þeim í sínum rekstri. Magnús Magnússon markaðsstjóri segir að vefverslun Húsasmiðjunnar fari vel af stað. MYND/ANtoN BriNk Fagmenn og fyrirtæki nýta sér í auknum mæli þá þjónustu að versla á sínum afsláttarkjörum í vefverslun Húsasmiðjunnar. MYND/ANtoN BriNk Í Fagmannaversluninni má skoða ólík vörumerki, gera samanburð á verði og gæðum og taka upplýsta ákvörðun með aðstoð söluráðgjafa. MYND/SpeSSi Sérfræðingar Húsasmiðjunnar í gluggum og útihurðum taka vel á móti viðskiptavinum í Fagmanna- versluninni. MYND/SpeSSi Ný verslun sannkölluð „dótabúð“ fagmannsins! Húsasmiðjan opnaði nýja Fagmannaverslun og timbursölu í Kjalarvogi á síðasta ári og nú geta fagmenn og fyrirtæki einnig verslað í reikning á sínum kjörum í vefverslun Húsasmiðjunnar. Mesta byltingin í vefversluninni er hins vegar sú að nú geta fyrirtæki og iðnaðarmenn verslað á sínum kjörum í reikning. „Fagmenn og fyrirtæki eru í auknum mæli að nýta sér þá þjónustu að versla á sínum afsláttarkjörum í vefverslun því nú hefur verið opnað fyrir reiknings­ viðskipti og viðskiptavinur sækir eða fær vöruna senda. Í þessu felst talsverður tímasparnaður og þægindi. Þó ekki sé enn hægt að kaupa timbur og þungavörur í vef­ verslun verður það hægt von bráðar og vonum við að iðnaðarmenn, verktakafyrirtæki og auðvitað einstaklingar geti þá nýtt sér þessa þjónustu til fulls,“ segir Magnús. „Við hvetjum alla iðnaðarmenn til að kynna sér vel vefverslun Húsa­ smiðjunnar á husa.is, þar sem við bætum nokkur hundruð vörum í hverri viku við vöruúrvalið. Nú þegar eru á milli 15­20 þúsund vörur fáanlegar í vefverslun á hverjum tíma sem þó er innan við helmingur af vöruúrvali fyrirtækisins. Ekki verður langt í að nánast allur vörukostur Húsasmiðjunnar verði fáanlegur í vefverslun og verður hún þá ein langstærsta vefverslun landsins og þó víðar væri leitað,“ segir Magnús. Vefverslun Húsasmiðjunnar, husa.is, hefur fengið frábærar viðtökur og meðal annars verið tilnefnd vefverslun ársins tvö ár í röð árið 2016 og 2017 af Samtökum vefiðnaðarins sem eru fagsamtök þeirra er starfa að vefmálum á Íslandi. „Vefverslun Húsasmiðjunnar hefur notið mikilla vinsælda hjá hinum almenna viðskiptavini en byggingariðnaðurinn hefur ekki verið að nýta sér þessa þjónustu nægilega mikið hingað til. Við sjáum hins vegar teikn á lofti og við­ skipti iðnaðarmanna og verktaka­ fyrirtækja fara vaxandi í vefverslun og mun verða stór þáttur í að auka þjónustu okkar enn frekar við bygg­ ingariðnaðinn á komandi miss­ erum,“ segir Magnús að lokum. kYNNiNGArBLAÐ 5 M i ÐV i kU DAG U r 7 . F e b r úa r 2 0 1 8 BYGGiNGAriÐNAÐUriNN 0 7 -0 2 -2 0 1 8 0 4 :2 7 F B 0 5 6 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E E 9 -0 2 5 8 1 E E 9 -0 1 1 C 1 E E 8 -F F E 0 1 E E 8 -F E A 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 5 6 s _ 6 _ 2 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.