Fréttablaðið


Fréttablaðið - 07.02.2018, Qupperneq 30

Fréttablaðið - 07.02.2018, Qupperneq 30
Oddur Freyr Þorsteinsson oddurfreyr@365.is Vélmenni verða líklega nýtt í auknum mæli í byggingariðnaði á næstu árum. Samt ekki þetta ferlíki. MYNDIR/NORDICPHOTOS/GETTY Myndataka með drónum gæti sums staðar auðveldað undirbúningsvinnu fyrir byggingaframkvæmdir verulega. Alls kyns stafræn tól geta auðveldað sam- starf og upp- lýsingaflæði. Í grein sem birtist á vef Forbes í vikunni lýsir Nikhil Choudary, forstjóri Zenith Engineers, sem er byggingarfyrirtæki sem starfar í Kaliforníu í Bandaríkjunum, þremur nýjum tækniframförum sem hann telur að verði mjög áhrifamiklar á allra næstu árum. Choudary er með meistaragráðu í byggingarverkfræði frá Mich i­ gan State­háskóla, nokkurra ára reynslu af verktakavinnu og fylgist vel með nýjungum í geiranum. Choudary segir að tæknin móti allt í veröldinni, en að byggingar­ iðnaður hafi ekki fengið að njóta mikils góðs af öllum þessum fram­ förum. Hann segir að iðnaðurinn verði að tileinka sér nýja tækni til að auka sjálfvirkni og minnka þörfina fyrir vinnuafl. Choudary segir að á síðustu fimm árum hafi komið fram byltingarkennd ný tækni sem geti aukið skilvirkni verulega í byggingariðnaði og hún eigi eftir að hafa mikil áhrif á næstu árum. Vélmenni til að auka afköst Byggingariðnaður kostar sérlega mikið vinnuafl og þar sem bygg­ ingarsvæði eru opin og síbreytileg hefur reynst erfiðara að innleiða vélmenni þar en við færibönd í lokuðum verksmiðjum. En sum störf í byggingargeir­ anum, eins og að leggja múrsteina, snúast að miklu leyti um endur­ tekningar og kosta mikið vinnuafl. Þar geta vélmenni komið að gagni. Ekki til að koma í staðinn fyrir múrara, heldur til að auka afköst þeirra. Nýting vélmenna gæti lækkað kostnað og tryggt bæði gæði og nákvæmni. Fyrirtækið Construction Robotics hannaði nýlega hálf­ sjálfvirkt múraravélmenni sem kallast SAM100 og er á almennum markaði. Vélmennið vinnur með múrara og getur margfaldað afköst hans. Vélmenni sem geta unnið með okkur mannfólkinu gætu bætt vinnuumhverfið, fækkað slysum og flýtt fyrir framkvæmdum. Myndataka með drónum Choudary segir að góð greining á vinnusvæði sé nauðsyn­ legur grundvöllur byggingarfram­ kvæmda. En sums staðar, sérstak­ lega í þróunarlöndum, er skortur á góðum gervihnattamyndum og meiri þörf fyrir vinnuafl til að safna upplýsingum um svæði. Breytingar í byggingariðnaði Þrátt fyrir hraðar tækniframfarir í heiminum undanfarin ár hefur byggingariðnaður breyst lítið. En það eru að minnsta kosti þrjár nýlegar tækninýjungar sem gætu haft mikil áhrif á næstu árum. Hafðu samband í síma 412 5040 eða á sala@bmvalla.is Fagmenn okkar ráðleggja þér með val á réttu efnunum. Hægt að fylla á flotsíló á meðan dæling fer fram og tryggir það góð afköst. Nú getur þú fengið flot í bestu gæðum hjá BM Vallá auk fyrsta flokks þjónustu við verkið. Mikil afköst og hagkvæmur kostur í stórar og litlar framkvæmdir. Nýtt gæðaflot frá BM Vallá Góð myndataka með dróna gæti því sparað mikinn tíma við mælingar og undirbúningsvinnu. Með dróna væri hægt að taka tví­ og þrívíðar myndir og safna miklu magni af upplýsingum á skömmum tíma. Með því að nýta hnitakerfi dróna er líka hægt að ná mikilli, jafnvel fullkominni, nákvæmni í mælingum. Choudary spáir því að á allra næstum árum aukist nákvæmnin í myndatöku með drónum og hún verði notuð í auknum mæli í byggingariðnaði. Stafræn verkfæri auðvelda samstarf Choudary segir að stór hluti af byggingargeiranum noti enn þá skjalamöppur, Excel­skjöl, faxvélar og síma til að skiptast á upplýs­ ingum. En það eru ýmis stafræn verkfæri til staðar sem auðvelda samstarfsverkefni, sérstaklega þar sem margir ólíkar aðilar vinna saman að einu verkefni. Sum þeirra bjóða líka upp á að öll gögn sem tengjast sama verkefninu séu geymd á miðlægum grunni sem allir geta nálgast. Choudary segir að það segi sig sjálft að byggingargeirinn verði að nýta byltinguna sem hefur orðið í stafrænni upplýsingamiðlun til að þróast áfram. Hann segir að iðnaðurinn sé að tileinka sér þessa tækni hratt og að þau fyrirtæki sem aðlagist ekki þessum breytingum hætti fljótt að vera samkeppnis­ hæf. 8 KYNNINGARBLAÐ 7 . f E B R úA R 2 0 1 8 M I ÐV I KU DAG U RBYGGINGARIÐNAÐuRINN 0 7 -0 2 -2 0 1 8 0 4 :2 7 F B 0 5 6 s _ P 0 3 9 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 3 0 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 1 8 K .p 1 .p d f F B 0 5 6 s _ P 0 2 7 K .p 1 .p d f A u to m a tio n P la te re m a k e : 1 E E 9 -0 2 5 8 1 E E 9 -0 1 1 C 1 E E 8 -F F E 0 1 E E 8 -F E A 4 2 7 5 X 4 0 0 .0 0 1 4 B F B 0 5 6 s _ 6 _ 2 _ 2 0 1 8 C M Y K

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.