Fréttablaðið - 07.02.2018, Síða 42
Nýr seðlabankastjóri segir efnahaginn traustan
Jerome Powell sór á mánudag embættiseið sem nýr bankastjóri Seðlabanka Bandaríkjanna. Miklar lækkanir á hlutabréfamarkaði vestanhafs vörp-
uðu nokkrum skugga á athöfnina en Powell sagðist myndu fylgjast gaumgæfilega með öllum hættumerkjum á mörkuðum. Engu að síður sagði hann
bandarískan efnahag standa traustum fótum. Atvinnuleysi mældist lítið, hagkerfið yxi hratt og verðbólgan væri sögulega lág. NORDICPHOTOS/GETTY
Það hefur ekki farið fram hjá neinum að í heiminum hefur orðið bylting – þar sem alda-
löng þöggun um kynbundna kúgun
og ofbeldi hefur loks verið rofin.
Byltingin MeToo hefur haft víðtæk
áhrif og gerðist m.a.s. svo fræg að
vera kosin „Maður ársins“ á dög-
unum. Byltingin hefur fengið konur
í nær öllum atvinnugreinum og
þjóðfélagshópum til að opna sig og
deila með okkur sínum sögum. Við
lesturinn hefur maður áttað sig á
því hvað kúgunin og ofbeldið hefur
lengi viðgengist og verið seigt mein
í menningunni. Risastórt graftarkýli
sem við áttum alveg eftir að sprengja.
Engin kaffistofa hefur farið var-
hluta af umræðunni og vonandi ekk-
ert stjórnarherbergi. Ég hef átt mörg
lærdómsrík samtöl en þó hef ég
líka orðið fyrir stórkostlegum von-
brigðum með hóp fólks sem gerir
lítið úr byltingunni og vægi hennar.
Talar um að nú sé daðrið dautt og
það „megi ekkert lengur“. Það er
nákvæmlega viðhorfið sem fékk
mann til að bíta á jaxlinn í öll þessi
ár í stundum fáránlegum aðstæðum.
Hvort sem það var þegar klipið var
í brjóst manns og rass á gengil-
beinuárunum, óþægilegu klám-
brandararnir sem voru látnir fjúka
á viðskiptafundum eða þegar maður
var króaður af til að láta þefa af sér
í lyftu (já, ég veit), eða þegar maður
var orðinn framkvæmdastjóri bygg-
ingafyrirtækis á stórum fögnuði með
öðrum (karl)stjórnendum í brans-
anum. Mín viðbrögð? Engin. Beit
bara á jaxlinn og hef forðast slíkar
samkomur síðan.
En hvaða áhrif hefur þetta í raun
haft á mig sem stjórnanda í karllæg-
um bransa? Og öllu heldur, hvaða
áhrif hefur þetta haft á mínum og
þínum vinnustað? Hefur vinnu-
staðurinn þinn og bransinn farið
í naflaskoðun? Hvernig getum við
nýtt þessa byltingu til þroska og
lærdóms? Hvaða ætla stjórnendur
að gera til að tryggja breytingar?
Um þetta fjallar FKA-ráðstefnan
í dag. Þar koma saman konur og
menn til að skera á þetta graftar-
kýli og vinna að úrbótum. Þar stíga
fram ábyrgir menn eins og Guðni
Th. Jóhannesson forseti og Gestur
Pálmason, sem fer fyrir hreyfingu
karlmanna sem kalla sig #egertil og
vilja axla ábyrgð gegn kynbundnu
ofbeldi. Svo ekki sé minnst á flottu
kvenstjórnendurna sem stíga fram
og kynna fyrir okkur hvernig þær
ætla að tryggja að byltingin skili
raunverulegum árangri á sínum
vinnustað.
Það er nefnilega hárrétt. Það má
ekkert ofbeldi lengur. Sorrí með
okkur. Byltingin lifi.
Má ekkert lengur!?
Brynhildur S.
Björnsdóttir
framkvæmda-
stjóri GG Verks,
og FKA-félags-
kona
Nú liggur fyrir Alþingi f j á r m á l a s t e f n a nýrrar ríkisstjórn-ar. Lykilforsenda hennar er áfram-haldandi óslitinn
hagvöxtur fram til ársins 2022 og
að núverandi hagvaxtarskeið nái
hið minnsta ellefta aldursári. Að
meðaltali hafa hagvaxtarskeið á
Íslandi enst í sex til sjö ár. Þrátt fyrir
þessa bjartsýnu forsendu er gert ráð
fyrir því að afgangur af rekstri hins
opinbera verði að jafnaði rétt ríflega
1% af landsframleiðslu á tímabilinu,
sem seint telst ábyrg stefna.
Uppsveiflur taka nefnilega enda.
Endir þeirra er sjaldnast fyrirséður
og því er ábyrgðarleysi að sýna ekki
aga á uppgangstímum vitandi að
slíkt margborgar sig þegar harðnar
á dalnum. Fjármálastefnan er nú
sett fram í kjölfar mikils uppgangs,
tekjustofnarnir eru þandir og hafa
aldrei verið meiri. Fyrirhugaður
afgangur er aftur á móti agnarsmár,
1% af landsframleiðslu er aðeins um
26 milljarðar en til samanburðar
hafa fjárheimildir ríkissjóðs fyrir
árið 2017 þegar vaxið um svipaða
upphæð frá upphaflegum áætl-
unum. Enn eigum við þó eftir að
sjá endanlegan ríkisreikning fyrir
2017 en þar má gera ráð fyrir nokk-
urri aukningu útgjalda til viðbótar.
Í aðdraganda bankahrunsins 2008,
árin 2004-2007, nam afgangur hins
opinbera 5% af landsframleiðslu og
varð það ein af lífsbjörgum okkar
Íslendinga hversu lítið skuldsettur
ríkissjóður var. Þrátt fyrir áform um
niðurgreiðslu skulda verða skuldir
enn talsvert meiri 2022 en þær voru
við lok síðustu uppsveiflu. Það er
óábyrg stefna að búa ekki betur í
haginn.
Stöðva ekki umframkeyrslu
Vonir hafa verið bundnar við að ný
lög um opinber fjármál, sem setja
hallarekstur og skuldsetningu hins
opinbera ákveðnar skorður, muni
stuðla að auknum aga í fjármála-
stefnu hins opinbera. Með lögunum
er lögð áhersla á langtímahugsun og
bætt vinnubrögð. Slík lagasetning er
skref í rétta átt og skynsamleg nálg-
un en því miður eru lögin ekki nægi-
lega vel útfærð. Þau ná hvorki að
hemja útgjaldavöxt á góðæristímum
né kerfislega aukningu fjárheimilda
frá framlagningu frumvarps til end-
anlegs ríkisreiknings. Ekki er komin
endanleg niðurstaða fyrir útgjöld
ársins 2017 en þó er ljóst að þau
verða umfram fjárheimildir á sama
tíma og fjármálastefnan er þenslu-
hvetjandi. Flest þróuð ríki sem
styðjast við afkomureglu leiðrétta
fyrir hagsveiflunni, enda er auð-
veldara að fylgja einfaldri afkomu-
reglu þegar tekjustofnar þenjast út.
Þannig er tryggt að aðhalds sé gætt
á uppgangstímum en að slakinn sé
meiri í niðursveiflu.
Á meðan lítil áhersla hefur verið á
aðhald eða mikilvægi þess að draga
úr opinberum umsvifum, sem eru
ein þau mestu meðal OECD-ríkja,
skapast ekki rými til skattalækk-
ana. Það er einnig óábyrg stefna að
festa Ísland í sessi sem háskattaríki.
Eftir 2008 voru skattar hækkaðir,
þær skattahækkanir standa flestar
óhreyfðar nú næstum áratug síðar.
Í fjárlagafrumvarpi 2018 eru frekari
skattahækkanir boðaðar en engar
skattalækkanir, sem er miður.
Síðustu ár hefur verið forgangs-
raðað til heilbrigðis- og mennta-
mála og hafa útgjöld til mála-
flokkanna aukist verulega umfram
önnur útgjöld ríkisins. Enn er þó
krafist aukinna framlaga til þess-
ara málaflokka og er það skiljan-
legt enda viljum við öll hafa slíka
grunnþjónustu sem besta. Það
blasir þó við að vandamálið er
ekki skortur á fjármagni. Tækifærin
hljóta að vera fólgin í því að auka
skilvirkni og forgangsraða betur
innan núverandi útgjalda ramma.
Slíkt myndi um leið skila betri nýt-
ingu á skattfé landsmanna. Standi
vilji stjórnvalda til að minnka
álögur á almenning þarf að halda
aftur af útgjöldum en lítið fer fyrir
slíkum sjónarmiðum. Það virðist
hins vegar vera samstaða um það
á Alþingi að halda skattprósentum
í botni í gegnum alla uppsveifluna.
Einhverjir stjórnmálamenn ætla
síðan að lækka skatta í næstu nið-
ursveiflu. Af fenginni reynslu vitum
við að það er útópísk hugmynd.
Aðhaldsleysi
Ásdís
Kristjánsdóttir
forstöðumaður
efnahagssviðs
Samtaka atvinnu-
lífsins
Enginn fyrirvari
Þorsteinn Pálsson,
fyrrverandi for-
sætisráðherra,
fór um víðan völl
þegar Kristján
Kristjánsson ræddi
við hann á Bylgjunni
síðasta sunnudagsmorgun. Þegar
talið barst að yfirstandandi söluferli
Arion banka og möguleikanum á því
að lífeyrissjóðir kaupi hlut í bank-
anum sagði Þorsteinn varla hægt að
hugsa sér betri fjárfesta en sjóðina.
Þeir væru afar traustir og ábyggilegir.
Það væri „mikils virði“ fyrir banka
að hafa slíka fjárfesta. Kristján hefði
mátt taka það fram – svo ekki færi á
milli mála – að Þorsteinn er stjórnar-
formaður Kviku banka, sem er ein-
mitt ráðgjafi Kaupþings í söluferlinu.
Forstjórinn mætir
Fulltrúar og ráð-
gjafar bandaríska
fjárfestingar-
félagsins Yucaipa,
stærsta hluthafa
Eimskips, hafa að
undanförnu fundað
með fjárfestum og
kannað áhuga þeirra á kaupum á allt
að fjórðungshlut sínum í skipafélag-
inu. Nokkra athygli hefur vakið að
sjálfur forstjóri Eimskips, Gylfi Sigfús-
son, hefur látið sjá sig á umræddum
fjárfestakynningum. Það hefur vakið
spurningar um hvort mögulega aðrir
hluthafar, sem skoða sölu, geti einnig
fengið forstjórann á sína fjárfesta-
fundi.
Endurskoðar
fjármálakerfið
Á meðal þeirra
sem fjármála- og
efnahagsráðherra
hefur skipað í
starfshóp sem á
að vinna hvítbók
um framtíðarsýn
fjármálakerfisins er hagfræðingurinn
Kristrún Tinna Gunnarsdóttir. Krist-
rún starfar hjá ráðgjafarfyrirtækinu
Oliver Wyman í Svíþjóð en fáir muna
eflaust eftir því að umrætt fyrirtæki
vann árið 2014 skýrslu um íslenska
bankakerfið að beiðni Samtaka
fjármálafyrirtækja. Var það mat fyrir-
tækisins að bankakerfið væri mun
dýrara í rekstri en bankar annarra nor-
rænna landa og að nauðsynlegt væri
að ráðast í „róttæka“ uppstokkun
á fjármálakerfinu. Starfshópurinn
mætti kannski dusta rykið af um-
ræddri skýrslu.
Skotsilfur
7 . f e b r ú a r 2 0 1 8 M I Ð V I K U D a G U r10 markaðurinn
0
7
-0
2
-2
0
1
8
0
4
:2
7
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
4
2
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
F
B
0
5
6
s
_
P
0
1
5
K
.p
1
.p
d
f
A
u
to
m
a
tio
n
P
la
te
re
m
a
k
e
: 1
E
E
8
-E
9
A
8
1
E
E
8
-E
8
6
C
1
E
E
8
-E
7
3
0
1
E
E
8
-E
5
F
4
2
7
5
X
4
0
0
.0
0
1
2
A
F
B
0
5
6
s
_
6
_
2
_
2
0
1
8
C
M
Y
K