Víkurfréttir


Víkurfréttir - 30.08.2017, Blaðsíða 28

Víkurfréttir - 30.08.2017, Blaðsíða 28
28 miðvikudagur 30. ágúst 2017VÍKURFRÉTTIR FRÉTTAVAKT ALLAN SÓLARHRINGINN Í SÍMA 898 2222 Seld verða handgerð kort sem urðu til þegar félagsheimilið var opið gestum og gangandi síðasta sumar og rúsínan í pylsuendanum er síðan lífstíls varn- ingur sem meðlimir Menningarfé- lagsins hafa hannað fyrir harðgert fólk með auga fyrir því sérstaka í lífinu sem verður til sölu á staðnum. Má þar nefna sérstaka Hafna boli, derhúfur og póstkort. Kaffiveitingar verða á staðnum til styrktar viðhaldi Kirkjuvogskirkju, þannig að allir geta upplifað menn- ingu Hafna í ró og næði yfir kaffibolla og kruðeríi. Opið verður laugardaginn 2. sept. kl. 13-16 og sunnudaginn 3. sept. kl. 13- 18. Tekið skal fram að á opnunartíma gamla skólans verða seldir miðar á tónleika KK og Elízu Newman í Kirkjuvogskirkju sunnudaginn 03.09. Tvennir tónleikar verða haldnir kl.14. og kl.16 á sunnudeginum og er miða- verð er 2000 kr. Hátíð í Höfnum á Ljósanótt 2017 ●● Kaffisala●og●sýning●í●Gamla●skólanum●og●tón- leikar●í●Kirkjuvogskirkju●með●KK●og●Elízu●Newman Menningarfélag Hafna verður með opna kaffisölu í í Gamla skól- anum á Ljósanótt ásamt því að halda tvenna tónleika í Kirkjuvogs- kirkju sunnudaginn 3. september með KK og Elízu Newman. Menningarfélagið í Höfnum verður með opið hús í gamla skóla- húsinu á Ljósanótt. Þar mun kenna ýmissa grasa eins og áður. Í þetta sinn fá gestir innsýn inn í líf og list Hafnarbúans. Hvernig hann upplifir sig og sitt nánasta umhverfi. Hvað brýst fram og rekur á land umheimsins í beljandi rokinu. Valgerður Guðlaugsdóttir mun sýna röð vatnslitamynda sem hún nefnir „Ég sé rautt“ og er upplifun hennar á umhverfi sínu. Tónleikarnir í Kirkjuvogskirkju Sunnudaginn 3. september mun hinn ástsæli söngvari KK koma og halda tvenna órafmagnaða tónleika Kirkju- vogskirkju í Höfnum. KK mun flytja þekkt lög af ferli sýnum bæði ný og gömul og verður einstakt að heyra hann syngja og spila í fallegu litlu kirkjunni í Höfnum. KK tengist Höfnum á þann hátt að hann kom hér fyrir nokkru og tók upp tónlistarmyndband í litla kotinu Garðbæ við lagið, Ég er á förum. og heillaðist hann af látlausum sjarma Hafna. Elíza Newman mun sjá um að hita upp fyrir KK og flytja lög af sínum ferli, meðal annars af nýjustu plötu sinni Straumhvörf sem tekin var upp í Höfnum. Um KK Þegar tónlistarmaðurinn KK kom heim frá Svíþjóð eftir nokkurra ára fjarveru tókum við honum fagnandi enda bar hann með sér nýja strauma inn í íslenskt tónlistarlíf. Sýndi okkur inn í heima sem við höfðum ekki hug- mynd um að væru til. Síðan þá hafa ófáar perlur legið eftir á vegi dægur- lagamenningar Íslendinga og óhætt að segja að mörg af lögum KK séu orðin þjóðargersemar sem seint gleymast. Um Elízu Tónlistarkonan Elíza Newman kom fyrst fram í sviðsljósið með hljómsveit sinni Kolrössu Krókríðandi er þær sigruðu Músiktilraunir með látum hér um árið. Hún hefur starfað við tónlist alla tíð síðan og er fjölhæfur listamaður bæði sem lagahöfundur og flytjandi. Nýjasta platan hennar „Straumhvörf “ hefur fengið góðar viðtökur og dóma og telja margir að þetta sé ein besta plata Elízu til þessa. Fyrri tónleikarnir hefjast kl. 14 og seinni kl. 16. Miðaverð er 2000 kr og rennur allur ágóði til viðhalds Kirkjuvogskirkju í Höfnum. Miðar verða til sölu í Gamla skólanum í Höfnum laugardaginn 02.09 frá 14- 16 og sunnudaginn 03.09 frá 13-16. Verið velkomin í Hafnir - Hlökkum til að sjá ykkur. Fréttatilk. frá Menningarfélagi Hafna.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.