Víkurfréttir - 30.08.2017, Blaðsíða 48
48 miðvikudagur 30. ágúst 2017VÍKURFRÉTTIR
FRÉTTAVAKT ALLAN
SÓLARHRINGINN
Í SÍMA 898 2222Duusgata 10 • 230 Keflavík • Telephone 421 7080 • duus@duus.is
Lunch • Dinner • Coffee
Only 5 Minutes from Airport
Beautiful ocean view
Sjáið flugeldasýninguna af svölunum á Kaffi Duus. Besta útsýnið!
Opið frá kl. 10:30 - 03:00
föstudag - laugardag
Fimmtudagur:
Trúbadorinn Hlynur Snær heldur uppi fjöri í tjaldi frá kl. 21:00
Föstudags- og laugardagskvöld:
Hljómsveitin Feðgarnir skemmta tjaldgestum
Hljómsveitin Króm leikur fyrir dansi föstudags- og laugardagskvöld
Okkar frábæri matseðill í gangi öll kvöld,
pantanir í síma 421 7080 eða duus@duus.is
Hlaðborð í hádegi alla dagana
Ljósanæturstemning
á Kaffi Duus
Veitingar
í tjaldi
og inniá
Kaffi Duus
alla dagana
www.d
uus.is
Specialty
Fish is our
Restauran
t
Frítt inn
öll kvöl
din
Gamli vélasalurinn í í frystihúsi HF Hafnargötu 2 í Reykjanesbæ hefur verið
rifinn. Þetta er það síðasta sem verður rifið á þessum reit í bili. Vélunum
verður hlíft enda um minjar að ræða. Glæsilegt Fichershús mun njóta sín
enn betur fyrir vikið.
HF átti sitt blómaskeið fyrir áratugum en eftir stórbruna í hluta hússins árið
1983 breyttist starfsemin í húsunum.
Hin síðari ár hefur lista- og tómstundastarf ýmiskonar verið með aðsetur í
húsum HF. Nú er svo komið að ástand bygginga er mjög lélegt og tekin var
ákvörðun um að rífa það sem eftir stendur af húsunum. Þó verður þeim hluta
hússins sem hýsir Svarta Pakkhúsið hlíft.
Gamli vélasalur
HF rifinn
Aldrei hafa jafn margar umsóknir
borist um nám í Háskólabrú Keilis á
haustönn og fjölgar þeim mikið milli
ára. Mun árgangurinn sem hefur nám
á haustönn 2017 því verða með þeim
fjölmennustu frá upphafi.
Keilir hefur boðið upp á aðfaranám til
háskóla frá árinu 2007 og hafa á þeim
tíma átt sér stað miklar framfarir í
kennsluháttum. Nú geta nemendur
valið að sækja Háskólabrú í stað-
námi eða fjarnámi, bæði með og án
vinnu. Þá mun Keilir bjóða upp á Há-
skólabrú á ensku frá og með haustinu.
Námið er hugsað fyrir einstaklinga
með annað móðurmál en íslensku
sem hyggja á nám í Háskóla Íslands en
hafa ekki lokið stúdentsprófi. Námið
hefst í október og er umsóknarfrestur
til 11. september næstkomandi.
Réttað verður í Þórkötlustaðarétt í
Grindavík laugardaginn 16. september
kl. 14. Réttirnar eru oftast vel sóttar af
gestum og stundum má vart sjá hvor
hópurinn er fjölmennari, mennirnir
eða sauðféð. Gestir eru beðnir um að
sýna tillitssemi við bændur og sauðfé
og sem flestir hvattir til að nýta sér
göngustíga meðfram Austurvegi og
skilja bílana eftir heima.
Aldrei fleiri um-
sóknir í Háskólabrú
Ökumaður, sem grunaður var um
að hafa verið að spóla í hringtorgi í
umdæminu, missti stjórn á bifreið
sinni þegar hjólbarðarnir að aftan af-
felguðust með þeim afleiðingum að
felgan hafnaði utan vegar á ljósastaur
og gangbrautarskilti.
Loks varð svo harður árekstur tveggja
bifreiða á langtímastæðinu við Flug-
stöð Leifs Eiríkssonar að þær voru
báðar óökufærar. Engin slys urðu á
fólki þar fremur en í nokkrum öðrum
umferðaróhöppum sem áttu sér stað í
umdæminu.
Missti stjórn á
bifreið sinni
Réttað í Grindavík
16. september