Víkurfréttir - 30.08.2017, Blaðsíða 56
56 miðvikudagur 30. ágúst 2017VÍKURFRÉTTIR
FRÉTTAVAKT ALLAN
SÓLARHRINGINN
Í SÍMA 898 2222
Listamaðurinn Ethorio, sem heitir réttu nafni Eyþór Eyjólfs-
son, gaf Myllubakkaskóla veggjamynd á dögunum. Með mynd-
inni vill hann hvetja nemendurna áfram í skólanum en með
persónunum á veggjamyndinni fylgja ýmis skilaboð, til dæmis
þau að vera alltaf maður sjálfur og að mennt sé máttur.
„Ég hugsaði að það væri gaman að skilja eitthvað jákvætt eftir
mig hér í bæ,“ segir Ethorio. Hann reyndi að mála persónur sem
krakkarnir könnuðust við og tengja verkið við menntun til að
vonandi drífa þá áfram í náminu. „Ég vildi hafa þetta jákvætt og
hvetjandi, en á sama tíma litríkt og skemmtilegt, eins og lífið á að
vera,“ segir hann.
Þetta er þó ekki eina verkið sem Ethorio gefur þessa dagana því
Tónlistarskóli Reykjanesbæjar fær einnig verk frá honum. „Það
verk var lokaverkefnið mitt á næst síðustu önninni minni í Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja árið 2013, en það er verkið „Rúnni Júl“. Ég
vildi þakka Tónlistarskóla Reykjanesbæjar fyrir mig. Þetta verk er
mitt besta, hingað til.“
Leið Ethorio liggur svo til Bretlands eftir tæplega mánuð þar sem
hann mun hefja nám á öðru ári í Fine-Art deildinni í listaskól-
anum AUB. Art University of Bournemouth. Hann mun dvelja í
Bretlandi í tvö ár og klárar þá BA-gráðuna.
Fyrir áhugasama verður Ethorio með listasýningu á Ljósanótt,
áður en hann heldur á vit ævintýranna í Bretlandi en sú sýning
verður að Hafnargötu 20.
gott af sér leiða
Listamaður sem lætur
●● Ethorio●gefur●Myllubakkaskóla●og●Tónlistarskóla●Reykjanesbæjar●verk●eftir●sig