Víkurfréttir


Víkurfréttir - 30.08.2017, Blaðsíða 60

Víkurfréttir - 30.08.2017, Blaðsíða 60
60 miðvikudagur 30. ágúst 2017VÍKURFRÉTTIR FRÉTTAVAKT ALLAN SÓLARHRINGINN Í SÍMA 898 2222 Hvað eru margar konur í klúbbnum hjá ykkur? „Þær sem eru virkar hjá okkur eru örugglega komnar upp í 50 konur og það er alltaf að fjölga hjá okkur í klúbbnum. Margar eru á námskeiði hjá Karen Sævars sem er golfkennari hjá okkur og spila Jóel sem er byrj- endavöllurinn okkar. Við fengum ein- mitt Karen með okkur í lið í sumar þegar við ákváðum að vera með ný- liðadag en þá buðum við nýliðunum að koma og spila á „stóra“ vellinum. Karen kom og talaði við stelpurnar og fór yfir ýmislegt sem viðkemur golfinu og þeim fannst æðislegt að fá að upplifa þennan dag. Við auglýstum þetta inn á Facebook-síðu hópsins GS konur og sló þetta heldur betur í gegn, sumar konur eru smeykar við það að koma á aðalvöllinn okkar en svo þegar þær eru búnar að prófa og komnar af stað þá er þetta ekkert mál.“ Hvenær byrjaði starfið hjá ykkur? „Það byrjaði af krafti fyrir um þremur árum síðan og það hefur heldur betur stækkað síðan þá. Konur og ef ekki flestir vilja hafa gaman í golfi og við pössum okkur á því að það sé gaman. Á mánudögum hittumst við sem komumst til að spila og tökum níu holur, það tekur ekki nema um tvo til tvo og hálfan tíma að spila níu holur og síðan komum við allar inn í golf- skála og fáum okkur kaffibolla og spjöllum svolítið saman. Við erum líka með fuglabúr eða „birdie“-búr og þær sem fá fugl merkja kúluna sína og númer holunnar og það hafa nú þegar safnast þónokkuð margar kúlur í búrið sem sýnir hvað þær eru öfl- ugar konurnar hérna. Þegar við hitt- Það skiptir mestu máli að hafa gaman ●● segir●Sigurrós●Hrólfsdóttir●formaður●kvennaráðs●Golfklúbbs●Suðurnesja Kvennastarf Golfklúbbs Suðurnesja hefur farið ört vaxandi á síðustu árum, stjórnin er öflug og eru þær duglegar að vera með hinar ýmsar uppákomur en aðalmarkmiðið er að hafa gaman. Við ræddum við Sigurrósu Hrólfsdóttur sem er ritari Golfklúbbs Suðurnesja ásamt því að hún er formaður kvennaráðs. umst síðan í síðasta skiptið í haust þá munum við draga kúlu úr búrinu þar sem að „birdie“-drottningin verður krýnd með kórónu og verðlaunum“. Þegar blaðamaður mætti á svæðið voru þó nokkrar konur mættar í köflóttum skyrtum, með tóbaks- klúta, kúrekahatta og í gallajökkum. Þema dagsins var kúrekaþema. „Við höfum verið duglegar að gera starfið skemmtilegt og einu sinni í mánuði erum við með þema, við höfum meðal annars verið með bleikt þema og eitt skiptið vorum við með pilsa- þema þar sem að þær mættu í pilsi utan yfir regnbuxurnar sínar vegna veðurs og síðan í dag erum við með kúrekaþema, veðrið skiptir ekki máli þegar það er þema, heldur bara að vera með“. Meistaramót GS fór fram í júlímánuði og segir Sigurrós að það hafi orðið aukning í opna flokknum sem er fyrir konur með 30+ í forgjöf. Hún segir einnig að fjölgunin í þeim flokki sé mjög jákvæð og vonandi verða ennþá fleiri næsta sumar. Mikilvægt að öllum líði vel „Við viljum að öllum konunun líði vel, hér er ekkert baktal, við tökum á móti öllum nýliðum með opnum örmum, alveg sama hver það er. Við höfum allar verið nýliðar á einhverjum tíma- punkti á okkar golfferli og því er mikil- vægt að það sé vel tekið á móti þeim sem eru að byrja og stíga sín fyrstu skref á golfvellinum. Félagsstarfið hér er mjög öflugt og við drögum alltaf hverjar spila saman þegar við erum að spila á mánudögum, vanar og óvanar spila saman og þá kynnast líka allar innbyrðis. Þannig að ef þig langar til þess að spila og kíkir inn á golf.is þá getur þú skráð þig með einhverri sem þú þekkir eða spurt á Fésbókarsíðunni okkar hvort einhver sé til í að koma að spila. Sumar vilja líka bara spila einar eða með mönnunum sínum og það er í góðu lagi“. Aldursbilið í hópnum er mjög breitt og eru stelpur frá 25 ára til 65 ára sem spila með í kvennastarfinu. „Við spilum allskonar golf, meðal annars Texas scramble og annað slíkt. Í dag ætlum við að nota band eða „reipi“ þar sem það er kúrekaþema og fær hver og ein helminginn af sinni for- gjöf í formi bands eða spotta og getur notað það til þess að stytta sér leið að holu. Við gerum alltaf eitthvað skemmtilegt“. „Vinaklúbbur okkar er Setbergsvöllur og við förum einu sinni á ári til þeirra og spilum saman og síðan koma þær hingað einu sinni á ári. Við ræsum út með svokölluðu „shotgun“ fyrir- komulagi þar sem að allar eru ræstar út á sama tíma á öllum holum þann- ig að flestar eru búnar á svipuðum tíma, síðan komum við inn og eigum notalega stund saman þegar við erum búnar að spila. Það hefur alltaf farið rúta í þessar ferðir og mætingin hefur verið góð enda ótrúlega skemmtilegur dagur og gaman að hitta konur úr öðrum klúbb til að spila með“. Fuglabúrið er skemmtilegt. Til hliðar má sjá golfkonur á 8. teig í Leirunni. Kúrekaþema var þema dagsins þegar VF leit við. Sigurrós Hrólfsdóttir, formaður kvennaráðs Golfklúbbs Suðurnesja. Frá heimsókn golfkvenna úr Set- bergi í sumar.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Víkurfréttir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.