Víkurfréttir - 30.08.2017, Page 32
32 miðvikudagur 30. ágúst 2017VÍKURFRÉTTIR
Miðvikudagur
Instagramleikur Ljósanætur og Símans
Miðvikudagur 30. ágúst – sunnudags 3. september
#ljosanott2017
Fangaðu Ljósanótt með ljósmynd!
1.Merktu myndina með #ljosanott2017 og settu hana á Instagram.
2. Athugið að Instagramið sé stillt á public.
3. Dómnefnd velur sigurmyndirnar.
Í fyrstu verðlaun er glæsilegur Beoplay A2 hátalari frá Bang &
Olufsen að verðmæti kr. 59.990 sem Síminn gefur. Fleiri vinningar
verða einnig veittir.
Nánar á ljosanott.is
Kl. 18:00 - 20:00
Ljósanæturhlaup Lífsstíls 2017
Staðsetning: Lífsstíll líkamsræktarmiðstöð Vatnsnesvegi 12
Tilvalið fyrir alla fjölskylduna. Hlaupið er um götur Reykjanes-
bæjar. Keppt er í 3 km, 7 km og 10 km. Skráningu á keppnisstað
lýkur kl 17.00. Nánar á hlaup.is.
Kl. 20:00 - 22:00
Með SOUL í auga – Stuð, tregi og urrandi ástarjátningar
Staðsetning: Andrews Theatre Ásbrú
SOUL tónlist allra tíma er viðfangsefni tónleikaraðarinnar ,,Með
blik í auga” þetta árið sem gengið hefur fyrir fullu húsi á Ljósanótt
í Reykjanesbæ undanfarin 6 ár. Einvalalið söngvara og hljóð-
færaleikara tekur þátt í sýningunni og eru söngvarar í ár þau Jó-
hanna Guðrún, Stefanía Svavars, Jón Jónsson, Eyþór Ingi og Helgi
Björns. Hljómsveitarstjóri er Arnór B. Vilbergsson og kynnir er að
venju ólíkindatólið Kristján Jóhannsson sem farið hefur á kostum
hingað til. Sýningar fara fram í Andrews leikhúsinu á Ásbrú og er
frumsýning 30. ágúst kl.20:00. Tvær sýningar verða sunnudaginn
3. september kl. 16:00 og 20:00.
Fimmtudagur
Kl. 10:30 - 11:00
Setning Ljósanætur
Staðsetning: Myllubakkaskóli, Sólvallagötu
Það eru grunnskólabörn bæjarins ásamt elstu börnum leik-
skólanna, alls um 2.500 börn, sem setja Ljósanæturhátíðina
ár hvert. Þau koma fylktu liði í skólalitum hvers skóla, til tákns
um fjölbreytileika mannkynsins, og syngja sig fullum hálsi inn í
Ljósanæturhátíðina.
Kl. 13:00 - 14:00
Ljósanætur púttmót við Mánagötu
Staðsetning: Púttvöllurinn við Mánagötu
Árlegt Ljósanæturmót í pútti á glæsilegum púttvelli við Mánagötu
í boði Toyota í Reykjanesbæ. Allir velkomnir.
Kl. 17:00 - 19:00
Keflavík - NES stórleikur!
Staðsetning: Nettóvöllurinn aðalvöllur Keflavík
Meistaraflokkur Keflavíkur í knattspyrnu tekur á móti Íþrótta-
félaginu NES á Nettóvellinum. Leikir þessara liða hafa ávallt verið
mjög fjörugir og ekkert gefið eftir.
Kl. 17:00 - 20:00
Skotdeild Keflavíkur býður fólki á opinn dag
Staðsetning: Í æfingaaðstöðu Skotdeildar í Vatnaveröld við
Sunnubraut
Opinn dagur fyrir þá sem vilja kynna sér starfsemina og fá að prófa
að skjóta í mark í loftaðstöðunni okkar. Allar helstu skotgreinar
verða kynntar og farið yfir unglingastarfsemi deildarinnar. Hægt
verður að skrá þá unglinga sem vilja æfa í haust en unglingar
greiða hvorki félags- né æfingagjöld og á föstum æfingum í loft-
greinum eru unglingar ekki að greiða fyrir skot eða skífur.
Kl. 17:00 - 19:00
Ljósanæturdiskó fyrir 5. – 7. bekk
Staðsetning: Fjörheimar/88 Húsið - Hafnargötu 88
Hæfileikakeppni, diskó, leikir, kappát, þythokkí, borðtennis,
billiard og fótboltaspil. Frítt inn. Til að skrá sig í hæfileikakeppnina
þarf að finna viðburðinn á ljosanott.is og smella á vefsíðu.
Kl. 18:00 – 20:00
Opnun Ljósanætursýninga Listasafns Reykjanesbæjar
Staðsetning: Duus Safnahús, Duusgötu 2-8
Horfur, Einkasýning Helga Hjaltalíns Eyjólfssonar
(Jaðarsettur) miðaldra karlmaður staðsettur í Höfnum reynir
að útskýra fyrir sér ástand heimsins og hverjar horfunar séu. Í
gegnum miðla myndlistarinnar þreifar hann á og gerir tilraun til að
skilja og læra meira um þessa veröld sem við byggjum.
Glyttur, Einkasýning Elísabetar Ásberg
“Hið óþekkta líf undirdjúpanna hefur ávallt heillað mig. Íbúar
þeirra deila með okkur jörðinni en eru okkur að mestu huldir. Á
þessari sýningu túlka ég þessa nágranna okkar og þeirra töfraver-
öld á huglægan hátt. Sýningin er óður minn til þeirra.”
Blossi, sýning Sossu og Antons Helga Jónssonar
Á sýningunni eru málverk eftir Sossu og innrömmuð ljóð eftir
Anton Helga Jónsson sem snúast um ástar- og hlutverkaleiki
kynjanna. Með bros á vör og lífsgleðina að leiðarljósi hafa þau
dregið upp myndir af alls konar fólki í verkum sínum.
Uppákoma kl. 18:30 fimmtudag.
Próf/Tests, Einkasýning Fríðu Dísar Guðmundsdóttur
Fríða Dís myndlistar- og tónlistarmaður er ef til vill mörgum kunn
fyrir hlutverk sitt sem söngkona hljómsveitarinnar Klassart. Á
sýningunni Próf/Tests er að finna 57 olíumálverk sem hafa að fyrir
mynd 57 þungunarpróf. Hvert málverk táknar einn mánuð í því
57 mánaða ferli sem það tók þau hjónin að verða barnshafandi.
Fimmtudag kl. 18:45 er óvænt uppákoma á sýningunni. Sunnudag
kl. 14:00 er listamannsleiðsögn.
Kl. 19:00 - 21:00
Sundlaugarpartý!!
Staðsetning: Sundmiðstöð Sunnubraut
Sundmiðstöð Reykjanesbæjar býður öllum krökkum í 5.-10. bekk
í sundlaugarpartý í tilefni Ljósanætur. Það verður DJ á staðnum
sem sér um að halda uppi dúndur stemningu í lauginni. Allir að
mæta og hafa gaman. Krakkar í 5.-7. bekk, um að gera að taka
sundfötin með á Ljósanæturdiskóið í Fjörheimum og skella sér
að því loknu í meira fjör í lauginni. Hvernig væri að hvetja bekkjar-
sytkini til að mæta saman? Höfum gaman saman!
Kl. 20:00 - 21:00
Hjólbörutónleikar
Staðsetning: Keflavíkurkirkja
Hinir sívinsælu Hjólbörutónleikar verða á sínum stað á Ljósanótt
í ár en þar munu gleðigjafarnir Arnór B. Vilbergsson, Elmar Þór
Hauksson og Kjartan Már Kjartansson bregða á leik og taka við
óskalögum tónleikagesta. Miðaverð er kr. 1.500 og fer miðasala
fram við innganginn.
Föstudagur
Kl. 07:00 - 09:00
Morgunsund gefur gull í mund. Óvænt uppákoma!
Staðsetning: Sundmiðstöð við Sunnubraut
Óvænt uppákoma verður í Sundmiðstöðinni á föstudagsmorgni
Ljósanætur fyrir hina hressu morgunhana sem þangað mæta. Á
eftir verður boðið upp á kaffi og með því.
Kl. 12:15 - 12:45
Opin söngstund í Ráðhúsi Reykjanesbæjar
Staðsetning: Ráðhús Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12
Bæjarstjórinn stýrir stundinni og dregur vafalaust upp fiðluna
góðu en hann vantar sárlega fleiri hljóðfæraleikara og því hvetjum
við alla sem hljóðfæri geta valdið að mæta á staðinn og “djamma”
með bæjarstjóranum. Við hin sem ekki getum spilað syngjum
með eins og enginn sé morgundagurinn. Söngtextar munu liggja
frammi svo það er bara að mæta á staðinn og njóta stundarinnar.
Kl. 13:00 – 13:30
Út úr skápnum! Bókhaldið opnað.
Staðsetning: Ráðhús Reykjanesbæjar, Tjarnargötu 12
Nú ætti engum að þurfa að leiðast lengur því bókhaldsskápur
Reykjanesbæjar stendur brátt galopinn. Opið bókhald Reykjanes-
bæjar verður formlega sett í loftið föstudaginn 1. september kl. 13
í Ráðhúsinu. Öllum er velkomið að líta við og fylgjast með þessum
tímamótaviðburði og þiggja kaffisopa í góðum félagsskap.
Kl. 13:00 - 17:00
Flóamarkaður
Staðsetning: Hringbraut 108, gamla K-húsið við fótbolta-
völlinn
Eitthvað fyrir alla svo endilega komið og kíkið við. Skart unnið úr
steinum sem tíndir hafa verið á Reykjanesskaganum. Antíkmunir,
fallegar prjónahúfur, alls kyns fatnaður og svo margt, margt fleira.
Hlökkum til að sjá ykkur.
Kl. 13:00 - 16:00
Opinn dagur á Hæfingarstöðinni
Staðsetning: Keilisbraut 755
Opinn dagur þar sem gestir og gangandi geta heimsótt og kynnt
sér starfsemi Hæfingarstöðvarinnar í Reykjanesbæ. Heitt á könn-
unni og Hæfóbúðin opin þar sem hægt er að versla varning og
vörur úr smiðjum Hæfingarstöðvarinnar.
Kl. 16:00 - 19:00
Áheitasjósund sundliðs ÍRB
Staðsetning: Njarðvíkurhöfn og Keflavíkurhöfn
Áheitasjósund ÍRB í samstarfi við Björgunarsveitina Suðurnes.
Sundið er fyrir alla sundmenn í Framtíðar- og Afrekshópi sem
eru fædd 2004 eða fyrr. Synt verður frá Njarðvíkurbryggju og
komið að landi við Keflavíkurbryggju. Sundmenn mæta á Njarð-
víkurbryggju kl. 16 og þaðan verður siglt út að grjótgarðinum við
Víkingaheima þaðan sem sundið hefst.
Kl. 17:00 – 18:00
Í körfunni
Staðsetning: Átthagastofa Bókasafns Reykjanesbæjar
Föstudaginn 1. september kl. 17 opnar sýning um körfuknattleik
í Átthagastofu Bókasafns Reykjanesbæjar. Sýningin varpar ljósi á
þróun meistaraflokka Keflavíkur og Njarðvíkur í karla- og kvenna-
deild. Körfuknattleikur í Reykjanesbæ á sér langa og glæsta sögu
en á sýningunni má sjá búninga frá mörgum tímabilum, skó,
myndir og aðra muni sem tengjast félögunum. Einnig er búið
að safna saman fréttum, myndum og öðru efni úr fréttablöðum
svæðisins. Allir velkomnir.
Kl. 17:00 - 20:00
Sýning á flugmódelum í Reykjaneshöll
Staðsetning: Reykjaneshöll við Krossmóa
Flugmódelfélag Suðurnesja verður með opið hús í Reykjaneshöll-
inni þar sem félagar í FMS fljúga inniflug og stærsta flugmódel
landsins verður til sýnis.
Kl. 18:00 - 21:00
Boxkvöld Ljósanótt
Staðsetning: Boxhöllin, gamla sundhöllin við Framnesveg
HFR heldur upp á Ljósanótt með öllum helstu hnefaleikafélögum
landsins. Hið árlega Boxkvöld verður haldið í Boxhöll bæjarins,
gamla sundhöllin við Framnesveg. Um er að ræða bardaga án
höfuðbúnaðar, í stíl við íþróttina í dag. Fyrir hönd bæjarins keppa
Margrét Guðrún Svavarsdóttir, Helgi Rafn Guðmundsson, Magnús
Marcin Jarzębowicz og Björn Björnsson. Ekki missa af stærsta
boxviðburði ársins.
Kl. 18:15 - 20:30
Tónleikar í tjaldi á Íshússtíg 7
Staðsetning: Íshússtígur 7
Það verður slegið í létta tónleika í stóru samkomutjaldi í garð-
inum að Íshússtíg 7. Þar leika 3 bönd listir sínar, frumsamið
og ábreiður í bland. Böndin 3 eru: Iceland Express, Kylja og
Shitzam.
Kl. 19:00 - 21:00
Kjötsúpa í boði Skólamatar
Staðsetning: Smábátahöfnin í Gróf við Bryggjuballið
Skólamatur býður gestum Ljósanætur upp á hina árlegu og ljúf-
fengu kjötsúpu á föstudagskvöldinu. Allir velkomnir!
Kl. 19:30 - 21:30
Bryggjuball á smábátahöfninni
Staðsetning: Smábátahöfnin í Gróf
Á föstudagskvöldi Ljósanætur verður bryddað upp á léttri tón-
listardagskrá við smábátahöfnina sem við kjósum að kalla
Bryggjuball.
Fram koma:
Bæjarstjórnarbandið sem slegið hefur rækilega í gegn
á undanförnum hátíðum
Eyþór Ingi
Einar Örn ungur heimamaður
Föruneytið sem er skipað snillingunum Hlyni Vals,
Pálmari Guðmunds, Ólafi Þór og Óla.
Þetta verður skemmtilegt!
Kl. 19:30 - 23:00
Pílukastmót
Staðsetning: Hrannargata 6 (Aðstaða Pílufélags Reykjanes-
bæjar)
Keppt verður í 501 einmenning, fyrst riðla- og svo útsláttur. Glæsi-
legur farandbikar og verðlaun fyrir 1. – 4. sætið. Keppnisgjald
er 2.500 kr. Skráning er í síma 660-8172 eða 865-4903 eða á
staðnum til kl 19:00.
Kl. 20:00 - 23:30
Harmonikuball á Nesvöllum
Staðsetning: Nesvellir
Hið árlega harmonikuball Félags eldri borgara á Suðurnesjum
verður á sínum stað á Ljósanótt. Félagar úr félagi Harmonikuunn-
enda á Suðurnesjum mæta eldhressir og halda uppi fjörinu eins
og þeim er einum lagið.
Kl. 20:00 - 03:30
Valdimar á Paddy’s
Staðsetning: Paddy’s, Hafnargötu 38
Óskabörn Keflavíkur, Valdimar, halda heim á slóðir og troða
upp á Paddy’s eins og forðum daga. Þegar þeir ljúka sér af tekur
enginn annar en Dj KGB við og heldur fólki við efnið út nóttina.
Tónleikar hefjast um kl. 22:00. Miðaverð er 2.900kr og einungis
selt við hurð.
Kl. 20:00 - 23:00
Ljósanæturball fyrir 8. - 10. bekk í Stapa
Staðsetning: Stapinn
Fjörheimar kynna, Ljósanæturball í Stapa. Áttan, Herra hnetu-
smjör, Chase, Jói Pé og Óli Geir leika fyrir dansi. Nánar á fjor-
heimar.is
Kl. 20:00 - 21:00
Garðtónleikar The Soundation Project
Staðsetning: Hringbraut 69 í bakgarðinum
Tónleikarnir verða í portinu fyrir aftan hús og er hægt að ganga
inn frá Melteigi. Ókeypis aðgangur en þó er það valmöguleiki að
styrkja bandið sem er að safna fyrir upptökum á lögum.
Kl. 20:30 - 22:00
Garðpartý
Staðsetning: Norðurvöllum 8
Guðlaugur Ómar, Kristín Júl., Bogga Dís og Drífa Kristjáns sjá um
söng og gleði allir velkomnir .
Kl. 21:00 - 23:00
Heima í gamla bænum
Staðsetning: Gamli bærinn og nágrenni
Menningarfélag Keflavíkur stendur fyrir heimatónleikum í gamla
bænum í Keflavík á Ljósanótt þar sem íbúar bjóða fólki heim
í tónleikaveislu. Sjö hljómsveitir leika í fimm húsum í gamla
bænum og nágrenni í Keflavík. Hver hljómsveit leikur tvisvar, 40
mínútur í senn. Dagskrá hefst kl. 21:00 og aftur kl. 22:00. Gestir
geta því valið a.m.k tvenna tónleika eða gengið á milli og fengið
brot af öllu. Fram koma: Par-ðar, Jónína Aradóttir, Bjartmar Guð-
laugsson, Már, Geir Ólafsson og Kristján Jóhannsson, Jón Jónsson,
Pandóra, Ofris, Stebbi og Eyfi. Miðasala á tix.is
Kl. 23:00 - 02:00
Hljómsveitin Feðgarnir
Staðsetning: Tjaldið Kaffi DUUS
Hljómsveitin Feðgarnir föstudag og laugardag í tjaldinu við Kaffi
Duus.
LJÓSANÓTT Í REYKJANESBÆ • DAGSKRÁ • LJÓSANÓTT Í REYKJANESBÆ