Víkurfréttir - 30.08.2017, Qupperneq 50
50 miðvikudagur 30. ágúst 2017VÍKURFRÉTTIR
FRÉTTAVAKT ALLAN
SÓLARHRINGINN
Í SÍMA 898 2222Hafnargata 29 - s. 421 8585
20%
AFSLÁTTUR AF ÖLLUM SKÓM
frá MIÐVIKUDegi TIL SUNNUDAGS
ljósanótt
Opið
Miðvikud., fimmtud., föstud.
og laugard. 11:00 - 22:00
Sunnud. 13:00 - 18:00
Hjómsveitin hefur ekki komið saman
í um 30 ár. Ofris er hljómveit sem átti
stóran aðdáendahóp á árum áður á
Suðurnesjum og víðar. Hljómsveitin
var stofnuð árið 1983 og starfaði til
ársins 1988. Ofris var fyrst og fremst
tónleikasveit sem flutti eigin laga-
smíðar eftir Þröst Jóhannesson, texta-
og lagahöfund. Sveitin var dugleg
að koma fram á tónleikum, bæði á
Suðurnesjum og á höfuðborgarsvæð-
inu.
Hljómsveitin Ofris kemur
saman á ný eftir 30 ára hlé
●● Við●erum●allir●í●fínu●spilaformi●-●segir●●Helgi●Víkingsson●trommuleikari●Ofris
Hjómsveitin Ofris er eitt þeirra tónlistaratriða sem kemur fram á tónleikunum „Heima í gamla bænum“
á Ljósanótt. Hljómsveitin kemur fram á tónleikum sem fara fram í Rokksafni Rúnars Júlíussonar ásamt
hljómsveitinni Pandóru. Hljómsveitina skipa þeir Þröstur Jóhannesson texta- og lagahöfundur, söngvari
og gítarleikari, Magnús Þór Einarsson bassaleikari, Helgi Víkingsson trommuleikari, Kristján Krist-
mannsson hljómborðsleikari og saxófónleikari og Guðmundur Karl Brynjarsson söngvari og gítarleikari.
Hjómsveitin spratt upp úr skóla-
hljómsveitinni „Trassarnir“ sem
æfði og spilaði nokkrum sinnum í
Holtaskóla í Keflavík og kom fram á
skólaskemmtunum í Stapa. Meðlimir
Trassanna voru Þröstur Jóhannesson
söngvari og gítarleikari, Magnús Þór
Einarsson bassaleikari, Helgi Víkings-
son trommuleikari, Jón Helgason
gítarleikari og Júlíus Friðriksson gítar-
og bassaleikari.
Í upphafi var Ofris nýbylgjusveit en
tónlist hennar þróaðist með tímanum
og varð poppaðri með tímanum
og jafnvel með djassívafi á köflum.
Sveitin keppti í Músíktilraunum
Tónabæjar 1985 en komust ekki í úr-
slitakeppnina. Meðlimir hennar þá
voru þá Þröstur Jóhannesson söngvari
og gítarleikari, Magnús Þór Einars-
son bassaleikari og Helgi Víkingsson
trommuleikari. Kristján Kristmanns-
son hljómborðsleikari og saxófón-
leikari bættist í hópinn 1986 og tók
sveitin aftur þátt í músiktilraunum, og
hafnaði þá í 3 sæti. Guðmundur Karl
Brynjarsson gítarleikari og söngvari
bættist í hljómsveitina á svipuðum
tíma.
Sveitin átti sér hliðarútgáfur sem
spilaði á böllum í hinum ýmsu fé-
lagsheimilum og ballstöðum á Suður-
nesjum. Nöfn þeirra sveita voru
hljómsveitin „Ó“, hljómsveitin „Ís-
lensk glíma“ með Guðmund Karl sem
söngvara og „Joe thunderbird and
the pajamas“ með Hermann Karlsson
sem söngvara.
Ofris gaf út plötuna „Skjól í skugga“
sem kom út vorið 1988. Hún var tekin
upp í hljóðverinu Hljóðakletti sem
var í eigu Magnúsar Guðmundssonar
„Þeysara“ sem einnig var útgefandi.
Platan er fyrir margt áhugaverð en um
er að ræða eina síðustu pressuðu vínil-
plötu síðustu aldar þar sem geisla-
diskar tóku öll völd um svipaðan tíma.
Platan er fyrir löngu ófáanleg
„Við komum þar fram ásamt Hljóm-
sveitinni Pandóru sem er að koma
saman eftir 27 ár, þannig að þetta er
nokkuð sérstakur viðburður. Magnús
Einarsson bassaleikari er meðlimur í
báðum þessum hljómsveitum. Hann
er búsettur í Bandaríkjunum og það
verður gaman að hitta hann eftir allan
þennan tíma. Við höfum allir verið að
fást við ýmiskonar tónlistarverkefni
á sitt hvorum vígstöðvunum frá því
að að Ofris tók sér hlé og erum í fínu
spilaformi,“ segir Helgi Víkingsson,
trommuleikari hljómsveitarinnar.
„Ég er í báðum böndunum og spila
því með þeim báðum. Ég er búinn
að spila meira og minna síðan þessar
hljómsveitir fóru í pásu þannig ég er
í ágætri æfingu. Ég hef verið að spila
með nokkrum hljómsveitum í Banda-
ríkjunum þar sem ég hef búið síðustu
ár. Ég ber miklar tilfinningar til beggja
hljómsveitanna. Ég er náttúrulega
einn af stofnendum Ofris og ber því
miklar tilfinningar til hennar og var
í henni frá upphafi þangað til að hún
tók sér hlé. Ég hef líka miklar tilfinn-
ingar til Pandóru og það var mjög
gaman að hitta strákana aftur,“ segir
Magnús Þór Einarsson, bassaleikari.
„Við höfum allir verið að fást við ýmiskonar tónlistar-
verkefni á sitt hvorum vígstöðvunum frá því að að Ofris tók
sér hlé og erum í fínu spilaformi,“ segir Helgi Víkingsson,
trommuleikari“