Víkurfréttir


Víkurfréttir - 30.08.2017, Síða 56

Víkurfréttir - 30.08.2017, Síða 56
56 miðvikudagur 30. ágúst 2017VÍKURFRÉTTIR FRÉTTAVAKT ALLAN SÓLARHRINGINN Í SÍMA 898 2222 Listamaðurinn Ethorio, sem heitir réttu nafni Eyþór Eyjólfs- son, gaf Myllubakkaskóla veggjamynd á dögunum. Með mynd- inni vill hann hvetja nemendurna áfram í skólanum en með persónunum á veggjamyndinni fylgja ýmis skilaboð, til dæmis þau að vera alltaf maður sjálfur og að mennt sé máttur. „Ég hugsaði að það væri gaman að skilja eitthvað jákvætt eftir mig hér í bæ,“ segir Ethorio. Hann reyndi að mála persónur sem krakkarnir könnuðust við og tengja verkið við menntun til að vonandi drífa þá áfram í náminu. „Ég vildi hafa þetta jákvætt og hvetjandi, en á sama tíma litríkt og skemmtilegt, eins og lífið á að vera,“ segir hann. Þetta er þó ekki eina verkið sem Ethorio gefur þessa dagana því Tónlistarskóli Reykjanesbæjar fær einnig verk frá honum. „Það verk var lokaverkefnið mitt á næst síðustu önninni minni í Fjöl- brautaskóla Suðurnesja árið 2013, en það er verkið „Rúnni Júl“. Ég vildi þakka Tónlistarskóla Reykjanesbæjar fyrir mig. Þetta verk er mitt besta, hingað til.“ Leið Ethorio liggur svo til Bretlands eftir tæplega mánuð þar sem hann mun hefja nám á öðru ári í Fine-Art deildinni í listaskól- anum AUB. Art University of Bournemouth. Hann mun dvelja í Bretlandi í tvö ár og klárar þá BA-gráðuna. Fyrir áhugasama verður Ethorio með listasýningu á Ljósanótt, áður en hann heldur á vit ævintýranna í Bretlandi en sú sýning verður að Hafnargötu 20. gott af sér leiða Listamaður sem lætur ●● Ethorio●gefur●Myllubakkaskóla●og●Tónlistarskóla●Reykjanesbæjar●verk●eftir●sig

x

Víkurfréttir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Víkurfréttir
https://timarit.is/publication/1102

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.