Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2018, Blaðsíða 60

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2018, Blaðsíða 60
He lgar ma tur inn 60 9. febrúar 2018 Hrefna og Þorkell eru staðarhaldarar á ROK við Skólavörðuholt Helgarmaturinn að þessu sinni er uppskrift úr smiðju þeirra Þorkels Andréssonar og Hrefnu Bjarkar Sverrisdóttur en þau eru staðarhaldarar á veitinga- staðnum ROK á Skólavörðuholtinu, nánar tiltekið Frakkastígsmegin. ROK var opnað fyrir einu og hálfu ári, eftir að þau Hrefna og unnusti hennar, Magnús Schev- ing athafnamaður, höfðu unnið hörðum höndum að því að koma húsinu í stand. Hrefna hafði þá ver- ið að skima eftir hentugu húsnæði í svolítinn tíma og þótti staðsetn- ingin fullkomin. „Ég bankaði bara upp á og spurði hvort þau væru ekki til í að selja mér húsið,“ segir Hrefna sem er framkvæmdamanneskja í eðli sínu, var til dæmis upphafsmaður og ritstjóri tímaritsins Orðlaus í nokkur ár og rak síðar skemmti- garð fyrir krakka svo sitthvað sé nefnt. Hún segir að húsið hafi verið í mjög slæmu ástandi þegar þau Magnús tóku við því og þá hafi komið sér einstaklega vel að unnustinn sé menntaður húsa- smiður. Ekkert eftir nema hleðslan „Á þessu tímabili var hann samn- ingsbundinn Turner og gat því ekki starfað í þeim geira, nema til að halda fyrirlestra. Þetta kom sér reyndar ágætlega því hann sá alveg um þessar framkvæmdir og þær voru töluverðar. Við þurftum að rífa allt niður og skipta út. Meira að segja jarðvegurinn var endurnýj- aður. Það eina sem við héldum al- veg eftir var hleðslan,“ segir Hrefna en þau Magnús hönnuðu staðinn alveg eftir eigin höfði og er óhætt að segja að þeim hafi tekst sérlega vel upp. ROK er bæði hlýlegur og notalegur staður um leið og hann hefur fágað og fallegt yfirbragð. „Með þessa staðsetningu hér á Skólavörðuholtinu kom eiginlega ekki annað til greina en að halda í gamla stílinn,“ útskýrir Hrefna. „Útgangspukturinn var að bjóða upp á stað sem væri einhvern veg- inn mitt á milli þess að vera klassa veitingastaður, þar sem hægt er að fá sér gott að borða og ljúffenga kokteila, og skemmtilegur bar þar sem hægt er að skreppa með vinum í drykki og fá sér kannski eitthvað í svanginn án þess að þurfa að borga fjögur eða fimm þúsund krónur fyrir réttinn,“ segir Hrefna en þau Þorkell hafa sett saman mjög fjölbreyttan matseðil þar sem hægt er að velja á milli 35 rétta. „Við erum alltaf að bæta og laga matseðilinn en þessi stefna, að bjóða upp á úrval léttari rétta, gefur okkur ákveðið frelsi. Með því er ég reyndar ekki að segja við séum alltaf að breyta matseðlinum, en við getum leyft okkur að bæta inn nýjum rétt- um ef tilefni er til. Síðasta sumar gátum við til dæmis boðið upp á villtan lax og núna erum við með æðislega góðar ostr- ur á föstudögum, einfaldlega af því að okkur áskotnaðist þetta ljúfmeti.“ Eldavélarnar lögfræðinni yfirsterkari Þorkell, meðeigandi Hrefnu og yfirmatreiðslumaður á ROK, hefur áður starfað víða í veitingageiran- um. Meðal annars á Sjávarkjall- aranum, La Primavera, VOX og fleiri stöðum en árið 2006 venti hann kvæði sínu í kross og fór að læra lögfræði. Hann útskrifaðist með meistarapróf 2012 og starfaði í faginu í um tvö ár, eða þar til segulmagn eldavélanna dró hann aftur til sín. „Þegar maður er búinn að vera í þessu fagi svona lengi, og ná upp ákveðinni færni, þá myndast þörf til að sinna þessu. Maður saknar stressins og stemningarinnar í eldhúsinu enda er kokkastarfið eiginlega eins og sjúkdómur sem er erfitt að losna við,“ segir Þorkell og vindur að lokum talinu að upp- skriftinni sem lesendur geta spreytt sig á um helgina en hér erum við með lambakótelettur með mið- austurlensku yfirbragði. „Íslenska lambakjötið er ofsalega gott hráefni en hingað til hefur framsetningin á því verið heldur einhæf, bæði í heima- og veitingahúsum. Með þessari samsetningu langar mig að draga fram aðra stemningu, enda er matarmenningin fyrir botni Miðjarðarhafs alveg einstaklega skemmtileg.“ UPPSKRIFT LambaKóTeLeTTUR með ReyKTRI PaPRIKU og mynTU, FeRSKU hRáSaLaTI og hUmmUS maRIneRIng FyRIR LambaFILLeT n 5 hvítlauksgeirar n 3 stilkar af fersku timjan n 1 tsk. reykt paprika n 100 ml sólblómaolía aðFeRð Þrjár lambakórónur. Fituröndin er tekin af lambinu og öll auka fita milli rifjanna er hreinsuð frá með beittum hníf. Síðan er lambið lagt í marineringuna og látið liggja í henni yfir nótt inn á kæli. Síðan er filletið skorið í sneiðar á milli hverrar rifju fyrir sig. Þá er kótelettan steikt á pönnu á miðlungs hita. aIoLI n 2 eggjarauður n 120 ml sólblómaolía n 6 hvítlauksgeirar, rifnir í zest-járni n 2 lime, safinn notaður n Salt eftir smekk Allt sett í skál og unnið saman rólega með töfrasprota. FeRSKT hRáSaLaT n 1/4 rauðkálshaus, rifinn í mandólíni n 1/4 hvítkálshaus, rifinn í mandólíni n 4 msk. Aioli n 10 myntulauf, fínt söxuð n 1/4 tsk. reykt paprika n Salt eftir smekk -Öllu blandað saman og kælt hUmmUS 1 lítil dós af kjúklingabaunum, sigtað en geyma vatnið 100 g thaini-mauk 50 ml jómfrúarolía 3 hvítalauksrif, rifið í zest-járni Safi úr einni sítrónu Salt aðFeRð Allt er sett í matvinnsluvél og unnið saman. Síðan má bæta smávegis af vatninu af kjúklingabaununum til að fá rétta áferð, sem á að vera silkimjúk eins og rjómi. Við framreiðslu er gott að setja smá jómfrúarolíu og fínt skorna myntu ofan á hummusinn. „Við erum alltaf að bæta og laga matseðilinn en þessi stefna, að bjóða upp á úrval léttari rétta, gefur okkur ákveðið frelsi. Rok veitingahús Frakkastíg 26a, 101 Reykjavík Sími: 544 4443 Rjúkandi góðar kótelettur með hummus Myndir DV ehf / Sigtryggur Ari
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.