Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2018, Qupperneq 41

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2018, Qupperneq 41
KYNNING UnnUr Óla einkaþjálfari: Frábært að sjá fólk ná markmiðum sínum Þetta er mjög gefandi starf. Mér finnst þetta algjört æði. það er svo frábært að geta hjálpað fólki og gert því kleift að ná mark- miðum sínum, en vanalega komum við okkur saman um markmið sem viðkomandi ætlar sér að ná á tiltekn- um tíma, en mikilvægt er að setja sér skammtíma sem og langtíma markmið sem eru raunhæf,“ segir Unnur Óla, einkaþjálfari í Sporthúsinu kópavogi. Unnur, sem verður þrítug á þessu ári, hefur stundað íþróttir og líkamsrækt frá unga aldri. Hún hefur keppt á 12 fitness-mótum frá árinu 2008 og orðið bæði Íslandsmeistari og bikarmeistari í módelfitness. þrátt fyrir mikla keppnisreynslu liggur áhugi Unnar fyrst og fremst í bættri heilsu og auknum lífsgæðum, eða eins og Unnur segir: „að líða vel í eigin skinni er ekki sjálfgefið og þarf í mörgum tilfellum hjálp við það.“ það lá því beint við fyrir hana að fara í nám í einkaþjálfun og útskrifaðist hún með einkaþjálfararéttindi frá íþróttaakademíu keilis í janúar 2016. Skömmu síðar gerði hún samning við Sporthúsið í kópavogi og hefur síðan þá starfað við einkaþjálfun með frá- bærum árangri. að sögn Unnar er fjölbreyttur hópur fólks hjá henni í einkaþjálfun, bæði konur og karlar, og með mis- munandi markmið eftir ólíku ástandi sínu. „Meirihlutinn er samt með þessi týpísku markmið, að vilja missa kíló, styrkjast og auka þol. en ég er líka með nokkra sem vilja bæta á sig vöðvamassa, styrkja og móta lík- amann, sem og fólk með einhvers konar meiðsli sem þarf að vinna með. það hendir að grannvaxið fólk sé ekki í góðu formi og skorti mjög vöðva- styrk og þol þó að óneitanlega þurfi meirihlutinn að missa fitu en allir eiga það sameiginlegt að vilja líða vel líkamlega og andlega og er mikilvægt að einblína ekki bara á einhverja tölu á vigtinni,“ segir Unnur. „Mataræðið skiptir gríðarlega miklu máli, miklu meira máli en ég held að fólki geri sér grein fyrir en það virðist vera það sem flestum finnst hvað erfiðast, það er svo mikilvægt að hver og einn finni sinn gullna meðalveg í mataræði, því boð og bönn eru ekkert spennandi en það hentar ekki öllum það sama.“ þeir sem æfa hjá Unni eru alla jafna mjög lengi hjá henni í þjálfun sem vekur hjá henni ánægju: „þetta segir manni að maður sé að gera eitthvað rétt. Örfáir hafa verið skemur hjá mér en í þrjá mánuði og ég er með marga sem hafa verið hjá mér í yfir ár. það er einstaklingsbundið hvað fólk þarf langan tíma undir handleiðslu einkaþjálfara. Sumir þurfa bara einn mánuð til að koma sér í gang eftir til dæmis frí, veikindi eða hreinlega til að fá fjölbreytni í æf- ingarnar sínar, en hafa sjálfstraustið og agann til að halda síðan áfram sjálfir. á meðan aðrir hafa minni vilja- styrk og þurfa miklu meira og lengra aðhald.“ Unnur Óla býður bæði upp á einkaþjálfun og þjálfun í litlum hópum. Til að panta þjálfun eða fá nánari upplýsingar er best að senda tölvupóst á netfangið unnurola@unnurola.is, hringja í síma 660-6433 eða senda skilaboð á Facebook-síðunni www.facebook. com/UnnurOla. Unnur er líka með opinn Snapchat-aðgang þar sem nokkur þúsund manns fylgjast með henni daglega, SC: unnurolaiak, sem og Instagram.com/unnurola.is.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.