Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2018, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2018, Blaðsíða 12
12 9. febrúar 2018fréttir Gera það gott í Hollywood Þ úsundir leikara streyma til Hollywood á degi hverjum í von um frægð og frama en fæstir komast þó í gegn- um nálaraugað. Allt frá því á sein- ustu öld hafa þónokkrir íslenskir leikarar freistað gæfunnar vestan- hafs með misjöfnum árangri. Þó svo að sumum hafi tekist að landa fleiri en einu hlutverki er vart hægt að segja að einhverjum hafi tekist að „meika það“ eins og sagt er og byggja upp alvöru stjörnu feril. Að minnsta kosti ekki hingað til. DV tók saman nöfn nokkurra ís- lenskra leikara og leikkvenna sem hafa verið að gera það gott í skemmtanabransanum vestan- hafs undanfarin misseri. n Auður Ösp Guðmundsdóttir audur@dv.is Hera Hilmarsdóttir Óhætt er að segja að frægðarsól Heru Hilmarsdóttur hafi risið ansi hratt undanfarin misseri. Árið 2012 hreppti hún lítið hlutverk í bresku stórmyndinni Anna Karenina, þar sem Keira Knightley og Jude Law fóru með aðalhlutverkin, og eftir það fór boltinn að rúlla. Hún fór með stórt hlutverk í ævintýraþáttaseríunni Da Vinci's Demons og þá lék hún á móti Josh Hartnett og Ben Kingsley í myndinni The Ottoman Lieutenant. Því næst tók við hlutverk þjónustustúlkunnar Tönju í spennutryllinum An Ordinary Man þar sem Hera lék í annað sinn á móti Ben Kingsley. Þá var greint frá því í fyrra að Hera myndi fara með eitt af aðalhlutverkunum í Mortal Engines, nýjustu mynd Peters Jackson, sem gerði þríleikinn um Hringadróttinssögu og Hobbitann. Darri Ingólfsson Darri lærði leiklist í Bretlandi en hefur undanfarið ár búið og starfað í Engla- borginni. Árið 2012 fór hann með auka- hlutverk í þáttunum Last Resort, stórri framleiðslu á vegum ABC-sjónvarps- stöðvarinnar en þáttaröðin varð þó ekki langlíf og var framleiðslu hætt eftir aðeins 13 þætti. Nafn Darra rataði síðan í fréttir hérlendis árið 2013 þegar ljóst var að hann myndi fara með hlutverk geðtruflaða morðingjans Olivers Saxon í áttundu þáttaröðinni af Dexter. Hann hefur síðan þá komið fram í aukahlut- verki í nokkrum sjónvarpsþáttaröðum vestra á borð við Haven, NCIS: Los Ang- eles, Criminal Minds auk þess sem hann er í stærri hlutverkum í þáttaröðunum Sequestered og The Originals. Einar Gunnar Einarsson Einar Gunnar, sem notast við listamannsnafnið Einar Gunn, hefur verið búsettur í Bandaríkjunum undanfarna þrjá áratugi og starfaði lengi vel í auglýsingabransanum áður en hann fór að starfa sem aukaleikari. Á síðustu tíu árum hefur hann landað fjölmörgum litlum hlutverkum í bandarískum sjónvarpsþátt- um á borð við The Mysteries of Laura og The Blacklist auk þess sem hann fór með hlutverk prests í Michael J. Fox Show. Þá hefur hann einnig stigið á svið á Broadway í leikritinu A Man for All Seasons og farið með hlutverk í þættinum The Men Who Built America sem sýndur er á History Channel. DV ræddi við Einar á síðasta ári en þá hafði hann landað litlu hlutverki í hinum geysivinsælu sjónvarpsþáttum Law and Order: Special Victims Unit. „Það eru margir um hituna fyrir hvert hlutverk. Það eru yfirleitt um 500–2.000 umsóknir sem berast varðandi hvert hlutverk og af þeim komast yfirleitt 6–12 í prufur. Síðan komast tveir á lokastigið og einn hreppir hnossið. Líkurnar á að hreppa hlutverk eru því ekki miklar,“ sagði Einar aðspurður um samkeppnina í Hollywood. Næsta verk- efni Einars er þó á íslenskri grundu en hann fer með hlutverk í væntanlegri kvikmynd leikstjórans Baldvin Z, Lof mér að falla. Unnur Eggertsdóttir Unnur Eggertsdóttir útskrifaðist úr leiklistarnámi í New York árið 2016 og elti í kjölfarið leikkonudrauminn til Hollywood. Hún er nú á föstum samn- ingi hjá umboðsskrifstofu ytra og sæk- ir prufur af kappi. Stærsta hlutverkið til þessa er í annarri þáttaröðinni af Murder Among Friends en þættirn- ir eru sýndir á sjónvarpsstöðinni Investigation Discovery og hafa notið mikilla vinsælda. Þá fer Unnur einnig með lítið hlutverk í kvikmyndinni The Mystery of Casa Matusita II: The Five Guests sem meðal annars skartar Malcolm McDowell í aðalhlutverki. Ólafur Darri Ólafsson Fáir íslenskir leikarar hafa notið álíka velgengni í Hollywood og Ólafur Darri Ólafsson og er nú svo komið að hann starfar mestmegnis í Banda- ríkjunum. Hann fór með stórt hlutverk í fyrstu og annarri seríu bandarísku grínþáttanna Lady Dynamite og þar á undan fór hann með hlutverk í þáttaröðinni Emerald City á vegum sjónvarps- stöðvarinnar NBC. Meðal annarra verkefna má nefna sjónvarpsþáttaraðirnar The Missing og Banshee að ógleymdum stórmyndunum Zoo- lander 2, The Secret Life of Walter Mitty og Walk Among the Tombstones en þess ber að geta að gagnrýnandi The Hollywood Reporter fór fögrum orðum um frammistöðu Ólafs Darra í myndinni. Síðar á árinu verða frumsýndar fjórar Hollywood-kvikmyndir þar sem Ólafur Darri fer með hlutverk. Um er að ræða bandarísk-skosku spennumyndina Keepers, spennumyndina The Meg og ævintýramyndina Fantastic Beasts: The Crimes of Grindelwald sem byggir á bók rithöfundarins J.K. Rowling og er framleidd af Warner Bros. Þá má ekki gleyma spennu-/gamanmyndinni The Spy Who Dumbed Me þar sem stórstjörnurnar Mila Kunis og Gillian Anderson fara með aðalhlutverkin. Jóhannes Haukur Jóhannesson Jóhannes Haukur hefur fyrir löngu skapað sér sess sem einn af vinsælustu karlleikurum íslensku þjóðarinnar og þá hefur hann einnig verið að gera það gott í Bandaríkjunum sem kvikmynda- og sjónvarpsleikari. Stóra tækifærið kom árið 2015 þegar hann var ráðinn í hlutverk Tómasar, sem var einn af lærisveinum Jesú í þáttunum A.D. The Bible Continues. Ári síðar landaði hann stóru hlutverki í annarri þáttaröð, The Last Kingdom, sem er framleidd af BBC og Netflix. Síðar á þessu ári má sjá Jóhannesi Hauki bregða fyrir í hlutverki hollenska skipstjórans J. Rouverol í kvikmyndinni Where'd You Go, Bernadette sem meðal annars skartar Cate Blanchett, Kristin Wiig, Billy Crudup og Laurence Fishburne í aðalhlutverkum. Þá fer hann með eitt af aðalhlutverkunum í spennutryllinum Alpha sem væntanlegur er í kvikmynda- hús í mars næstkomandi, en leikstjóri myndarinnar er Albert Hughes sem meðal annars leikstýrði The Book of Eli með Denzel Washington og From Hell með þeim Johnny Depp og Heather Graham. Síðar á árinu verður síðan frumsýnd kvikmyndin The Sisters Brothers en Jóhannes Haukur er þar í góðum félagsskap stórstjarna á borð við Jake Gyllenhaal, Joaquin Phoenix, John C. Reilly og Riz Ahmed. Tómas Lemarquis Tómas Lemarquis er einna þekktastur hérlendis fyrir hlutverk sitt sem Nói albínói í samnefndri kvikmynd. Hann hefur undanfarin ár notið mikillar velgengi sem leikari í Evrópu og jafnframt fengið nokkur tækifæri í Hollywood. Árið 2013 landaði hann stóru hlutverki í spennumyndinni Three Days to Kill með bandaríska stórleikar- anum Kevin Costner. Þá fór hann með hlutverk Calibans í myndinni X-Men: Apocalypse og í fyrra lék hann í Hollywood-myndinni Blade Runner. Í samtali við Morgunblaðið í fyrra sagði Tómas frá því hvernig hann fékk hlutverkið með krókaleiðum. „Þetta var góð lexía varðandi það að gefast aldrei upp og missa aldrei sjónar á draumi mínum.“ Láttu þér ekki vera kalt Sími 555 3100 www.donna.is hitarar og ofnar Olíufylltir ofnar 7 og 9 þilja 1500W og 2000 W Keramik hitarar með hringdreifingu á hita Hitablásarar í úrvali Ný vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.