Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2018, Blaðsíða 66

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2018, Blaðsíða 66
66 lífsstíll - kynlíf 9. febrúar 2018 „Allt hefur gengið vel þangað til fyrir um sex mánuðum að þá hætti ég alveg að geta fengið sáðlát með konunum Elsku Friðrik T akk kærlega fyrir bréfið. Ég ætla að byrja á öfugum enda og skrifa ögn um það sem þú minnist á síðast í bréfinu – að ástkonurn- ar viti hver um sig ekki af tilvist hinna. Kannski skiptir þetta engu máli, en mig langar bara að minna þig á hvað það er frábært að þurfa ekki að fela neitt og lifa í sannleikanum. Ef konurnar þínar þrjár gera hver um sig ráð fyrir því að þú sért þeim trúr, ráðlegg ég þér að koma út úr skápnum með sannleikann. Það er svo glatað að þurfa að laumast, kíkja yfir öxlina á sér og ganga stöðugt úr skugga um að þú sért ekki að afhjúpa þig. Fjöldi fólks kann prýðilega við að eiga sér kyn- lífsleikfélaga án þess að um einkarétt sé að ræða, en flestir kjósa að hafa sann- leikann að leiðarljósi og fyrir því eru tilf- inningalegar og heilsufarslegar ástæður. Ræddu þetta við dömurnar þínar þrjár – kannaðu hvort einhver þeirra gengur um með brúðkaupsóra og drauma um að skrifa undir húsnæðislán með þér hið fyrsta. Ef ekki þá er allt í góðu og þú heldur þínu þrefalda striki vinur minn. Að sáðlátinu – eða vöntuninni á því með dömunum þínum. Fyrirbærið kall- ast seinkað sáðlát og er vel þekkt vanda- mál hjá körlum (1–4%), þó að það sé alls ekki eins algengt og of snemmt sáðlát (15–30%). Formlega skilgreiningin er sú, að taki það 30 mínútur eða meira fyrir karlmann að fá sáðlát í samförum, þrátt fyrir fullnægjandi stinningu, sé hægt að líta svo á að sáðlátið sé seinkað. Auð- vitað fer svo algerlega eftir afstöðunni að hvaða marki karlmaðurinn upplifir þetta sem vandamál. Góður vinur minn er hæstánægður með að hafa samfarir tímunum saman, en hefur reyndar að- eins einu sinni hitt fyrir konu sem kunni til fulls að meta þann eiginleika. Ef þú hefur fram að þessu stundað þitt kynlíf með sterkan fókus á fullnægingu og sáðlát í samförum sem markmið get ég skilið að það sé ákveðið sjokk að gamla góða hjakkið sé skyndilega hætt að virka. Breytingin veldur þér ama, líka viðbrögð ástkvennanna sem halda að þú sért orðinn afhuga þeim … og samanlögð niðurstaða verður frammistöðukvíði sem er byrjaður að krauma innra með þér. Á bak við seinkað sáðlát geta legið ýmsar líkamlegar ástæður til að mynda aukaverkanir lyfja, taugaskemmdir, lækk- að testósterón eða skjaldkirtilshormón, sýkingar í blöðruhálskirtli eða þvagfær- um. Ef þú telur einhvern möguleika á slíku væri ráð að leita til heimilislæknis. Ef það er hins vegar klárt mál að ekk- ert líkamlegt liggi að baki er bara það andlega eftir. Þú segir allt hafa gengið að þínum óskum þar til fyrir hálfu ári þegar þú gast skyndilega ekki fengið það lengur „sjálfur“. Ég get ímyndað mér að eftir fyrsta skiptið hafi lítill áhyggjusnjó- bolti rúllað af stað og orðið til þess að auka líkurnar á því að þetta gerðist aftur. Áhyggjur, streita og sambandsvandamál geta haft áhrif. Skoðaðu hvað er að ger- ast innra með þér og hvort eitthvað þar gæti tengst ástandinu. Ef hvorki gengur né rekur gæti borgað sig að kanna málið frekar með aðstoð ráðgjafa. Hver sem hin raunverulega ástæða er getur eftirfarandi verið gagnlegt fyrir þig á þessu stigi: Reyndu að endurskilgreina markmið kynlífsins og njóta frekar en að stefna að sáðláti í samförum. Kannaðu hvort ástkonunum gæti þótt gaman að sjá þig „klára“. Margar konur njóta þess að horfa á karlmenn fróa sér. Útskýrðu breytingarnar sem þú ert að upplifa fyrir ástkonunum. Segðu þeim það sem þú skrifaðir mér í bréfinu – að þú sért alveg jafnsjúkur í kynlífið … en eitthvað valdi því að þú færð ekki sáðlát á sama hátt og áður. Einlægni er sexí! Gangi þér sjúklega vel, Ragga Friðrik fær það ekki með ástkonum sínum n Stundar kynlíf með þremur konum n Vita ekki af hver annarri Blessuð og sæl Ragga Ég er 46 ára og bara í þokkalegu ástand i líkamlega sem andlega. Ég er einhleypu r og vil halda því þannig, en ég á þrjár vinko nur sem eru á sama stað og ég – vilja bara „single“-lífið – og ég hef verið að sofa h já þeim í nokkur ár (í sitthvoru lagi), svon a þegar þeim hentar og öfugt. Allt hefur gengið vel þangað til fyrir um sex mánuðum að þá hætti ég alveg að g eta fengið sáðlát með konunum. Ég æsist a lltaf jafn mikið upp við að hitta þær og rís ho ld, svo get ég verið að eins lengi og ég hef þ rek til, en þetta er farið að valda ákveðnum vandræðum. Núna eru vinkonur mínar farnar að spyrja hvort ég sé að missa áhugann á þ eim, en það er fjarri lagi, áhuginn er jafnmik ill og í byrjun, og neistinn jafnvel sterkari. En ef ég á að geta klárað þá verð ég að sjá u m það með sjálfum mér. Ég er búinn að fa ra yfir síðasta ár í þaula og það hefur ekker t gerst, breyst, eða komið upp á andlega e ða líkam lega sem ég kem auga á. Um dagin n fór ég til dæmis heim með konu sem ég hitti á skemmtistað og allt gekk eins og í sögu nema þetta, ég náði ekki að klára sjálfur . Þetta hljómar kannski eins og mað- ur sé með egóið í hæstu hæðum og þar af leiðandi óþolandi týpa, en svo er nú ekki. Ég hef alltaf verið kurteis og kunna ð mannasiði. En þetta er að eyðileggja fyr ir mér og ég veit bara ekki hvað skal taka til bragðs. Eitt enn er að þær vita ekki af tilvist hinna. Veit bara ekki hvernig ég get lýst þessu betur fyrir þér. Er allur af vilja ger ð- ur að gera það sem til þarf til að koma m ér í lag hvað þetta varðar. Vesenið hlýtur a ð vera á mína ábyrgð. Ég yrði agalega þak k- látur ef þú gætir gert eitthvað til að aðst oða mig í þessu Ragga. Óvenjuleg blæti Blæti er íslenskun á orðinu „fetish“ en það er notað þegar einstaklingur örvast kynferðislega af athöfn, hlut eða líkamsparti sem hefur ekki kynferðislega skírskotun í huga þorra fólks. Blæti sýna okkur eina ferðina enn fram á hinn magnaða og heillandi fjölbreytileika kynlífs. Hér eru nokkur sem þú hefur kannski ekki heyrt um. n Agalmatophilia - að örvast af styttum. n Climacophilia - að örvast af því að detta niður stiga. n Formicophilia - að örvast af skordýrum. n Knismolagnia - að örvast af því að einhver kitli mann. n Nebulophilia - að örvast af þoku. n Psychrophilia - að örvast af því að vera kalt og sjá aðra sem er kalt. n Vorarephilia - að örvast af tilhugsun um að borða líkamsparta einhvers. n Xylophilia - að örvast af við. Áhugasömum má benda á bókina PERV: The Sexual Deviant in all of us eftir Jessie Bering (2013).
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.