Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2018, Blaðsíða 68

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2018, Blaðsíða 68
68 lífsstíll Helgarblað 9. febrúar 2018 Staðir Sem þú ættir að heimSækja B enidorm, London, Kanarí- eyjar og New York. Allt eru þetta vinsælir ferðamanna- staðir og góðir og gildir sem slíkir. Sífellt fleiri fara í ferðalög út fyrir landsteinana; framboðið á flugi eykst ár frá ári, verðið lækk- ar og ferðamenn opna augun fyrir nýjum áfangastöðum. Um allan heim eru til fallegir staðir sem líklega verða vinsælir meðal ferðamanna áður en langt um líður, en eru kannski enn til- tölulega lítt þekktir sem ferða- mannastaðir. Þar af leiðandi er verð lægra og fjöldi ferðamanna hóflegur sem margir hljóta að sækjast eftir. Ferðavefurinn Thrillist tók saman nokkra þessara staða og óhætt að segja að þeir hafi upp á margt að bjóða. n Kólumbía Kólumbía er eitt af 30 fjölmennustu ríkjum heims. Af kannski skiljan- legum ástæðum hefur ferðamannageirinn ekki beint blómstrað undanfarna áratugi en það kann að fara að breytast. Eftir ólgusöm ár virðist stöðugleiki vera að komast á í þessu fallega landi sem liggur að Kyrrahafinu og Karíbahafinu. Í Kólumbíu geta allir fundið eitt- hvað við sitt hæfi; fallegar strendur, fallegar borgir, menningarlíf, útivist og svo framvegis. Hvernig kemst ég þangað? Líklega er best að fljúga í gegnum Bandaríkin þegar farið er til Kólumbíu. Hægt er að fljúga þaðan til borga eins og Bogota og Cartagena. Asóreyjar, Portúgal Asóreyjar er einn afskekktasti eyja- klasi heims og tilvalinn fyrir þá sem vilja fá frið frá skarkala borgar- eða strandlífsins. Um er að ræða níu eyja klasa í miðju Norður- Atlantshafinu. Eyjarnar fundust árið 1427 og þykja afar fallegar og tilvaldar fyrir þá sem vilja vera úti í náttúrunni og upplifa eitthvað öðruvísi. Veður er með ágætum á þessum slóðum og er hitinn yfirleitt í kringum 20 gráður yfir sumartímann. Hvernig kemst ég þangað? Það þarf að leggja á sig talsvert ferðalag til að komast til Asóreyja. Hægt er að fljúga til dæmis frá Frankfurt og Lissabon. Belgrad, Serbíu Á undanförnum árum hafa áfanga- staðir í Austur-Evrópu notið sífellt meiri vinsælda. Hér er til dæmis um að ræða borgir á borð við Vilníus, Ríga, Gdansk og Katowice. Belgrad í Serbíu er borg sem nýtur vaxandi vin- sælda enda hafa breytingar til hins betra orðið í Serbíu eftir fall Júgóslavíu og titringinn sem fylgdi í kjölfarið. Belgrad er falleg borg þar sem nóg er að skoða, verð er hagstætt, fjöl- breyttar verslanir, þarna eru góðir veitingastaðir og djammið er líklega hvergi mikið betra. Hvernig kemst ég þangað? Hægt er að fara til Belgrad frá mörgum evrópskum flugvöllum, til dæmis Amsterdam, Gautaborg, London, München og Frankfurt. Þessalóníka, Grikklandi Aþena, Krít og Santorini. Allt eru þetta vinsælir ferðamannastaðir í Grikklandi en öllu minna hefur farið fyrir Þessalóníku, einni stærstu borg Grikklands. Þessalóníka er hrein og falleg borg, stútfull af fallegum byggingum og fornum byggingar- ústum. Þó að Þessalóníka sé forn borg er hún í senn nútímaleg, enda eyðilagðist stór hluti hennar í bruna árið 1917. Um 70 þúsund manns misstu heimili sín og 9.500 hús gjöreyðilögðust. Þessalóníka er stund- um sögð minna á Barcelona og heimamenn segja að maturinn sé hvergi betri. Þá er stutt í rólegar strendur sem er aldrei slæmur kostur. Hvernig kemst ég þangað? Auðvelt er að komast til Þessalóníku frá fjölförnum flugvöllum í Evrópu, til dæmis München. Tíblisi, Georgíu Tíblisi í Georgíu kemur væntanlega ekki fyrst upp í huga fólks þegar skoð- aðar eru borgarferðir. Tíblisi er sögufræg borg í Austur-Evrópu og má segja að í gömlu borginni mætast asískur og evrópskur stíll. Rúm ein milljón íbúa býr í Tíblisi; verðlag er hagstætt, maturinn góður, þarna er nóg að skoða og veðrið yfir sumartímann er yfirleitt frábært. Ekki þykir verra að næturlífið í Tíblisi er fjörugt. Hvernig kemst ég þangað? Ekki er flogið beint til Tíblisi frá Íslandi. Auðvelt er þó að verða sér út um tengiflug til borgarinn- ar, til dæmis í gegnum München. Einar Þór Sigurðsson einar@dv.is áður en þeir verða of vinsælir
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.