Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2018, Blaðsíða 23
9. febrúar 2018 fréttir 23
Veganforeldrar og veganbörn
J
ónína Ásdís hefur verið vegan
í tæp fimm ár. Fyrir um tíu
árum varð hún svo kölluð
„pescetarian“ sem þýðir að
hún borðaði ekki rautt kjöt eða
fuglakjöt, en borðaði fisk, egg og
mjólkurvörur. Fannar Örn, maður
Jónínu, varð vegan ári á eftir henni.
Jónína og Fannar eiga saman tvo
syni. Ómar Örn, sem verður sjö
ára í júlí, og Jón Leó, sem verð-
ur fjögurra ára í ágúst. Ómar Örn
var „pescetarian“ frá fæðingu og
þar til hann var 21 mánaða. Síð-
an þá hefur hann verið vegan. Jón-
ína var vegan þegar hún gekk með
Jón Leó og hefur hann verið vegan
frá fæðingu. Jónína segir heilsu
drengjanna vera til fyrirmyndar og
að heilsa Ómars Arnar hafi batnað
töluvert við að verða vegan. Hann
glímdi við exem og meltingar-
vandamál sem barn.
Jónína leggur mikið upp úr heil-
brigðu og næringarríku mataræði.
Synir hennar hafa aldrei fengið
sykur eða glútein og aldrei smakk-
að nammi. „Þeir eru aldrei út und-
an og upplifa sig aldrei út undan
því þeir eru ánægðir með það sem
þeir eru með,“ segir Jónína. „Veg-
anlífsstíll er svo fallegur og mér
finnst ég vera að gefa drengjunum
mínum ótrúlega fallega hugsun.“
Breytti mataræðinu fyrst 13 ára
Þegar Jónína var yngri spáði hún
mikið í mataræði, næringu og
heilsu. Þrettán ára hætti hún að
borða nammi, snakk og gos og
hefur ekki snert það síðan.
„Ég hef alltaf vitað að mig langar
ekki að smakka áfengi, drekka gos
eða prófa önnur vímuefni,“ seg-
ir Jónína. „Ég pældi mikið í heilsu
og geri það enn. Það eru alls konar
sjúkdómar í fjölskyldu minni, eins
og sykursýki og gigtarsjúkdómar.
Ég er sjálf með liðagigt, vefjagigt,
viðkvæman maga og meltingar-
færasjúkdóm. Þegar ég varð vegan
tók ég einnig út glúten, sykur og
viðbætta sætu. Það hafði heilmik-
il áhrif á allt líf mitt,“ segir Jónína
og bætir við:
„En ég breytti upphaflega um
mataræði út af dýrunum. Mér hef-
ur aldrei fundist glóra í að borða
dýr. Þegar ég var yngri þurfti alltaf
að skera kjötið mjög vel fyrir mig.
Ef ég sá bein eða blóð þá gat ég
ekki borðað það. Mér hefur alltaf
þótt mjög vænt um dýrin. En ég
hafði ekki hugmynd um að það
væri hægt að sleppa því að borða
kjöt, ég vissi ekki hvað væri að vera
vegan.“
Jónína segir að eftir að hún
varð vegan nái hún að halda liða-
gigtinni og maga- og meltingar-
vandamálum í skefjum. Hún var
á steralyfjum og lyfjum við maga-
vandamálum en þarf ekki að taka
þau lengur inn.
Að vera vegan og borða hollt
helst þó ekki endilega í hendur að
sögn Jónínu. „Þótt fólk sé vegan
þýðir það ekki endilega að það sé
að borða hollt. Vegan segir í raun
ekki hvað maður borðar, heldur
hvað maður borðar ekki. Það er
svo ótrúlega margt sem fólk getur
borðað sem er ekki dýr eða dýra-
afurðir, þannig að veganfólk er á
alls konar mataræði.“
Heilsa barnanna mikið betri
Jónína Ásdís segir að heilsa Ómars
Arnar hafi skánað til muna eft-
ir að hann varð vegan. „Mig hafði
grunað að Ómar væri með mjólk-
uróþol þegar hann var yngri.
Hann hafði aldrei drukkið mjólk
en hann borðaði ost. Hann átti
erfitt með svefn og var með exem.
Hann gat ekki verið í bíl, var með
mikla eyrnabólgu og leið illa. Eft-
ir að hann varð vegan, þegar hann
var 21 mánaða, þá hvarf exem-
ið. Hann fór einnig að sofa mik-
ið betur og heilsa hans og líðan
varð yfirhöfuð mikið betri. Yngri
strákurinn hefur alltaf verið vegan
og þekkir ekkert annað. Hann
er einnig mjög hraustur og heil-
brigður.“
Skoðaði leikskóla út frá mat
Þegar kom að því að velja leik-
skóla fyrir drengina skoðaði Jón-
ína matseðil leikskólanna. Henni
þótti mikilvægt að velja leikskóla
sem lagði mikið upp úr heilbrigðu
og fjölbreyttu mataræði.
„Ég var að leita að leikskóla
sem sýndi metnað í matargerð.
Það bjóða því miður fáir leikskól-
ar hér á landi upp á veganfæði.
Yngri strákurinn er á Hjallastefnu-
leikskóla og fær þar veganmat.
Eldri strákurinn fer fullnestað-
ur í skólann,“ segir Jónína. „Skól-
arnir þeirra virða okkar lífsstíl og
við erum í góðum samskiptum
við kennarana. Strákarnir eru líka
meðvitaðir um að hafa samband
ef eitthvað öðruvísi er í gangi í
skólanum svo þeir geti þá kom-
ið með eitthvað að heiman sem
þeim þykir gott.“
Pæla í sælgætisumbúðum
Hvað fá strákarnir að borða?
„Þeir borða mjög mikið ferskt,
bæði af grænmeti og ávöxtum.
Þeir borða hnetur, fræ, baunir og
kornvörur sem eru án glútens. Ég
legg mikið upp úr heilsusamlegu
og næringarríku mataræði. Strák-
arnir borða til dæmis ekki sykur
og hafa aldrei gert það. Þeir hafa
því aldrei smakkað nammi. Þeir
pæla alveg í nammi þegar þeir sjá
það, en ekki að þá langi að borða
það heldur pæla þeir í umbúðun-
um. Oft er á sælgætisumbúðum
einhver teiknimyndafígúra eins og
Dóra landkönnuður. Þeim finnst
það mjög áhugavert og finnst
gaman að skoða nammið. Eins
með afmæliskökurnar, þeir skoða
þær en borða þær ekki,“ segir Jón-
ína og bætir við að strákarnir fari
aldrei svangir í afmælisveislur.
„Afmæli fyrir okkur snúast um
að hitta fólk og hafa gaman. Strák-
arnir fara alltaf með eitthvað í af-
mælisveislur sem þeim finnst
gott. Þeir eru aldrei út undan og
upplifa sig aldrei út undan því þeir
eru ánægðir með það sem þeir eru
með. Fyrir þeim er nammi eða
kjöt ekki matur, það er ekki þeirra
matur og þeir líta ekki á það sem
mat,“ segir Jónína.
„Strákunum finnst mjög gam-
an að gefa öðrum börnum með
sér. Mér finnst börnin sem eru
með strákunum í leikskóla og
grunnskóla mjög heppin að sjá
öðruvísi lífsstíl, því ég fékk ekki
að sjá þetta þegar ég var yngri. Ég
vissi ekki einu sinni að það mætti
sleppa mjólk, lýsi og fisk.“
Erfitt að sjá egg í ísskáp ömmu
Aðspurð hvort synir hennar viti af
hverju þeir eru vegan svarar Jón-
ína játandi. Hún segir Ómar Örn
sérstaklega pæla í því og að hann
eigi stundum erfitt með að sjá fólk
sem honum þykir vænt um neyta
dýraafurða.
„Eldri stráknum finnst mjög
skrýtið að fólk borði dýr. Honum
fannst mjög erfitt að sjá egg í ís-
skápnum hjá ömmu sinni, hann
skildi ekki af hverju amma sín væri
að borða egg. En ég segi honum að
við séum öll ólík og við getum ekki
stjórnað öðrum. Það sem við get-
um gert er að sýna öðrum hvernig
við gerum og þá sjá aðrir hvað er
hægt að gera öðruvísi.“
Hvernig tók fjölskylda ykkar í að
synir ykkar væru vegan?
„Viðbrögðin voru fyrst mjög
mismunandi og við fengum
margar spurningar. Það sem fólki
fannst erfiðast var að fiskinum
væri sleppt, sumum einnig mjólk-
inni. Fiskur er svo mikilvægur í
augum margra Íslendinga. Fólkið í
kringum okkur virðir okkar lífsstíl.
Við tökum einnig alltaf vel á móti
þeim spurningum sem við fáum
og erum alltaf tilbúin að svara
þeim af bestu getu.“
Hafið þið rætt hvað þið ætlið að
gera ef þau koma einn daginn heim
og segjast hafa fengið sér pylsu í
skólanum eða vilji fá sér pylsu?
„Ég held að við myndum bara
taka á því ef til þess kæmi. Ég
myndi ekki vilja að þeir myndu
fela neitt fyrir mér. Ég vil að þeir
treysti mér og ef þeir vilja gera
eitthvað þá geti þeir rætt við mig.
Samskipti eru mjög mikilvæg og ég
passa upp á að hafa góð samskipti
við strákana um mat.“
Veganhjarta
„Ég trúi að við fæðumst öll með
veganhjarta. Svo er það samfé-
lagið, uppeldið og umhverfið sem
aftengir okkur við það. En það er
alltaf hægt að tengja það aftur ef
maður vill,“ segir Jónína og held-
ur áfram:
„Þegar foreldrar tala um dýr við
börn sín þá snýst það um að vera
góður við dýrin, klappa þeim var-
lega og tala fallega um og við dýr-
in. Það er hægt að ímynda sér
þessa innri togstreitu sem mynd-
ast innan með börnum og fólki,
að eiga að hugsa vel um dýrin og
koma vel fram við þau, en svo eru
þau í matinn.“
Algengar spurningar
Hvaðan fær barnið næringu?
„Þeir fá eins mikið af græn-
meti og ávöxtum og þeir vilja.
Ég takmarka aldrei hversu mik-
ið þeir mega borða. Ég vil að þeir
læri að treysta sér sjálfir til að
stoppa þegar þeir verða saddir.
Þeir fá mikið af laufgrænu, eins
og grænkáli og spínati. Þeir fá eins
mikið af hnetum og fræjum og þeir
vilja. Svo baunir og kornvörur. Þeir
fá alveg allan pakkann. Svo fá þeir
B12, Omega3 og fjölvítamín.“
Finnst þér í lagi að taka þessa
ákvörðun fyrir barnið þitt?
„Já, rétt eins og aðrir foreldr-
ar gera sem hafa önnur gildi og
venjur. Mér finnst þetta svo fallegt.
Veganlífsstíll er svo fallegur og mér
finnst ég vera að gefa drengjun-
um mínum ótrúlega fallega hugs-
un. Maður er að gera svo gott fyrir
mann sjálfan, dýrin og umhverf-
ið með því að vera vegan. Það er
svo mikill kærleikur í þessu. Mér
finnst þeir ótrúlega heppnir og all-
ir í kringum þá einnig, að sjá að
þetta er eitthvað sem er hægt. Þeir
eru einnig svo stoltir og ánægðir
með sinn lífsstíl og vilja deila hon-
um með öllum og hjálpa öðrum að
hætta að borða dýrin. Það er svo
fallegt að sjá það.“ n
„Mér finnst ég vera að gefa
þeim ótrúlega fallega hugsun“
Nóg af grænmeti og ávöxtum
Ísskápur Jónínu Ásdísar. Í honum er
aðeins brot af þeim ávöxtum sem eru
alltaf til á heimilinu.
Stolt af veganlífs-
stílnum Jónína Ásdís
og Fannar Örn, maður
hennar, ásamt
sonum sínum,
Ómari Erni og Jóni
Leó. Jónína segir
drengina stolta
og ánægða af sín-
um lífsstíl og vilja
hjálpa öðrum að
hætta að borða
dýrin.
MyNdir Sigtryggur Ari
„Ég passa upp á að hafa góð samskipti við
strákana um mat.
Matseðill Jónínu Ásdísar
Dæmi um hvernig fjölskyldan borðar um helgar
Morgunmatur: Grænt boost alla morgna, Jónína gerir sér oft safa.
Hádegismatur: Bókhveiti-pönnukökur, raw banana-pönnukökur og ýmis ber,
melónur, skorin epli, skornir bananar, hnetusmjör og döðlukrem.
Millimál: Ávextir, grænmeti, hnetur, fræ, hnetu- og döðlugott, þurrkaðir ávextir,
hummus og hrískex, heimabakað brauðmeti.
Kvöldmatur: Raw spínatvefjur með grænmeti, skornir ávextir og ferskt græn-
meti og síðan er líka eldað eitthvað og þá oft prófað að búa til eitthvað nýtt eða til
dæmis búið til grænmetislasagne, heimagerðar pitsur eða pönnu- og pastaréttir.