Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2018, Blaðsíða 14

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2018, Blaðsíða 14
14 9. febrúar 2018fréttir Segir konuna hafa gengið svo fast á sig að hún hafi næstum dottið V alkyrja Sandra Ásdísar- dóttir Bjarkadóttir, þriggja barna móðir, snappari og bloggari, stendur nú í úti- stöðum við annan snappara. Val- kyrja segist vera hrædd um sig og börn sín. „Ég þori ekki ein út leng- ur. Ég veit ekki hvað henni dettur í hug að gera næst,“ segir Valkyrja. Hún kynntist konunni þegar hún skrifaði á bloggsíðu í hennar eigu. Samstarfinu lauk með hvelli og seg- ist Valkyrja óttast konuna. Í vikunni mætti hún síðan konunni í Hag- kaupum og segir Valkyrja að kon- an hafi vísvitandi gengið á hana svo hún datt næstum á ilmvatnsstand. Valkyrja var með tvo syni sína, sex ára og fjögurra mánaða, að versla. Karen Hrund, vinkona Valkyrju og þekktur snappari, var með Val- kyrju í verslunarleiðangrinum. Karen hefur einnig lent í útistöð- um við konuna. Hún sagði frá því í viðtali við DV fyrr á árinu. Karen segir konuna hafi hótað henni bæði ofbeldi og lögsókn. Eins og fyrr segir óttast Val- kyrja, að eigin sögn, um öryggi sitt og barnanna. Valkyrja segir að þegar hún kynntist fyrst konunni hafi hún verið algjörlega undir stjórn hennar. Hlýtt henni í einu og öllu, en hún segir konuna sífellt hafa hótað að „hún yrði ekkert án hennar.“ „Hún stjórnaði öllu“ Valkyrja byrjaði að blogga hjá kon- unni í október í fyrra. „Ég mátti ekki setja inn færslur sjálf, held- ur þurfti ég að senda henni svo hún gæti ritskoðað. Mér þótti það undarlegt.“ Valkyrja segir ekki hafi liðið á löngu þar til konan hafi náð tök- um á henni. „Hún átti heimilislífið mitt. Hún stjórnaði öllu. Ég átti að hætta með barnið á brjósti til þess að vera bloggari. Það var alls kon- ar svona sem kom upp á. Hún er rosalega frek. Ég átti sífellt að koma til hennar í heimsókn á kvöldin og átti erfitt með að komast svo frá henni. Á þessum tíma þekkti ég hana ekki neitt. Þetta var kona sem leið illa og ég sat mörgum klukkustundum saman og hlust- aði á hana. En í raun var hún bara að baktala og ljúga upp á fólk, sérstaklega aðra snappara.“ Opinbert rifrildi Rifrildi Karen- ar Hrundar og konunnar vakti mikla athygli á samfélagsmiðl- um og innan snapsamfélags- ins. Valkyrja seg- ir að það hafi byrjað að renna á hana tvær grímur. „Það sem Karen var að segja var alveg satt. Ég var með konunni í nokkrum verslunum þegar hún talaði illa um Karen við starfsfólk. Hún getur ekki þrætt fyrir það, ég stóð við hliðina á henni þegar hún baktalaði hana,“ segir Valkyrja. Í kjölfarið ræddi Valkyrja við Karen um málið og hætti að blogga hjá konunni. Valkyrja seg- ist hafa hætt í góðu. „Ég sagði að þetta væri ekki alveg fyrir mig og að ég ætlaði að leita á önnur mið. Hún brjálaðist og hótaði að drepa sig. Ég hringdi í lögregluna og lét vita af manneskju í sjálfsmorðs- hugleiðingum. Hún tók svo mynd af lögreglubílnum fyrir utan heima hjá sér og setti á Snapchat. Þessi mynd vakti mikla athygli. Margir töldu lögregluna vera þarna vegna Karenar, en hún hafði hótað Karen lögsókn,“ segir Valkyrja. „Ég hef aldrei lent í svona vit- leysu í lífi mínu, að einhver hóti að drepa sig því ég hætti að blogga hjá þeim.“ Vildi að hún tæki færslurnar út Valkyrja segir að hún hafi þurft að „blokka“ konuna á öllum samfé- lagsmiðlum til að fá frið frá henni. „Eftir að ég blokkaði hana var hún ekki til fyrir mér. Ég sendi henni svo vefpóst um að taka út fær- slurnar mínar af bloggsíðunni hennar. Það er ólöglegt að hún haldi þeim, ég er búin að athuga það. Ég hef sent henni nokkra pósta en aldrei fengið svör,“ segir Val- kyrja. „Ég sá hana fara inn í verslun fyrir nokkrum dög- um og ákvað að bíða fyrir utan til að ná tali af henni. Eftir það skrif- aði hún fær- slu á Facebook um að ég hefði ráðist á hana, sem er ekki rétt. Ég sat á bekk fyrir utan verslunina og þegar hún kom út spurði ég hana hvort ég þyrfti í alvöru lögfræðing til að fá hana til að eyða færslunum mínum. Þá sagði hún fyrir framan tólf ára son sinn að ég væri ein mesta rotta sem hún hefði kynnst. Ég spurði hana hvort hún ætlaði í alvöru að kalla mig rottu fyrir framan son sinn og bað hana aftur um að taka fær- slurnar mínar út. Þetta endaði með því að hún öskraði á mig að hún væri með barnið sitt og ég ætti að láta hana í friði. Ég gekk þá í burtu.“ Rifrildi í Hagkaupum Eins og áður segir fóru Valkyrja og Karen í Hagkaup á miðvikudaginn þegar upp úr sauð að þeirra sögn. „Konan var einnig í búðinni fyrir tilviljun. Hún gekk að okkur og vísvitandi beint á Karen og rykkti öxlinni í hana, síðan mig. Ég var með kerru sem yngri strák- urinn minn var í og leiddi hinn strákinn. Hún gekk svo fast á mig að ég datt næstum því á ilmvatns- stand. Hún sagði við mig: „Voða- lega er upp á þér typpið.“ Sex ára sonur minn horfði á mig og sagði: „Mamma, þú ert ekkert með typpi“,“ segir Valkyrja og heldur áfram: „Ég fór á búðarkassann og borgaði. Þegar við vorum komnar út í bíl kom hún út í sinn bíl á eftir okkur. Hún byrjaði að taka okkur upp á myndband. Karen spurði hana hvort henni fyndist þroskað af fullorðinni konu að ganga utan í fólk sem er með lítil börn. Hún sagði að við sætum um hana og hurðaði svo bílinn minn viljandi,“ segir Valkyrja. „Ég og maðurinn minn þurft- um að sitja með eldri stráknum mínum í nokkrar klukkustundir og útskýra fyrir honum hvað væri að þessari konu. Hann skildi þetta ekki, að konan hafi verið svona vond við mömmu sína,“ segir Val- kyrja. „Ég þori ekki ein út lengur. Ég veit ekki hvað henni dettur í hug að gera næst.“ Neitar að tjá sig DV hafði samband við konuna til að heyra hennar hlið á málum. „Ég má ekki tjá mig neitt þar sem ég er með kæru á hend- ur þeim báðum vegna ofbeldis í minn garð og sonar míns […] Það eru mörg kærumál í gangi og þið eruð búin að taka óbeint þátt í því líka,“ sagði hún og vísaði þá í viðtal DV við Karen Hrund. Konan bað blaðamann um að ræða við lögfræðing sinn sem ætl- aði að tjá sig fyrir hennar hönd. „Umbjóðandi minn hafnar með öllu þeim ásökunum sem á hana hafa verið bornar og eru mál hennar gagnvart viðkomandi einstaklingum í ferli. Hún mun ekki reka mál sín í fjölmiðlum,“ sagði Sigurður Freyr Sigurðsson lögfræðingur í samtali við DV. n Synir Valkyrju Synir Valkyrju voru með henni þegar hún segir konuna hafa gengið á sig með afli. Valkyrja Sandra Hægt er að fylgjast með Valkyrju á Snapchat undir nafninu @Adalpr- insessan, og Karen Hrund undir nafninu @KarenHrund. Valkyrja óttast annan bloggara „Ég þori ekki út ein lengur“ Guðrún Ósk Guðjónsdóttir gudrunosk@dv.is Hjálpa þér að halda öllu í skorðum í skúffum. Einnig sjálflímandi filt til að klæða skúffur og filt með verjandi efni svo ekki falli á silfur og silfurplett. Við eigum líka fægilög, fægiklúta og ídýfulög til að hreinsa. Sjálflímandi hnífaparaskorður Frakkastíg 10 | Sími 551 3160 | gullkistan@vortex.is | www.thjodbuningasilfur.is Sendum í póSt- kröfu
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.