Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2018, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2018, Blaðsíða 28
28 fólk - viðtal 9. febrúar 2018 Sólveig Anna Jónsdóttir kom eins og storm­ sveipur fram á sjónarsviðið í verkalýðsbaráttunni í lok janúar með framboði sínu til formanns Eflingar. Sólveig Anna talar tæpitungulaust um stöðu verkafólks í íslensku samfélagi og verkalýðsforingjana sem hún telur hafa gengið í lið með fjármálaöflunum. Hún er vön því að vera í baráttu fyrir félagslegu réttlæti samhliða því að berjast fyrir því að draga fram lífið sem ómenntuð verkakona. Blaðamaður DV hitti Sólveigu Önnu á heimili hennar í Reykjavík. S ólveig slasaðist illa á öxl í nóvember síðastliðnum og hefur hún verið óvinnufær fram til þessa. „Ég var á leið út í bíl í óveðri. Það kom hrikaleg vindhviða og ég fauk eins og plast- poki og lenti á hægri öxlinni sem mölbrotnaði. Ég var flutt burt í sjúkrabíl og hef þurft að vera frá vinnu, ég byrja reyndar aftur að vinna í næstu viku.“ Þú hefur þá haft tíma frá vinnu til að láta að þér kveða í verkalýðs- málum? „Það má að einhverju leyti segja það, ég var illa slösuð og gat lítið gert fram að jólum. Ég var þá spurð hvort ég gæfi kost á mér í þetta en þá sagði ég nei og meinti það. Ég hef verið virkur aðgerðasinni frá því 2008 og sá verkalýðsbaráttuna sem allt sem ég forðaðist að lenda í. Flókinn heimur sem stýrt er af körlum og regluverki, þetta fannst mér einstaklega fráhrindandi.“ Milli jóla og nýárs snerist Sólveigu svo hugur og hún lét slag standa. „Þegar ég áttaði mig á því að þarna var alvara að baki þá fór ég að taka þessu með opnum huga. Hræðslan vék fyrir löngun að sjá hvort það væri hægt að gera eitt- hvað. Ég er samt ennþá hrædd,“ segir Sólveig og hlær. „Þetta er allt í lagi, ég er kona, ég má viðurkenna að ég sé hrædd.“ Ekkert grínframboð Sólveig býður sig fram gegn fram- bjóðanda uppstillingarnefndar, Ingvari Vigur Halldórssyni. Sig- urður Bessason sem gegnt hefur formennsku í Eflingu í tvo áratugi bauð sig ekki fram til endurkjörs. Allan þann tíma hefur verið sjálf- kjörið í stjórn félagsins þar sem aldrei hefur áður komið fram mót- framboð. Fimmtán sitja í stjórn Eflingar og kosið er í stjórnina ár- lega, í ár er kosið um formann og sjö aðra stjórnarmenn og á næsta ári verður kosið um varaformann og sex aðra stjórnarmenn. Þetta „Stöðugleikinn er fyrir auðvaldið. Ætlar að verða verkalýðsforingi Sólveig Anna leiðir B-lista Eflingar, hún segir nauðsyn- legt að koma á grundvallarbreytingum innan félagsins, fyrsta skrefið sé að gefa aðfluttu verkafólki rödd. Myndir Sigtryggur Ari Ómenntuð láglaunakona ætlar að taka niður auðvaldið Ari Brynjólfsson ari@pressan.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.