Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2018, Blaðsíða 45

Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2018, Blaðsíða 45
tímavélin 459. febrúar 2018 Ókeypis getnaðarvarnir eða frjálsar fóstureyðingar Lög sem heimiluðu fóstur­ eyðingar við sérstakar aðstæð­ ur voru samþykkt 11. júní árið 1975, en um vorið höfðu verið fjörugar umræður á Alþingi um málið. Ragnhildur Helgadóttir, heilbrigðisráðherra Sjálfstæðis­ flokksins, taldi að fóstureyðing væri ekki mál konunnar einnar heldur einnig föður og þjóð­ félagsins alls. Magnús Kjartans­ son, fyrrverandi heilbrigðisráð­ herra Alþýðubandalagsins, hafði lagt til að ákvörðunin yrði alfarið konunnar. Deildu þau um einnig um hlutverk getnaðarvarna í þessu samhengi og hvort fóstur­ eyðingar myndu leiða til kæru­ leysis í þeim málum. Stúdenta­ ráð Háskóla Íslands skipti sér af málinu og krafðist ókeypis getn­ aðarvarna án aukaverkana ella þyrftu fóstureyðingar að vera al­ gerlega frjálsar. Braut falskar tennur eftir þorrablót Þorrablótið í Álftafirði, nálægt Djúpavogi, árið 1996 gekk ekki áfallalaust fyrir sig. Fólk var keyrt í rútu heim í Djúpavog eftir skemmtunina en í rútunni svaf einn maður á þrítugsaldri ölvunarsvefni. Þegar hann var vakinn brást hann hinn versti við, gekk berserksgang og lamdi fólk. Ökumaður náði að forða sumu fólki út úr rútunni en ók því næst niður að bryggju til að ná í liðsauka til að yfir­ buga manninn. Því næst var manninum komið í varðhald lögreglunnar á Fáskrúðsfirði. Margir voru sárir og marðir eftir manninn. Einn stóð uppi með brotnar tennur og falskur gómur manns á áttræðisaldri var brotinn. Í fyrstu utanlandsferðinni 83 ára, leist vel á vændiskonur en verr á flóttafólk „Uppljómuð kvennabúr“ í Antwerpen og „mórauðir labbakútar“ í Hamborg S kaftfellingurinn Stefán Fil­ ippusson þekkti land sitt betur en flestir aðrir sam­ tímamenn hans og vann hann sem leiðsögumaður fyrir er­ lenda ferðamenn til margra ára. Á erlendri grund var hann síð­ ur kunnugur og hélt hann í fyrsta skipti utan árið 1953 þegar hann var 83 ára gamall. Vann hann þá utanlandsferð í happadrætti Sjálfstæðisflokksins og ritaði ferðasögu sína í Lesbók Morgun­ blaðsins um haustið. Sjóveikar ungmeyjar og lélegir hestar Stefán valdi að fara með skipinu Goðafossi í júlímánuði vegna þess að það fór um fleiri lönd en önn­ ur skip sem í boði voru. Alls ferð­ aðist Stefán um fimm lönd: Bret­ land, Írland, Þýskaland, Holland og Belgíu. Siglt var frá Hafnarf­ irði suður með Færeyjum og til Ír­ lands. Stefán segir: „Eitthvað fór þá að gutla í sjó svo að blessað­ ar ungu konurnar, sem í skipinu voru, tóku sjósótt, en ég gaf þeim góðar pillur og hresstust þær svo að daginn eftir voru þær allar kát­ ar og brosandi út að eyrum.“ Sveitamaðurinn gamli fann sjálfur ekki fyrir sjóveiki en breyting klukkunnar og dimm­ ar sumarnætur rugluðu hann í ríminu. Missti hann næstum af morgunverðinum vegna þessa. Á Írlandi var hann hrifinn af fólki og náttúru en síður af stórum hestunum. „Ekki leizt mér þeir reiðhestlegir og ekki hefði ég vilj­ að hafa þá í langferðum um öræfi Íslands.“ Jómfrúr í gluggunum Þá var siglt til Antwerpen í Belgíu og Stefáni var fylgt inn í borgina af vélstjóranum Ingvari Björnssyni. „Honum var trúandi fyrir þess­ um álf, sem var eins og hálfviti í stórborg.“ Þeir skoðuðu reisulegar kaþólskar kirkjur, ráðhús, verslun­ arhús og torg borgarinnar. Loks kom að því að Ingvar dró gamla manninn að „verslunargötu“ einni sem Stefán segist ekki hafa séð eft­ ir að heimsækja. Lýsti hann götunni svo: „Þarna voru þá uppljómuð kvennabúr, þar sem ljómandi jómfrúr sýndu sig í gluggunum, en aðra verslunarvöru var þar ekki að hafa. Ég hefði óefað keypt eina, ef ég hefði treyst mér að fá innflutningsleyfi á hana á Ís­ landi. Og mér fannst þeim lítast vel á mig, svo að ég gekk nær.“ Ingvar varaði þá Stefán gamla við og sagði að þær gætu tekið hatt hans. Karlinn sagði að það væri lítil fyrirstaða en Ingvar sagði þá að þær myndu jafnvel stökkva út tvær eða þrjár og hrifsa hann sjálf­ an inn. „Þá leizt mér nú ekki á blik­ una og vildi ekki verða bergnum­ inn af þeim huldumeyjum, svo að ég hypjaði mig burt.“ Mórauðir labbakútar af öðrum kynþáttum Ferðaðist Stefán nú víða með hópnum, til Rotterdam í Hollandi og Hamborg í Þýskalandi. Í Ham­ borg komst hann í kynni við fólk af öðrum kynþáttum sem ekki var mikið um í Skaftafellssýslunum. „Þarna var víst margt um flóttafólk og þarna sá ég mórauða labbakúta, lága og varaþykka, voru þeir í hóp­ um og hafa líklega verið af skip­ um. Annars var fólkið myndarlegt og þar var lítið um götulýð.“ Í heimferðinni var komið við í Hull en þar var hafnarverkfall og fólkið varð að halda um kyrrt í Goðafossi. Var þá drukkið og spil­ að á nikku. „Ég reyndi að dansa, en var víxlaður. Skipstjórinn sagði við mig: Ekki hefði ég kært mig um að hafa þig um borð, Stefán, hefðirðu verið 60 árum yngri.“ Eftir að hafa loksins fengið að skoða Hull var haldið til Íslands. „Mér finnst ég hafa séð nóg og hlakka eins mikið til að koma heim og ég hlakkaði til að sigla út í lönd.“ n „Ég hefði óefað keypt eina, ef ég hefði treyst mér að fá innflutningsleyfi á hana á Íslandi. Í annálum bregður fyrir frá­ sögnum af kynjaskepnum og atburðum sem kunna að virð­ ast ótrúlegir sé litið á þá með augum nútímans. Í Skarðsár­ annál segir stuttlega frá rimmu manns við dreka árið 1595: „Einn maður sá svofellda sýn. Hann reið frá Odda í suður. Hann sá fljúga dreka í lofti neðarlega, álíka sem lindormur er uppka­ staður. Var allt í rauðum loga, fór vestan og þráðbeint austur. Varð maðurinn aftur að snúa, því hesturinn vildi hvergi ganga, en hvorki sakaði manninn né hest­ inn.“ Á sama stað er lýst ferfættu og hábeinóttu skrímsli sem sást við Háeyri á Eyrarbakka. „Með hundshöfuð eða hérahöfuð, eyru stór sem íleppar, lágu þau á hrygginn aftur, bolurinn var sem folaldskroppur.“ Fyrirboði eldgoss eða saman- safn óútskýrðra fyrirbæra Arngrímur Vídalín, íslensku­ fræðingur og einn helsti fræði­ maður um íslensk skrímsl, segir að yfirleitt sé enga góða skýringu að finna af slíkum frásögnum. Að­ allega vegna þess að formið sé knappt og óljóst hvað átt sé við í mörgum tilvikum. Hann bendir þó á að í eldri færslum sé oft um afritun úr erlendum ritum að ræða. „Íslendingar voru að sjá blóðregn, þrjá mána með krossi á þeim í miðjunni, halastjörn­ ur og ég veit ekki hvað og hvað.“ Gat þetta þá táknað einhverja hluti úr Biblíunni svo sem kross­ festinguna eða dómsdag. Færslur gátu einnig staðið sem táknmyndir fyrir einhverja at­ burði. Færsla um logandi dreka gæti átt að tákna eldgos eða stór­ bruna sem skráður var síðar. Á 16. öld hafði fólk mikinn áhuga á furðuskepnum og sumir töldu sig hafa séð slíkar verur. Þetta gæti því verið sjálfstæð frásögn fremur en fyrirboði. „Fyrst skrímslið hitt dúkkar upp líka þá virkar þetta á mig eins og samansafn óútskýrðra fyrirbæra sem sögusagnir hafa verið um í héraðinu.“ n Sá dreka í Rangárvallasýslu Maðurinn varð að snúa við eftir að hesturinn fældist Dreki Gæti táknað eldgos eða stórbruna. Stefán Filippusson „Þá leizt mér nú ekki á blikuna og vildi ekki verða bergnuminn af þeim huldumeyjum, svo að ég hypjaði mig burt.“ Grímsstaða- annáll 1706 „Á Eyrarbakka giptist kona áttræð tvígugum manni, og vildi skila honum aptur, þá árið höfðu saman verið, og sagt hann væri impotens“
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.