Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2018, Blaðsíða 68
68 lífsstíll Helgarblað 9. febrúar 2018
Staðir Sem
þú ættir að
heimSækja
B
enidorm, London, Kanarí-
eyjar og New York. Allt eru
þetta vinsælir ferðamanna-
staðir og góðir og gildir sem
slíkir. Sífellt fleiri fara í ferðalög út
fyrir landsteinana; framboðið á
flugi eykst ár frá ári, verðið lækk-
ar og ferðamenn opna augun fyrir
nýjum áfangastöðum.
Um allan heim eru til fallegir
staðir sem líklega verða vinsælir
meðal ferðamanna áður en langt
um líður, en eru kannski enn til-
tölulega lítt þekktir sem ferða-
mannastaðir. Þar af leiðandi er
verð lægra og fjöldi ferðamanna
hóflegur sem margir hljóta að
sækjast eftir. Ferðavefurinn
Thrillist tók saman nokkra þessara
staða og óhætt að segja að þeir hafi
upp á margt að bjóða. n
Kólumbía Kólumbía er eitt af 30 fjölmennustu ríkjum heims. Af kannski skiljan-
legum ástæðum hefur ferðamannageirinn ekki beint blómstrað undanfarna áratugi en
það kann að fara að breytast. Eftir ólgusöm ár virðist stöðugleiki vera að komast á í þessu
fallega landi sem liggur að Kyrrahafinu og Karíbahafinu. Í Kólumbíu geta allir fundið eitt-
hvað við sitt hæfi; fallegar strendur, fallegar borgir, menningarlíf, útivist og svo framvegis.
Hvernig kemst ég þangað? Líklega er best að fljúga í gegnum Bandaríkin þegar farið er til Kólumbíu. Hægt er að
fljúga þaðan til borga eins og Bogota og Cartagena.
Asóreyjar, Portúgal Asóreyjar er einn afskekktasti eyja-
klasi heims og tilvalinn fyrir þá sem vilja fá frið frá skarkala borgar-
eða strandlífsins. Um er að ræða níu eyja klasa í miðju Norður-
Atlantshafinu. Eyjarnar fundust árið 1427 og þykja afar fallegar og
tilvaldar fyrir þá sem vilja vera úti í náttúrunni og upplifa eitthvað
öðruvísi. Veður er með ágætum á þessum slóðum og er hitinn yfirleitt
í kringum 20 gráður yfir sumartímann.
Hvernig kemst ég þangað? Það þarf að leggja á sig talsvert ferðalag til að komast til
Asóreyja. Hægt er að fljúga til dæmis frá Frankfurt og Lissabon.
Belgrad, Serbíu Á undanförnum árum hafa áfanga-
staðir í Austur-Evrópu notið sífellt meiri vinsælda. Hér er til
dæmis um að ræða borgir á borð við Vilníus, Ríga, Gdansk og
Katowice. Belgrad í Serbíu er borg sem nýtur vaxandi vin-
sælda enda hafa breytingar til hins betra orðið í Serbíu eftir
fall Júgóslavíu og titringinn sem fylgdi í kjölfarið. Belgrad er
falleg borg þar sem nóg er að skoða, verð er hagstætt, fjöl-
breyttar verslanir, þarna eru góðir veitingastaðir og djammið
er líklega hvergi mikið betra.
Hvernig kemst ég þangað? Hægt er að fara til Belgrad frá mörgum evrópskum
flugvöllum, til dæmis Amsterdam, Gautaborg, London, München og Frankfurt.
Þessalóníka, Grikklandi Aþena, Krít og Santorini. Allt eru
þetta vinsælir ferðamannastaðir í Grikklandi en öllu minna hefur farið
fyrir Þessalóníku, einni stærstu borg Grikklands. Þessalóníka er hrein
og falleg borg, stútfull af fallegum byggingum og fornum byggingar-
ústum. Þó að Þessalóníka sé forn borg er hún í senn nútímaleg, enda
eyðilagðist stór hluti hennar í bruna árið 1917. Um 70 þúsund manns
misstu heimili sín og 9.500 hús gjöreyðilögðust. Þessalóníka er stund-
um sögð minna á Barcelona og heimamenn segja að maturinn sé
hvergi betri. Þá er stutt í rólegar strendur sem er aldrei slæmur kostur.
Hvernig kemst ég þangað? Auðvelt er að komast til Þessalóníku frá fjölförnum flugvöllum
í Evrópu, til dæmis München.
Tíblisi, Georgíu
Tíblisi í Georgíu kemur
væntanlega ekki fyrst upp
í huga fólks þegar skoð-
aðar eru borgarferðir.
Tíblisi er sögufræg borg
í Austur-Evrópu og má
segja að í gömlu borginni
mætast asískur og
evrópskur stíll. Rúm ein
milljón íbúa býr í Tíblisi;
verðlag er hagstætt,
maturinn góður, þarna er
nóg að skoða og veðrið
yfir sumartímann er
yfirleitt frábært. Ekki
þykir verra að næturlífið í
Tíblisi er fjörugt.
Hvernig kemst ég þangað?
Ekki er flogið beint til Tíblisi frá
Íslandi. Auðvelt er þó að verða
sér út um tengiflug til borgarinn-
ar, til dæmis í gegnum München.
Einar Þór Sigurðsson
einar@dv.is
áður en þeir verða
of vinsælir