Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2018, Side 66
66 lífsstíll - kynlíf 9. febrúar 2018
„Allt hefur
gengið vel
þangað til fyrir um
sex mánuðum að þá
hætti ég alveg að
geta fengið sáðlát
með konunum
Elsku Friðrik
T
akk kærlega fyrir bréfið. Ég ætla
að byrja á öfugum enda og skrifa
ögn um það sem þú minnist á
síðast í bréfinu – að ástkonurn-
ar viti hver um sig ekki af tilvist hinna.
Kannski skiptir þetta engu máli, en mig
langar bara að minna þig á hvað það er
frábært að þurfa ekki að fela neitt og lifa
í sannleikanum. Ef konurnar þínar þrjár
gera hver um sig ráð fyrir því að þú sért
þeim trúr, ráðlegg ég þér að koma út úr
skápnum með sannleikann. Það er svo
glatað að þurfa að laumast, kíkja yfir
öxlina á sér og ganga stöðugt úr skugga
um að þú sért ekki að afhjúpa þig. Fjöldi
fólks kann prýðilega við að eiga sér kyn-
lífsleikfélaga án þess að um einkarétt sé
að ræða, en flestir kjósa að hafa sann-
leikann að leiðarljósi og fyrir því eru tilf-
inningalegar og heilsufarslegar ástæður.
Ræddu þetta við dömurnar þínar þrjár
– kannaðu hvort einhver þeirra gengur
um með brúðkaupsóra og drauma um
að skrifa undir húsnæðislán með þér
hið fyrsta. Ef ekki þá er allt í góðu og þú
heldur þínu þrefalda striki vinur minn.
Að sáðlátinu – eða vöntuninni á því
með dömunum þínum. Fyrirbærið kall-
ast seinkað sáðlát og er vel þekkt vanda-
mál hjá körlum (1–4%), þó að það sé alls
ekki eins algengt og of snemmt sáðlát
(15–30%). Formlega skilgreiningin er sú,
að taki það 30 mínútur eða meira fyrir
karlmann að fá sáðlát í samförum, þrátt
fyrir fullnægjandi stinningu, sé hægt að
líta svo á að sáðlátið sé seinkað. Auð-
vitað fer svo algerlega eftir afstöðunni
að hvaða marki karlmaðurinn upplifir
þetta sem vandamál. Góður vinur minn
er hæstánægður með að hafa samfarir
tímunum saman, en hefur reyndar að-
eins einu sinni hitt fyrir konu sem kunni
til fulls að meta þann eiginleika.
Ef þú hefur fram að þessu stundað þitt
kynlíf með sterkan fókus á fullnægingu
og sáðlát í samförum sem markmið
get ég skilið að það sé ákveðið sjokk að
gamla góða hjakkið sé skyndilega hætt
að virka. Breytingin veldur þér ama, líka
viðbrögð ástkvennanna sem halda að þú
sért orðinn afhuga þeim … og samanlögð
niðurstaða verður frammistöðukvíði sem
er byrjaður að krauma innra með þér.
Á bak við seinkað sáðlát geta legið
ýmsar líkamlegar ástæður til að mynda
aukaverkanir lyfja, taugaskemmdir, lækk-
að testósterón eða skjaldkirtilshormón,
sýkingar í blöðruhálskirtli eða þvagfær-
um. Ef þú telur einhvern möguleika á
slíku væri ráð að leita til heimilislæknis.
Ef það er hins vegar klárt mál að ekk-
ert líkamlegt liggi að baki er bara það
andlega eftir. Þú segir allt hafa gengið
að þínum óskum þar til fyrir hálfu ári
þegar þú gast skyndilega ekki fengið það
lengur „sjálfur“. Ég get ímyndað mér að
eftir fyrsta skiptið hafi lítill áhyggjusnjó-
bolti rúllað af stað og orðið til þess að
auka líkurnar á því að þetta gerðist aftur.
Áhyggjur, streita og sambandsvandamál
geta haft áhrif. Skoðaðu hvað er að ger-
ast innra með þér og hvort eitthvað þar
gæti tengst ástandinu. Ef hvorki gengur
né rekur gæti borgað sig að kanna málið
frekar með aðstoð ráðgjafa.
Hver sem hin raunverulega ástæða
er getur eftirfarandi verið gagnlegt
fyrir þig á þessu stigi:
Reyndu að endurskilgreina markmið
kynlífsins og njóta frekar en að stefna
að sáðláti í samförum. Kannaðu hvort
ástkonunum gæti þótt gaman að sjá
þig „klára“. Margar konur njóta þess
að horfa á karlmenn fróa sér. Útskýrðu
breytingarnar sem þú ert að upplifa fyrir
ástkonunum. Segðu þeim það sem þú
skrifaðir mér í bréfinu – að þú sért alveg
jafnsjúkur í kynlífið … en eitthvað valdi
því að þú færð ekki sáðlát á sama hátt og
áður. Einlægni er sexí!
Gangi þér sjúklega vel,
Ragga
Friðrik fær það ekki
með ástkonum sínum
n Stundar kynlíf með þremur konum n Vita ekki af hver annarri
Blessuð og sæl Ragga
Ég er 46 ára og bara í þokkalegu ástand
i
líkamlega sem andlega. Ég er einhleypu
r og
vil halda því þannig, en ég á þrjár vinko
nur
sem eru á sama stað og ég – vilja bara
„single“-lífið – og ég hef verið að sofa h
já
þeim í nokkur ár (í sitthvoru lagi), svon
a
þegar þeim hentar og öfugt.
Allt hefur gengið vel þangað til fyrir um
sex mánuðum að þá hætti ég alveg að g
eta
fengið sáðlát með konunum. Ég æsist a
lltaf
jafn mikið upp við að hitta þær og rís ho
ld,
svo get ég verið að eins lengi og ég hef þ
rek
til, en þetta er farið að valda ákveðnum
vandræðum.
Núna eru vinkonur mínar farnar að
spyrja hvort ég sé að missa áhugann á þ
eim,
en það er fjarri lagi, áhuginn er jafnmik
ill
og í byrjun, og neistinn jafnvel sterkari.
En
ef ég á að geta klárað þá verð ég að sjá u
m
það með sjálfum mér. Ég er búinn að fa
ra
yfir síðasta ár í þaula og það hefur ekker
t
gerst, breyst, eða komið upp á andlega e
ða
líkam lega sem ég kem auga á. Um dagin
n
fór ég til dæmis heim með konu sem ég
hitti
á skemmtistað og allt gekk eins og í sögu
nema þetta, ég náði ekki að klára sjálfur
.
Þetta hljómar kannski eins og mað-
ur sé með egóið í hæstu hæðum og þar
af leiðandi óþolandi týpa, en svo er nú
ekki. Ég hef alltaf verið kurteis og kunna
ð
mannasiði. En þetta er að eyðileggja fyr
ir
mér og ég veit bara ekki hvað skal taka
til
bragðs.
Eitt enn er að þær vita ekki af tilvist
hinna. Veit bara ekki hvernig ég get lýst
þessu betur fyrir þér. Er allur af vilja ger
ð-
ur að gera það sem til þarf til að koma m
ér
í lag hvað þetta varðar. Vesenið hlýtur a
ð
vera á mína ábyrgð. Ég yrði agalega þak
k-
látur ef þú gætir gert eitthvað til að aðst
oða
mig í þessu Ragga.
Óvenjuleg blæti
Blæti er íslenskun á orðinu „fetish“ en það er
notað þegar einstaklingur örvast kynferðislega
af athöfn, hlut eða líkamsparti sem hefur ekki
kynferðislega skírskotun í huga þorra fólks.
Blæti sýna okkur eina ferðina enn fram
á hinn magnaða og heillandi fjölbreytileika
kynlífs. Hér eru nokkur sem þú hefur kannski
ekki heyrt um.
n Agalmatophilia - að örvast af styttum.
n Climacophilia - að örvast af því að detta
niður stiga.
n Formicophilia - að örvast af skordýrum.
n Knismolagnia - að örvast af því að einhver
kitli mann.
n Nebulophilia - að örvast af þoku.
n Psychrophilia - að örvast af því að vera
kalt og sjá aðra sem er kalt.
n Vorarephilia - að örvast af tilhugsun um
að borða líkamsparta einhvers.
n Xylophilia - að örvast af við.
Áhugasömum má benda á bókina
PERV: The Sexual Deviant in all of us
eftir Jessie Bering (2013).