Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2018, Qupperneq 12
12 9. febrúar 2018fréttir
Gera það gott
í Hollywood
Þ
úsundir leikara streyma til
Hollywood á degi hverjum
í von um frægð og frama
en fæstir komast þó í gegn-
um nálaraugað. Allt frá því á sein-
ustu öld hafa þónokkrir íslenskir
leikarar freistað gæfunnar vestan-
hafs með misjöfnum árangri. Þó
svo að sumum hafi tekist að landa
fleiri en einu hlutverki er vart hægt
að segja að einhverjum hafi tekist
að „meika það“ eins og sagt er og
byggja upp alvöru stjörnu feril.
Að minnsta kosti ekki hingað til.
DV tók saman nöfn nokkurra ís-
lenskra leikara og leikkvenna
sem hafa verið að gera það gott í
skemmtanabransanum vestan-
hafs undanfarin misseri. n
Auður Ösp Guðmundsdóttir
audur@dv.is
Hera Hilmarsdóttir
Óhætt er að segja að frægðarsól Heru Hilmarsdóttur hafi risið ansi hratt undanfarin misseri. Árið 2012 hreppti hún lítið hlutverk í bresku
stórmyndinni Anna Karenina, þar sem Keira Knightley og Jude Law fóru með aðalhlutverkin, og eftir það fór boltinn að rúlla.
Hún fór með stórt hlutverk í ævintýraþáttaseríunni Da Vinci's Demons og þá lék hún á móti Josh Hartnett og Ben Kingsley í
myndinni The Ottoman Lieutenant. Því næst tók við hlutverk þjónustustúlkunnar Tönju í spennutryllinum An Ordinary Man þar
sem Hera lék í annað sinn á móti Ben Kingsley. Þá var greint frá því í fyrra að Hera myndi fara með eitt af aðalhlutverkunum í Mortal
Engines, nýjustu mynd Peters Jackson, sem gerði þríleikinn um Hringadróttinssögu og Hobbitann.
Darri Ingólfsson
Darri lærði leiklist í Bretlandi en hefur
undanfarið ár búið og starfað í Engla-
borginni. Árið 2012 fór hann með auka-
hlutverk í þáttunum Last Resort, stórri
framleiðslu á vegum ABC-sjónvarps-
stöðvarinnar en þáttaröðin varð þó ekki
langlíf og var framleiðslu hætt eftir
aðeins 13 þætti. Nafn Darra rataði síðan
í fréttir hérlendis árið 2013 þegar ljóst
var að hann myndi fara með hlutverk
geðtruflaða morðingjans Olivers Saxon
í áttundu þáttaröðinni af Dexter. Hann
hefur síðan þá komið fram í aukahlut-
verki í nokkrum sjónvarpsþáttaröðum
vestra á borð við Haven, NCIS: Los Ang-
eles, Criminal Minds auk þess sem hann
er í stærri hlutverkum í þáttaröðunum
Sequestered og The Originals.
Einar Gunnar
Einarsson
Einar Gunnar, sem notast
við listamannsnafnið Einar
Gunn, hefur verið búsettur í
Bandaríkjunum undanfarna
þrjá áratugi og starfaði lengi
vel í auglýsingabransanum
áður en hann fór að starfa
sem aukaleikari. Á síðustu
tíu árum hefur hann landað
fjölmörgum litlum hlutverkum
í bandarískum sjónvarpsþátt-
um á borð við The Mysteries of
Laura og The Blacklist auk þess sem hann fór með hlutverk prests í Michael J. Fox Show.
Þá hefur hann einnig stigið á svið á Broadway í leikritinu A Man for All Seasons og farið
með hlutverk í þættinum The Men Who Built America sem sýndur er á History Channel.
DV ræddi við Einar á síðasta ári en þá hafði hann landað litlu hlutverki í hinum
geysivinsælu sjónvarpsþáttum Law and Order: Special Victims Unit.
„Það eru margir um hituna fyrir hvert hlutverk. Það eru yfirleitt um 500–2.000
umsóknir sem berast varðandi hvert hlutverk og af þeim komast yfirleitt 6–12 í prufur.
Síðan komast tveir á lokastigið og einn hreppir hnossið. Líkurnar á að hreppa hlutverk
eru því ekki miklar,“ sagði Einar aðspurður um samkeppnina í Hollywood. Næsta verk-
efni Einars er þó á íslenskri grundu en hann fer með hlutverk í væntanlegri kvikmynd
leikstjórans Baldvin Z, Lof mér að falla.
Unnur Eggertsdóttir
Unnur Eggertsdóttir útskrifaðist úr
leiklistarnámi í New York árið 2016 og
elti í kjölfarið leikkonudrauminn til
Hollywood. Hún er nú á föstum samn-
ingi hjá umboðsskrifstofu ytra og sæk-
ir prufur af kappi. Stærsta hlutverkið
til þessa er í annarri þáttaröðinni af
Murder Among Friends en þættirn-
ir eru sýndir á sjónvarpsstöðinni
Investigation Discovery og hafa notið
mikilla vinsælda. Þá fer Unnur einnig
með lítið hlutverk í kvikmyndinni The
Mystery of Casa Matusita II: The Five
Guests sem meðal annars skartar
Malcolm McDowell í aðalhlutverki.
Ólafur Darri Ólafsson
Fáir íslenskir leikarar hafa notið álíka velgengni í
Hollywood og Ólafur Darri Ólafsson og er nú svo
komið að hann starfar mestmegnis í Banda-
ríkjunum. Hann fór með stórt hlutverk í fyrstu
og annarri seríu bandarísku grínþáttanna Lady
Dynamite og þar á undan fór hann með hlutverk
í þáttaröðinni Emerald City á vegum sjónvarps-
stöðvarinnar NBC. Meðal annarra verkefna má
nefna sjónvarpsþáttaraðirnar The Missing og
Banshee að ógleymdum stórmyndunum Zoo-
lander 2, The Secret Life of Walter Mitty og Walk
Among the Tombstones en þess ber að geta að
gagnrýnandi The Hollywood Reporter fór fögrum
orðum um frammistöðu Ólafs Darra í myndinni.
Síðar á árinu verða frumsýndar fjórar
Hollywood-kvikmyndir þar sem Ólafur Darri fer
með hlutverk. Um er að ræða bandarísk-skosku
spennumyndina Keepers, spennumyndina The Meg og ævintýramyndina Fantastic Beasts:
The Crimes of Grindelwald sem byggir á bók rithöfundarins J.K. Rowling og er framleidd af
Warner Bros. Þá má ekki gleyma spennu-/gamanmyndinni The Spy Who Dumbed Me þar
sem stórstjörnurnar Mila Kunis og Gillian Anderson fara með aðalhlutverkin.
Jóhannes Haukur Jóhannesson
Jóhannes Haukur hefur fyrir löngu skapað sér sess sem einn af vinsælustu karlleikurum íslensku
þjóðarinnar og þá hefur hann einnig verið að gera það gott í Bandaríkjunum sem kvikmynda- og
sjónvarpsleikari. Stóra tækifærið kom árið 2015 þegar hann var ráðinn í hlutverk Tómasar, sem
var einn af lærisveinum Jesú í þáttunum A.D. The Bible Continues. Ári síðar landaði hann stóru
hlutverki í annarri þáttaröð, The Last Kingdom, sem er framleidd af BBC og Netflix.
Síðar á þessu ári má sjá Jóhannesi Hauki bregða fyrir í hlutverki hollenska skipstjórans
J. Rouverol í kvikmyndinni Where'd You Go, Bernadette sem meðal annars skartar Cate
Blanchett, Kristin Wiig, Billy Crudup og Laurence Fishburne í aðalhlutverkum. Þá fer hann
með eitt af aðalhlutverkunum í spennutryllinum Alpha sem væntanlegur er í kvikmynda-
hús í mars næstkomandi, en leikstjóri myndarinnar er Albert Hughes sem meðal annars
leikstýrði The Book of Eli með Denzel Washington og From Hell með þeim Johnny Depp og
Heather Graham. Síðar á árinu verður síðan frumsýnd kvikmyndin The Sisters Brothers en
Jóhannes Haukur er þar í góðum félagsskap stórstjarna á borð við Jake Gyllenhaal, Joaquin
Phoenix, John C. Reilly og Riz Ahmed.
Tómas Lemarquis
Tómas Lemarquis er einna
þekktastur hérlendis fyrir hlutverk
sitt sem Nói albínói í samnefndri
kvikmynd. Hann hefur undanfarin
ár notið mikillar velgengi sem
leikari í Evrópu og jafnframt fengið
nokkur tækifæri í Hollywood. Árið
2013 landaði hann stóru hlutverki
í spennumyndinni Three Days to
Kill með bandaríska stórleikar-
anum Kevin Costner. Þá fór hann
með hlutverk Calibans í myndinni
X-Men: Apocalypse og í fyrra lék hann í Hollywood-myndinni Blade Runner.
Í samtali við Morgunblaðið í fyrra sagði Tómas frá því hvernig hann fékk hlutverkið með
krókaleiðum. „Þetta var góð lexía varðandi það að gefast aldrei upp og missa aldrei sjónar á
draumi mínum.“
Láttu þér ekki vera kalt
Sími 555 3100 www.donna.is
hitarar og ofnar
Olíufylltir ofnar 7 og 9
þilja 1500W og 2000 W
Keramik hitarar
með hringdreifingu
á hita
Hitablásarar
í úrvali
Ný vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf