Dagblaðið Vísir - DV - 09.02.2018, Blaðsíða 41
KYNNING
UnnUr Óla einkaþjálfari:
Frábært að sjá fólk
ná markmiðum sínum
Þetta er mjög gefandi starf. Mér finnst þetta algjört æði. það er svo frábært að geta hjálpað
fólki og gert því kleift að ná mark-
miðum sínum, en vanalega komum
við okkur saman um markmið sem
viðkomandi ætlar sér að ná á tiltekn-
um tíma, en mikilvægt er að setja
sér skammtíma sem og langtíma
markmið sem eru raunhæf,“ segir
Unnur Óla, einkaþjálfari í Sporthúsinu
kópavogi. Unnur, sem verður þrítug
á þessu ári, hefur stundað íþróttir og
líkamsrækt frá unga aldri. Hún hefur
keppt á 12 fitness-mótum frá árinu
2008 og orðið bæði Íslandsmeistari
og bikarmeistari í módelfitness.
þrátt fyrir mikla keppnisreynslu
liggur áhugi Unnar fyrst og fremst í
bættri heilsu og auknum lífsgæðum,
eða eins og Unnur segir: „að líða vel í
eigin skinni er ekki sjálfgefið og þarf í
mörgum tilfellum hjálp við það.“ það
lá því beint við fyrir hana að fara í
nám í einkaþjálfun og útskrifaðist
hún með einkaþjálfararéttindi frá
íþróttaakademíu keilis í janúar 2016.
Skömmu síðar gerði hún samning við
Sporthúsið í kópavogi og hefur síðan
þá starfað við einkaþjálfun með frá-
bærum árangri.
að sögn Unnar er fjölbreyttur
hópur fólks hjá henni í einkaþjálfun,
bæði konur og karlar, og með mis-
munandi markmið eftir ólíku ástandi
sínu. „Meirihlutinn er samt með þessi
týpísku markmið, að vilja missa kíló,
styrkjast og auka þol. en ég er líka
með nokkra sem vilja bæta á sig
vöðvamassa, styrkja og móta lík-
amann, sem og fólk með einhvers
konar meiðsli sem þarf að vinna með.
það hendir að grannvaxið fólk sé ekki
í góðu formi og skorti mjög vöðva-
styrk og þol þó að óneitanlega þurfi
meirihlutinn að missa fitu en allir
eiga það sameiginlegt að vilja líða vel
líkamlega og andlega og er mikilvægt
að einblína ekki bara á einhverja tölu
á vigtinni,“ segir Unnur. „Mataræðið
skiptir gríðarlega miklu máli, miklu
meira máli en ég held að fólki geri
sér grein fyrir en það virðist vera það
sem flestum finnst hvað erfiðast, það
er svo mikilvægt að hver og einn finni
sinn gullna meðalveg í mataræði, því
boð og bönn eru ekkert spennandi en
það hentar ekki öllum það sama.“
þeir sem æfa hjá Unni eru alla
jafna mjög lengi hjá henni í þjálfun
sem vekur hjá henni ánægju: „þetta
segir manni að maður sé að gera
eitthvað rétt. Örfáir hafa verið skemur
hjá mér en í þrjá mánuði og ég er
með marga sem hafa verið hjá mér
í yfir ár. það er einstaklingsbundið
hvað fólk þarf langan tíma undir
handleiðslu einkaþjálfara. Sumir
þurfa bara einn mánuð til að koma
sér í gang eftir til dæmis frí, veikindi
eða hreinlega til að fá fjölbreytni í æf-
ingarnar sínar, en hafa sjálfstraustið
og agann til að halda síðan áfram
sjálfir. á meðan aðrir hafa minni vilja-
styrk og þurfa miklu meira og lengra
aðhald.“
Unnur Óla býður bæði upp á
einkaþjálfun og þjálfun í litlum
hópum. Til að panta þjálfun eða
fá nánari upplýsingar er best að
senda tölvupóst á netfangið
unnurola@unnurola.is, hringja í síma
660-6433 eða senda skilaboð á
Facebook-síðunni www.facebook.
com/UnnurOla. Unnur er líka með
opinn Snapchat-aðgang þar sem
nokkur þúsund manns fylgjast með
henni daglega, SC: unnurolaiak, sem
og Instagram.com/unnurola.is.