Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2018, Blaðsíða 25
2. mars 2018 fréttir 25
greiðslur. Þar geta þingmenn feng-
ið fastar greiðslur eða afþakkað og
látið okkur fá reikninga. Það er ekki
hægt að segja sig frá þessu.“ Varð-
andi ráðherralaunin segir Helgi
þau vera á vegum stjórnar ráðsins.
„Ráðherralaunin eru tvískipt.
Annars vegar þingfararkaupið og
hins vegar ráðherraparturinn. Við
greiðum þingfararkaupið, við höf-
um ekkert með hitt að segja.“
Helgi segir að landsbyggðar-
þingmenn sem búi í rúmlega
klukkutímaaksturs fjarlægð frá
Reykjavík og geti ekið til vinnu séu
skráðir í heimanakstur. Tók hann
Vilhjálm Árnason sem dæmi.
„Hann fær eins og allir aðrir hús-
næðisgreiðslur, það fá allir þing-
menn landsbyggðarkjördæmanna
og það er engin undankoma fyrir
þá, en þeir sem geta ekið frá heim-
ili sínu til Alþingis – þeir sem eiga
til dæmis heima á Suðurnesjum,
Akranesi og Selfossi, þeir fá bara
einn þriðja af þessum greiðsl-
um enda endurgreiðum við
aksturskostnaðinn.“
Getur þingmaður lands-
byggðarkjördæmis sem býr að-
eins í Reykjavík skráð sig í heiman-
akstur?
„Nei. Ef þú ert til dæmis þing-
maður Norðausturkjördæmis og
býrð í Fossvoginum þá færð þú
bara hina venjulegu húsnæðis-
greiðslu. Hún er til þess að borga
leigu í Reykjavík ef þú ert búsettur
úti á landi. Ef þú býrð í Reykjavík
en ert í kjördæmi úti á landi þá er
það til að borga ferðir og gistingu í
kjördæminu.“
Helgi nefndi Sigmund Davíð
Gunnlaugsson sem dæmi. „Sig-
mundur er búsettur í höfuð-
borginni. Hann fær húsnæðis-
greiðslu. Hann skal fá hana. En
hann á þá ekki rétt á að fá neitt
borgað í kjördæmi sínu. Hann get-
ur þá ekki komið með reikning til
okkar frá Hótel Húsavík.“
„Ég gæti vel lifað á lægri launum“
Logi Einarsson, formaður Sam-
fylkingarinnar, fær 187.657 krónur
á mánuði í húsnæðis- og dvalar-
greiðslur. Fær hann bæði 134 þús-
und krónur í húsnæðis- og dvalar-
greiðslur og 53 þúsund krónur í
álag á húsnæðis- og dvalargreiðsl-
ur fyrir að halda úti tveimur heim-
ilum. Þetta bætist ofan á laun hans
sem þingmanns, launagreiðslur
fyrir að vera formaður stjórnmála-
flokks, fastan ferðakostnað í kjör-
dæminu og fastan starfskostn-
að. Þegar allt er tekið saman er
Logi því með 1.909.448 krónur í
mánaðarlaun.
„Ég er í þeirri stöðu að ég bý með
fjölskyldu minni á Akureyri og rek
annað heimili hér í Reykjavík. Þess-
ar greiðslur, 187 þúsund, ná rúm-
lega að standa undir öðru húsnæði.
Í mínu tilfelli er það svo sannarlega
þannig að ég held tvö heimili, ég er
ekki viss um að það sé þannig í öll-
um tilfellum,“ segir Logi.
Ekki allir þingmenn sækja um
álagsgreiðslur. „Það er ekki þannig
að ég sé að biðja um þetta á hnján-
um, ég geri ekki athugasemdir við
það að einhverjum finnist þetta
óeðlilegt en svona eru starfskjör-
in.“ Logi segist skilja umræðuna,
það sé sjálfsagt að allar upplýs-
ingar séu uppi á borðum og að
ná þurfi sátt um kjör þingmanna.
Staðreyndin sé hins vegar að hann
haldi tvö heimili. „Mér finnst of
mikil einföldun að blanda saman
laununum sem slíkum, sem má
alveg skoða, og kostnaðinum sem
fylgir því að þurfa að vera í Reykja-
vík. Það er ekki óskastaða fjöl-
skyldufólks að búa fjarri fjölskyldu
sinni. Ég hefði viljað sinna starfinu
á Akureyri en það er ekki hægt.“
Þú ert með 1,6 milljónir í fastar
launagreiðslur, finnst þér þú þurfa
þessar auka 50 þúsund krónur?
„Nei, ég er á mjög góðum laun-
um,“ svarar Logi sem þó sótti um
þær. „Ég sóttist ekki eftir þingsæti
þegar kjörin voru svona, ég bauð
mig fram fyrir ákvörðun kjararáðs
og lækkaði þá í launum miðað við
vinnuna sem ég hafði. Svo gerist
margt, ég verð formaður, niður-
staðan er sú að ég er á mjög háum
launum. Auðvitað er það þannig að
ég gæti vel lifað á lægri launum.“
Segir húsnæðisgreiðslurnar
mega vera lægri
Smári McCarthy, þingmaður
Pírata, tekur í sama streng og
Logi. „Ég var kosinn inn á sama
tíma og Logi, ég átti von á því að
taka á mig launaskerðingu en
ekki að fá hækkun. Það er bara
þannig. Auðvitað á þetta að fylgja
eðlilegum kjörum á vinnumark-
aði, það er enginn á móti því
að þingmenn fái vel greitt fyrir
vinnuna sína en fyrr má nú fyrr
vera. Þetta er orðið snargalið,“
segir Smári.
„Það er eðlilegt að allar þessar
upplýsingar séu birtar og furðu-
legt hvað hefur þurft að ganga á
eftir því að fá þessar upplýsingar
birtar. Eins og oft með svona
birtingar þá kemur ýmislegt
óvænt upp þegar fólk hefur not-
ið þess að starfa í skjóli leyndar.“
Smári segir áhugaleysi
þingmanna um að setja lög á
ákvörðun kjararáðs árið 2016
valda sér vonbrigðum. „Við fór-
um ítrekað fram á að það yrði lag-
að. Það eina sem var gert var að
lækka aðeins starfskostnaðinn
og eitthvað af þessum sporslum,
en var ekki hægt að ganga mjög
langt á það.“
Smári er þingmaður Suðurkjör-
dæmis en býr í Vesturbæ Reykja-
víkur og fær húsnæðis- og dvalar-
greiðslur upp á 134 þúsund krónur.
„Þær aukagreiðslur sem koma eru
nóg til að dekka allt sem ég er að
gera sem þingmaður og rúmlega
það. Þetta mætti vera töluvert
lægra. Ég skil ekki af hverju þetta
er svona hátt en ég skil að það sé
töluvert meiri kostnaður hjá sum-
um sem búa úti á landi og eru bara
hér fjóra eða fimm daga vikunn-
ar. Sem og þau sem búa í mörg
hundruð kílómetra fjarlægð og
keyra í vinnuna á hverjum degi, ég
skil ekki hvernig þau nenna því en
það er annað mál.“
Fá laun frá Alþingi fyrir að vera
formenn flokka
Þann 15. desember árið 2003 var
samþykkt breyting á lögum um
þingfararkaup alþingismanna á þá
leið að formenn stjórnmálaflokka
sem væru ekki ráðherrar en ættu
sæti á Alþingi fengju 50 prósenta
álag á þingfararkaupið. Var þessari
breytingu ætlað að jafna aðstöðu-
mun ráðherra og stjórnarandstöð-
uformanna. Samanlagt var málið
rætt í þrjár mínútur og samþykkt
með 52 atkvæðum gegn engu, 11
þingmenn voru fjarverandi. Meðal
þeirra sem samþykktu frumvarpið
voru fjórir þingmenn sem síðar
áttu eftir að þiggja slíkt álag: Geir
H. Haarde, Guðni Ágústsson, Val-
gerður Sverris dóttir og Bjarni
Benediktsson. Frumvarpið var
samþykkt af öllum stjórnmála-
flokkum sem áttu þá sæti á þingi.
Greiðslurnar, sem hafa rokið
upp samfara þingfararkaupi, eru
óháðar árlegu framlagi Alþingis til
stjórnmálaflokkanna. DV reiknaði
út hvað hver formaður hefur
fengið í slíkar greiðslur frá áramót-
um 2003/2004 samkvæmt þing-
fararkaupi þess tíma. n
Katrín Jakobsdóttir
Formaður Vinstri – grænna 2013–2018
2013: 2.520.000
2014: 3.898.000
2015: 4.211.000
2016: 4.965.000
2017: 6.057.000
Samtals: 21.651.000
Sigmundur Davíð Gunnlaugsson
Formaður Framsóknarflokksins 2009–2016, Miðflokksins
2017–2018
2009: 1.820.000
2010: 3.120.000
2011: 3.275.000
2012: 3.641.000
2013: 1.240.000
2016: 3.304.000
2017: 1.101.000
2018: 1.101.000
Samtals: 18.602.000
Guðjón A. Kristjánsson
Formaður Frjálslynda Flokksins 2003–2010
2004: 2.627.000
2005: 2.760.000
2006: 2.863.000
2007: 3.146.000
2008: 3.331.000
2009: 1.300.000
Samtals: 16.027.000
Steingrímur J. Sigfússon
Formaður Vinstri – grænna 1999–2013
2004: 2.627.000
2005: 2.760.000
2006: 2.863.000
2007: 3.146.000
2008: 3.331.000
2009: 260.000
Samtals: 14.987.000
Bjarni Benediktsson
Formaður Sjálfstæðisflokksins 2009–2018
2009: 2.340.000
2010: 3.120.000
2011: 3.275.000
2012: 3.641.000
2013: 1.240.000
Samtals: 13.616.000
Árni Páll Árnason
Formaður Samfylkingarinnar 2013–2016
2013: 2.520.000
2014: 3.898.000
2015: 4.211.000
2016: 1.780.000
Samtals: 12.409.000
Logi Már Einarsson
Formaður Samfylkingarinnar 2016–2018
2016: 1.652.000
2017: 6.607.000
2018: 1.101.000
Samtals: 9.360.000
Guðmundur Steingrímsson
Formaður Bjartrar framtíðar 2012–2015
2013: 2.520.000
2014: 3.898.000
2015: 2.787.000
Samtals: 9.205.000
Óttarr Proppé
Formaður Bjartrar framtíðar 2015–2017
2015: 1.424.000
2016: 4.965.000
Samtals: 6.389.000
Sigurður Ingi Jóhannsson
Formaður Framsóknarflokksins 2016–2018
2017: 6.057.000
Samtals: 6.057.000
Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
Formaður Samfylkingarinnar 2005–2009
2005: 1.610.000
2006: 2.863.000
2007: 1.294.000
Samtals: 5.767.000
Guðni Ágústsson
Formaður Framsóknarflokksins 2007–2008
2007: 1.852.000
2008: 3.061.000
Samtals: 4.913.000
Össur Skarphéðinsson
Formaður Samfylkingarinnar 2000–2005
2004: 2.627.000
2005: 1.150.000
Samtals: 3.777.000
Inga Sæland
Formaður Flokks fólksins 2016–2018
2017: 1.101.000
2018: 1.101.000
Samtals: 2.202.000
Benedikt Jóhannesson
Formaður Viðreisnar 2016–2017
2016: 1.652.000
Samtals: 1.652.000
Þorgerður K. Gunnarsdóttir
Formaður Viðreisnar 2017–2018
2017: 551.000
2018: 1.101.000
Samtals: 1.652.000
Oddný G. Harðardóttir
Formaður Samfylkingarinnar 2016
2016: 1.533.000
Samtals: 1.533.000
Geir H. Haarde
Formaður Sjálfstæðisflokksins 2005–2009
2009: 780.000
Samtals: 780.000
Valgerður Sverrisdóttir
Formaður Framsóknarflokksins 2008–2009
2008: 281.000
Samtals: 281.000
Formennirnir fá þetta aukalega
Smári McCarthy, þingmaður Pírata.
Vilhjálmur Árnason, þingmaður Sjálfstæð-
isflokksins.
Helgi Bernódus-
son, skrifstofu-
stjóri Alþingis.