Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2018, Síða 35
Betri borgarar 2. mars 2018 KYNNINGARBLAÐ
Smári special er
vinsælastur í Ungó
Ungó KeflavíK – endUrbættUr og alltaf vinsæll
Við höfum verið að taka húsið í gegn síðustu tvö ár, bæði að innan og utan, það kláraðist
fyrir stuttu, þar sem húsið var klætt
allt að nýju,“ segir valgeir Magnússon
hjá Ungó, Hafnargötu 6 í Keflavík.
tveir inngangar eru í Ungó, annar
í ísbúðina og sjoppuna og hinn á
matsölustaðinn, þar sem setjast má
niður til að borða eða taka mat með
sér heim.
Ungó er þekktur fyrir úrval af góð-
um skyndibita, pítsum, hamborgurum
og pylsum. vinnandi fólk í Keflavík
sækir sér gjarnan hádegismat í Ungó
og nemendur úr fjölbrautaskólanum
streyma þangað á skólatíma.
„við erum með hefðbundna ham-
borgara og pítsur, sem eru ótrúlega
vinsælar,“ segir valgeir. „við erum
með nokkrar útgáfur af borgunum
og Ungó-borgarinn og smári special
eru vinsælastir. smári special er með
frönskum, beikoni og ostastöngum á
milli. Það var strákur sem vann hér
hjá okkur sem græjaði hann svona
handa sér, síðan fékk hann leyfi til að
útbúa hann svona handa vinum sín-
um. síðan fór fólk að koma og spyrja
um borgarann, þannig að við ákváð-
um að setja hann á matseðilinn.“
við byggðum staðinn í raun upp
á nýtt. við gerðum miðpunktinn í
búðinni að ísbúð og núna er þetta
orðin ein af helstu ísbúðum landsins
og gefur stærstu ísbúðunum í reykja-
vík ekkert eftir. við erum með 64
tegundir fyrir bragðaref, 18 tegundir
af kúluís og fjórar tegundir af ís úr
vél.“ ísinn í Ungó kemur frá Kjörís og er
afar vinsæll.
Ungó er fjölskyldufyrirtæki en
valgeir keypti staðinn með foreldrum
sínum árið 2004. „foreldrar mínir eru
farnir út úr þessu en ég rek staðinn
með eiginkonu minni, Þorgerði sigur-
björnsdóttur,“ segir valgeir.
„ferðamenn eru duglegir að
koma til okkar og finnst ísinn stór-
merkilegur, og að við seljum hann í
snjókomu. Þeim finnst mikið sport að
taka myndir af sér hér fyrir utan með
ísinn.“
Ungó er líka þekktur fyrir veg-
legan nammibar en ólíkt mörgum
öðrum stöðum þá er 50% afsláttur
á nammibarnum ekki bara á laugar-
dögum heldur alla helgina, föstudag,
laugardag og sunnudag.
Opnunartími í Ungó er frá kl.
9.00–23.00 á virkum dögum.
Á laugardögum og sunnudögum er
opið frá kl. 10 til miðnættis.
Ef þú hefur ekki enn kíkt í Ungó þá
er kominn tími til að prófa.