Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2018, Síða 40
40 2. mars 2018
Tímavélin Gamla auglýsinginVerkamaðurinn 8. febrúar 1952Sirkuslíf
Börnin
trylltust yfir
Circus Zoo
Árið 1951 kom Circus Zoo,
sænskur sirkus með dýrum
og fjölleikafólki, til landsins á
vegum SÍBS. Var sýningunni
ætlað að safna fé til að byggja
upp vinnuskála við Reykjalund.
Hundruð ungmenna biðu við
höfnina þegar danska skipið
Drottningin kom með sirkus
inn til landsins. Þar var mik
ið af tömdum dýrum: ljónum,
björnum, öpum og einnig fíll
inn Baba, sem börnin voru svo
áfjáð í að sjá að varnarlína lög
reglunnar brast. Tjald var sett
upp í Skerjafirði og aðsókn
in var gríðarleg. Auk dýranna
mátti sjá loftfimleikafólk, trúða,
marokkóska fimleikamenn og
pólskan dverg. Ekki voru allir
sáttir við komu sirkussins því
að sumir töldu að verið væri
að sóa verðmætum gjaldeyri í
skrípalæti.
Glímdi við birni og jiujitsu-stjörnur
J
óhannes Jósefsson er einna
þekktastur fyrir að reisa Hótel
Borg og reka það í þrjátíu ár.
Var hann kallaður Jóhannes á
Borg eftir það. Áður en Jóhannes
var í hótelbransanum ferðaðist
hann um Evrópu og Ameríku og
sýndi glímu. Einnig var hann einn
af fyrstu keppendum Íslands á
Ólympíuleikunum.
Glímdi við skógarbirni
Jóhannes var fæddur á Oddeyri á
Akureyri árið 1883 í fátækt. Hann
hélt til Noregs til að læra verslunar
fræði, kynntist þar ungmennafé
lagsandanum og hóf að keppa í
glímu af miklum móð. Jóhannes
varð glímukóngur Íslands árin
1907 og 1908 og keppti á sumar
ólympíuleikunum í London árið
1908 í grískrómverskri glímu.
Þetta voru fyrstu leikarnir sem
Íslendingar tóku þátt, þá með
danska keppnisliðinu og sýndu
þeir einnig fangbrögð á leikunum.
Ekki var Jóhannes mikið á Ís
landi á þessum árum því hann
ferðaðist um heiminn og sýndi
íslenska glímu í nærri tvo ára
tugi. Jóhannes ferðaðist með
ýmsum sirkusum, jafnvel heims
þekktum eins og Barnum og
Bailey sirkusnum. Ungmenna
félagsandinn var nú ekki alltaf í
hávegum hafður í þessum sýn
ingum og glímdi hann til að
mynda við skógarbirni.
Íslenska glíman betri en jiujitsu
Árið 1909 skrifaði Jóhannes dag
blaðinu Ísafold bréf frá Sankti
Pétursborg, þar sem hann sagði
frá rimmum sínum við rússneska
glímumenn. Sýndi hann þá í
Circus Ciniselli, sem er sirkus
safn í dag. Sérstaklega minntist
hann rimmu við Kósakka að nafni
Pliskov sem bar rýting og skamm
byssu við belti og hafði ferðast
langa leið til að kljást við Jóhannes.
„Viðureignin stóð í gærkveldi
og lá Kósakkinn eftir 2 mín.
og 3 sek. Skrambi hnellinn ná
ungi, en illa að sjer í íslenskum
brögðum!“
Jóhannes vakti athygli hvert
sem hann fór fyrir glímuna,
sem þótti afbragðs sjálfsvörn og
fremri öðrum bardagalistum. Í
Evening Times segir frá viður
eign Jóhannesar við Diabutzu,
sem var einn allra fremsti jiu
jitsumeistari heims. „Japaninn
fékk ekki einu sinni tíma til að
átta sig á að hann stæði á leik
sviðinu fyrr en búið var að leggja
hann á bakið.“ Jóhannes auðgaðist
á ferðum sínum um heiminn og gat
lagt til fé til að byggja Hótel Borg
árið 1928. Hann settist í helgan
stein árið 1960 og lést átta árum
síðar. n
Gunnar
lyfti fíl
Gunnar Salómonsson, eða
Gunnar Úrsus eins og hann
var gjarnan nefndur, var
glímumaður úr Ármanni
sem keppti á Ólympíuleik
unum í Berlín árið 1936.
Eftir það sýndi hann afl
raunir í fjölleikahúsum víða
um heim og kom oft fram
ásamt Jóhanni Svarfdæl
ingi. Gunnar var þekktur
fyrir að lyfta bílum, hestum
og prömmum sem sjálf
boðaliðar úr áhorfendask
aranum stóðu á. Í október
árið 1942, í miðri heims
styrjöld, barst kveðja frá
Gunnari til allra Íslendinga
í útvarpi frá Berlín. Þá var
tilkynnt að Gunnar hefði
lyft tveggja tonna þungum
fíl hjá einum þekktasta
sirkus veraldar fyrir fram
an sjö þúsund áhorfendur.
Gunnar lést árið 1960 að
eins 53 ára að aldri.
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is
J
óhann K. Pétursson, var hæsti
Íslendingur sem vitað er um og
einn af hæstu þekktu mann
eskjum sögunnar. Gjarnan var
hann kallaður Jóhann Svarfdæl
ingur en stundum Jóhann risi. Í
Ameríku þar sem hann kom fram
í fjölleikahúsum og kvikmynd
um var hann titlaður The Viking
Giant. Íris Ólöf Sigurjónsdóttir hjá
Byggðasafninu Hvoli á Dalvík, þar
sem munir Jóhannesar eru geymd
ir, sagði DV frá ævi hans.
Lokaður inni
Jóhann var fæddur á Akureyri árið
1913 en ólst upp í Svarfaðardal sem
hann er kenndur við. Átta systkini
átti Jóhann og fjölskyldan var fátæk
og hann var sendur í fóstur. Þrettán
ára byrjaði hann að vaxa langt um
fram það sem eðlilegt taldist.
Íris segir: „Steingrímur Matthías
son, læknir á Akureyri, fór með Jó
hann árið 1935 í rannsóknir til Dan
merkur. Einhvern veginn endaði
það þó þannig að Jóhann fór í sirkus
í Dyrehavsbakken og það var selt
inn sýningar á honum. Hann var
lokaður inni á daginn en fékk að
fara út á kvöldin. Svona var líf þeirra
sem voru öðruvísi á þessum tíma.“
Jóhann mældist 220 sentimetrar
árið 1935 en ekki var hægt að stöðva
vöxtinn. Hæstur varð hann 234
sentimetrar og 163 kíló að þyngd.
Í sýningum var þó fullyrt að hann
væri 268 sentimetrar og hæsti maður
heims. „Hann samsvaraði sér vel og
var hörkumyndarlegur. Þess vegna
kom hann fram í kvikmyndum.“
Óánægður með Íslendinga
Jóhann kom fram með fjölleika
húsum og í skemmtigörðum í
Evrópu fram á stríðslok. Þá flutti
hann heim til Íslands og setti upp
kvikmyndasýningar víðs vegar um
land auk þess sem hann sýndi sig
og sagði sögur. Jóhann átti einnig
sérsmíðaða harmoniku sem hann
spilaði ævinlega á í sýningum.
Hvað fannst honum um hlut-
skipti sitt í lífinu?
„Hann var mjög óánægður með
það og óánægður með Íslendinga.
Hann langaði til að búa hér á landi
og opna tóbaksverslun en fékk
enga fyrirgreiðslu. Því var hann
hrakinn aftur út í heim til þess að
vera sýningargripur sem honum
fannst vera niðurlægjandi. Hann
starfaði við þetta þangað til hann
var orðinn veikur og gamall en
þetta var ekki hlutskipti sem hann
valdi sér sjálfur.“
Árið 1948 flutti Jóhann til
Bandaríkjanna og næstu fimmtán
árin ferðaðist hann um með þekkt
um fjölleikahúsum þar í landi, svo
sem Baileys, Barnum og Ringling
Bros. Árið 1963 keypti hann vagn
og hóf eigin rekstur til ársins 1972
þegar hann settist í helgan stein.
Einn af síðustu sýningargripunum
Alla tíð var Jóhann heilsuveill mað
ur og slæmur í baki. Síðustu tíu ár
ævi sinnar kom hann nokkrum
sinnum til Íslands, meðal annars til
að sækja læknisþjónustu og endur
hæfingu á Reykjalundi. Eftir slys á
heimili sínu í Flórída árið 1982 flutti
hann heim til Íslands og bjó síðustu
tvö árin á dvalarheimilinu á Dalvík
þar sem honum var mjög vel tekið.
„Jóhann var einn af þeim síðustu
sem lentu í þessu. Um það leyti sem
Jóhann hætti að koma fram hættu
sirkusarnir með þessar „viðundra
sýningar“ sem voru auðvitað ekki
æskilegar, þar sem voru skeggjað
ar konur, risar, dvergar og svo fram
vegis. En honum var margt til lista
lagt og lífið var ekki eintóm eymd.“
Jóhann kvæntist aldrei en átti
eina dóttur, Gertrud, með danskri
barnsmóður. Sú stúlka var gefin
í fóstur fjögurra ára gömul en Jó
hann kynntist henni aftur síðar á
lífsleiðinni. Alla tíð var Jóhann í
miklum tengslum við fjölskyldu
sína hér á Íslandi og var vel með á
nótunum í þjóðmálunum. n
fannst niðurlægjandi
að vera sýningargripur
Jóhann risi
Jóhann Svarfdælingur
Hraktist frá Íslandi.
Jóhann K.
Pétursson
Var heilsu-
veill alla tíð.