Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2018, Síða 41

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2018, Síða 41
tímavélin 412. mars 2018 Flúði úr sirkus Í október árið 1935 kom kín­ verskur maður að nafni Zikka Wonz til Reykjavíkur til þess að halda fyrirlestur um ævi sína. Kom hann hingað á veg­ um Hjálpræðishersins því hann hafði tekið kristna trú eftir að hafa sloppið úr sirkus og stundaði eftir það trúboð. Wonz var fæddur í Shanghai en missti foreldra sína eins árs gamall. Var hann þá seld­ ur í sirkus og þjálfaður til að sýna kvalafullar „loddaralistir“ eins og segir í Morgunblaðinu. Meðal annars var hann látinn hanga á hárinu vera skotmark hnífa og bar hann þess merki síðan. Wonz hafði nokkrum sinnum áður reynt að flýja sirkusinn en var ávallt hand­ samaður aftur. Reynir skoraði sirkus-mann á hólm Sumarið 1978 hélt fjölleikahús Englendingsins Gerry Cottle sýningar í Laugardalshöll og þar kom meðal annars fram Barnet Travell, „sterkasti mað­ ur heims“. Tókst hann á við 12 sýningargesti í reiptogi í hverri sýningu. Reynir Örn Leósson, sem komst í heimsmetabók Guinness, var ekki par sáttur við þennan titil sem Travell var gefinn, enda hafði hann hvorki hnekkt heimsmetum Reynis né annarra krafta­ manna. Á þessum tíma hafði Reynir hætt aflraunum vegna blóðtappa en engu að síður bauðst hann til þess að koma fram í fjölleikahúsinu og leika sömu listir og Travell. Þ ekktasti dvergur Íslands­ sögunnar hlýtur að vera Ólöf Sölvadóttir, títt nefnd Ólöf eskimói. Hún flutti ung til Vesturheims, átti þar ævin­ týralega ævi og varð heimsfræg fyrir fyrirlestra sýna. Inga Dóra Björnsdóttir mannfræðingur skrifaði ævisögu Ólafar árið 2004, Ólöf eskimói: ævisaga íslensks dvergs í Vesturheimi, og ræddi við DV um þessa merku konu. Dvergar minni máttar Ólöf var fædd í Blöndudal í Húna­ vatnssýslum árið 1858 með það sem kallast dvergs­heilkenni og var 122 sentimetrar á hæð fullvax­ in. Að alast upp sem dvergur var erfitt á 19. öldinni og sérstaklega á Íslandi. Inga Dóra segir: „Dvergar voru minni máttar, Ólöf hefði end­ að sem hjú eða niðursetningur á einhverjum bóndabæ hefði hún búið á Íslandi. Fjölskylda hennar var sárafátæk og þess vegna fluttu þau vestur um haf til Ameríku líkt og margir Íslendingar á þessum tíma.“ Átján ára gömul flutti Ólöf til Nýja Íslands með föður sínum, stjúpmóður og systkinum en þar bjuggu þau aðeins í eitt ár. Þá fluttu þau til borgarinnar Winnipeg og Ólöf starfaði sem vinnukona. Í stórborgarlífinu í Ameríku opnuðust dyr fyrir hina dvergvöxnu konu, því hún gat séð fyrir sér með því að sýna í fjöl­ leikahúsum. Þessu áttaði hún sig á þegar kona sem hún vann fyrir rukkaði gesti sína fyrir að fá að sjá Ólöfu að störfum. Ólöf vildi að sjálfsögðu sjálf hagnast á út­ liti sínu og í fjölleikahúsunum bjó hún til atriði sem hún átti eftir að verða heimsfræg fyrir. Skáldaði líf inúíta Ólöf klæddist ísbjarnarfeldi og sagði áhorfendum frá ævi sinni á snjóbreiðum Grænlands sem var auðvitað uppspuni frá rótum því hún hafði aldrei komið til Græn­ lands. Hún gekk undir nafninu Ólöf Krarer en í seinni tíð hefur hún fengið viðurnefnið Ólöf eski­ mói. Hún sagði þessar sögur með miklum tilþrifum og leikrænni tjáningu og áhorfendur hrifust af henni. Fljótt varð hún vinsælasta atriðið og segja má að hún hafi sprengt fjölleikahúsin utan af sér. Því tók hún upp á því að ferðast á eigin vegum um Bandaríkin og Kanada og halda fyrirlestra með sama sniði. „Ólöf varð fræg á því að ferðast um Ameríku og halda fyrirlestra. Hún var mjög eftirsótt og efnaðist vel.“ Ólöf vissi ekkert hvernig lífi inúítar á Grænlandi eða annars staðar lifðu og því þurfti hún að beita mikilli skáldskapargáfu. Til dæmis sagði hún fólki að kuldinn á Grænlandi væri slíkur að börnin fengju aldrei að fara út fyrir snjó­ húsið og ef inúítabörn væru óþekk væru þau brennimerkt af mæðr­ um sínum. Hún sór heimaland sitt Ísland þó ekki alveg af sér enda átti hún erfitt með að útskýra hvers vegna hún talaði fullkomna íslensku. Í fyrirlestrum sínum sagði Ólöf að hún hefði flutt með fjölskyldu sinni til Íslands um stund. En ís­ lenska veðráttan og hlýjan hent­ aði inúítunum illa og því hafi hún flutt vestur um haf til Ameríku. Ólöf var með umboðsmann sem kynnti hana vel og þegar hún var tæplega þrítug, árið 1887, kom út ævisaga hennar á ensku, með lygasögunum um inúítalífið en ekki almúgalífið í Húnavatnssýsl­ unum. Ævisagan kennd í háskólum Þeir sem hafa kynnt sér sögu Ólafar í seinni tíð hafa margir hrif­ ist af henni, klókindum hennar og útsjónarsemi. Hvernig útlensk, dvergvaxin kona, alin upp í sárri fátækt, gat orðið fræg og efnuð í sjálfri Ameríku á þeim tíma þegar konur almennt höfðu lítil réttindi. Að hún hafi vísvitandi logið að áhorfendum sem komu til að sjá hana virðist skipta minna máli. En einnig má segja að hún hafi gert lítið úr menningu inúíta, minni­ hlutahóps sem almenningur í Ameríku þekkti ekkert. Trúði fólk því sem hún sagði eða leit það meira á fyrirlestrana sem skemmtun? „Það trúði því sem hún sagði. Ævisaga hennar var notuð sem kennslubók bæði á barnaskóla­ stigi og á háskólastigi.“ Gerðu inúítar sjálfir engar athugasemdir við þessa fyrirlestra hennar? „Nei, enginn Grænlendingur vissi af henni. Fréttir bárust seint og illa á þessum tímum. Inúítar í Kanada og Alaska vissu greinilega ekkert um hana heldur.“ Íslendingar skömmuðust sín Ólöf giftist aldrei og átti engin börn. Hún kom aldrei aftur til Ís­ lands og lést 76 ára gömul árið 1934 í Bandaríkjunum. Hún rauf í raun og veru öll tengsl við Ís­ land þegar hún flutti út. Þrátt fyrir frægð hennar í Ameríku vissu ekki margir Íslendingar af tilvist henn­ ar og athæfi. „Sumir Íslendingar í Vesturheimi vissu af henni, en þeir afhjúpuðu hana ekki.“ Inga segir að margir hafi þó verið hneykslaðir á henni. Árið 1902 er skrifuð frétt í dag­ blaðinu Lögbergi frá Ameríku og er hún ekki skjallandi: „Ólöf Krarer – sem réttu nafni heitir Ólöf Sölvadóttir og strauk héðan úr bænum fyrir meira en tuttugu árum síðan – á að halda fyrir­ lestur hér í bænum 10. næsta mánaðar fyrir Young Men's Christian Association. Umtals­ efni hennar á að vera „Búningar og lifnaðarhættir íslenskra eski­ móa (!!!) Það er merkilegt, hvernig Ólöfu þessari hefir tekist öll þessi ár að spila á vitleysu tilheyrenda sinna; og hún má vera Íslending­ um þakklát fyrir að hafa ekki kom­ ið upp um hana öllum þvættingn­ um og lýginni, sem hún hefur gert að lífsstarfi sínu.“ Í Alþýðublaðinu frá 1937 segir að Magnús Björnsson, fósturbróð­ ir Ólafar, hafi eitt sinn rekist á hana í sirkus skömmu eftir að hún hóf að sýna. „Hún lézt ekki þekkja hann, og þótti honum það ekki miður.“ Engar minningargreinar voru ritaðar um Ólöfu í íslenskum blöðum en í amerískum var henni gert hátt undir höfði í kjölfar and­ látsins. n Dvergurinn sem Ameríkanar dáðu en Íslendingar fyrirlitu n Ólöf Sölvadóttir þóttist vera eskimói n 122 sentimetrar á hæð Kristinn Haukur Guðnason kristinn@dv.is „Hún lézt ekki þekkja hann, og þótti honum það ekki miður. Inga Dóra Björnsdóttir „Dvergar voru minni máttar, Ólöf hefði endað sem hjú eða niðursetningur á einhverjum bóndabæ hefði hún búið á Íslandi.“ Ólöf í fullum skrúða Lögberg – Heimskringla 31. maí 2002. Hítardals- annáll 1732 Í Herdísarvík týndi maður sjálfum sér.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.