Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2018, Side 45

Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2018, Side 45
sport 452. mars 2018 P eningar stjórna nú orðið íþróttum og hvergi meira en í fótboltanum þar sem rosalegar upphæðir eru í boði. Í Kína eru ótrúlegar fjárhæð- ir í boði fyrir leikmenn sem þang- að koma og til að reyna að stoppa þessa þróun voru settar reglur um fjölda erlendra leikmanna hjá hverju liði. Hvert lið í úrvalsdeildinni í Kína má aðeins hafa fimm er- lenda leikmenn á launaskrá sinni, þetta er gert til að reyna að bæta fótboltann í Kína og leikmenn þaðan, tryggja að þeir fái að spila. Hvert lið má svo aðeins vera með fjóra erlenda leikmenn á vellinum á hverjum tíma. Lið í Kína reyna því oft að losa sig við erlenda leik- menn sem eru meiddir eða hafa ekki staðið undir væntingum og fara ýmsar leiðir til þess. Það vakti nefnilega talsverða athygli þegar FH fékk Edigeison Almeida Gomes varnarmann frá Gíneu-Bissá lánaðan frá Henan Jianye í Kína í vikunni. Gomes er meiddur og þar að auki líklega alltof góður til að spila á Íslandi, Gomes lék í Danmörku og lék með landsliði Dana á Ólympíuleikun- um árið 2016. Danskir fjölmiðlar áttuðu sig ekki á því hvað Gomes væri að gera á Íslandi, hann væri allt of góður leikmaður fyrir Pepsi- deildina. Henan Jianye var með fimm er- lenda leikmenn þegar Gomes var í herbúðum félagsins og ekki útlit fyrir að hann spilaði á næstunni, félagið vildi því koma honum burt um tíma til að ná inn öðrum er- lendum leikmanni áður en félaga- skiptaglugginn í Kína lokaði á fimmtudag, það gekk eftir. Gomes var lánaður til FH og inn kom Cala frá Getafe. Ekki er öruggt að Gomes komi til Íslands en hann mun vera í endurhæfingu í Kína. Ef hann kemur ekki til með að spila neitt fyrir FH getur félagið átt von á greiðslu frá Henan Jianye. „Hann er meiddur og allir sem eru meiddir vonast til þess að verða heilir, við gerum þetta þannig að ef hann lagast ekki þá er þetta okkur að kostnaðarlausu. Þeir stjórna endurhæfingunni, þeir hafa fleiri og betri sjúkraþjálf- ara en við hérna. Það er enginn kostnaður á okkur, það gæti far- ið svo ef hann spilar lítið eða ekk- ert þá fengjum við greiðslu en það myndi þá snúast við ef hann spilar mikið að þá yrðum við að greiða eitthvað. Þessi greiðsla sem við gætum fengið er í raun þá fyrirhafnargjald ef hann spil- ar ekki, það eru ekki neinar upp- hæðir. Þetta kom upp í gegnum umboðsmann í Danmörku,“ sagði Jón Rúnar Halldórsson, formaður knattspyrnudeildar FH, um mál- ið. Tveir starfsmenn liða í Pepsi- deild karla sem DV ræddi við sögðu að tilboð sem þessi kæmu sífellt oftar frá Asíu. Þannig væri liðum oft boðnar 2–3 milljónir fyrir það eitt að taka við leikmanni frá Kína sem liðin þurfa að losa sig við, hvort sem það er tímabundið eða til frambúðar. Leikmaðurinn sjálfur kæmi aldrei til Íslands en félagið hefði gróða af þessu. Framkvæmdastjóri eins liðs í deildinni, sem vildi ekki koma fram undir nafni, sagði þetta ekki ólöglegt. „Við höfum fengið nokk- ur svona tilboð, þetta hljómar vel og þetta er ekki ólöglegt en svo er annað mál hvort þetta geti talist siðlaust. Við ákváðum að taka ekki þátt í þessu, liðin í Asíu eru undir hörðum reglum en eiga gríðarlega fjármuni. Þau geta því nýtt sér lið í minni deildum þegar þau þurfa að komast fram hjá reglunum í sínu landi er varðar erlenda leik- menn.“ n Gætu fengið greitt frá Kína ef leikmaðurinn spilar ekkert Hörður Snævar Jónsson hoddi@433.is Gríðarlegar fjárhæðir og hert lög í Asíu hafa búið til möguleika fyrir minni lið að hagnast Edigeison Almeida Gomes Í leik með danska landsliðinu á Ólympíuleikunum árið 2016. „Greiðslan sem við gætum fengið er þá fyrirhafnargjald ef hann spilar ekki. Hjálpa þér að halda öllu í skorðum í skúffum. Einnig sjálflímandi filt til að klæða skúffur og filt með verjandi efni svo ekki falli á silfur og silfurplett. Við eigum líka fægilög, fægiklúta og ídýfulög til að hreinsa. Sjálflímandi hnífaparaskorður Frakkastíg 10 | Sími 551 3160 | gullkistan@vortex.is | www.thjodbuningasilfur.is Sendum í póSt- kröfu

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.