Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2018, Page 49
fólk - viðtal 492. mars 2018
„Það er mömmu og ömmu að
þakka að ég átti dásamlega æsku.
Ég þakka mömmu fyrir hugrekkið
að hafa látið mig til ömmu. Amma
á líka mikinn þátt í því að ég byrj-
aði að syngja en ég var þriggja ára
þegar ég var farinn að syngja alla
daga.“
Einkatónleikar
Kalli og amma hans ferðuðust
reglulega saman með rútu á milli
Grundarfjarðar og Reykjavíkur
þegar hann var polli. Þá fékk Elna
leyfi hjá bílstjóranum til að leyfa
Kalla að grípa í hljóðnema í rút-
unni sem var ætlaður fararstjórum.
„Ég tók stundum lagið í rútunni
fyrir farþegana og þótti flestum
það skemmtilegt, sem betur fer,“
segir Kalli Bjarni og hlær. „Þetta
varð til þess að ég losnaði snemma
við alla feimni. Amma var líka
alltaf að fá mig til að syngja og og
semja og spila á hljóðfæri.“
Kalli bætir við að æska hans
hafi verið góð og honum liðið vel
á Grundarfirði. Hann var í hljóm-
sveit með félögum sínum og 12
ára byrjaði hann að vinna eins og
margir krakkar á þessum tíma.
Vann hann við að pilla rækjur og
til að ná upp á færibandið þurfti
hann að standa á bláum mjólkur-
kassa. Peningurinn fór svo í gos og
prins pólo.
Fyrsti sopinn
Þegar Kalli var 14 ára tók hann
örlagaríka ákvörðun. Þá bragðaði
hann áfengi í fyrsta sinn. Kalli lýs-
ir því á þann hátt að á skemmtun í
Grundarfirði á þjóðhátíðardaginn
stóð hann uppi á sviði ásamt
hljómsveit þegar gosflösku með
áfengi var hent þar upp. Kalli fékk
sér sopa og endaði kvöldið á þann
hátt að hann kom heim til ömmu
sinnar undir áhrifum áfengis.
Amma hans las yfir hausamótun-
um á barnabarninu og lét Kalli
áfengi vera í nokkra
mánuði á eftir.
Það var síðan ekki fyrr
en í 10. bekk í grunnskóla
sem áfengis neyslan
hófst fyrir alvöru.
Kalli flutti þann vet-
ur í Neðra-Breiðholt til
móður sinnar en amma
hans glímdi við veik-
indi á þeim tíma. Lopa-
peysa vék fyrir leðri og
gúmmí túttunum var
fljótlega lagt.
„Ég kom úr
vernduðu umhverfi
og allt í einu var ég
innan um hóp af krökkum þar
sem maður var ekki samþykktur
nema maður drykki líka. Ég setti
geislabauginn á hilluna og upp
fór hanakamburinn og ég þóttist
vera voða svalur og bjó til aðra og
harðari útgáfu af sjálfum mér.“
Á þessum tíma fór Kalli einnig
að fikta við fíkniefni og ánetjaðist
kannabisefnum og fiktaði einnig
við harðari efni. Ekki leið á löngu
þar til hann var sendur á með-
ferðarheimilið Tinda. Meðferðar-
stöðin, sem var á Kjalarnesi, hjálp-
aði mörgum unglingum á þessum
tíma en um var að ræða afar metn-
aðarfullt úrræði fyrir unglinga sem
stóð yfir í nokkra mánuði. Á Tind-
um kynntist Kalli piltum á svipuðu
reki sem höfðu glímt við fíkn. Í kjöl-
farið stofnuðu þeir hljómsveitina
Viridian Gree um miðjan tíunda
áratuginn. Hljómsveitin var efni-
leg og spilaði víða. Sigurjón Ingi-
björnsson var í hljómsveitinni með
Kalla en hann segir:
„Það kom snemma í ljós að
Kalli Bjarni var mikið tónlistar-
mannsefni. Hann er með tón-
vissari mönnum sem ég þekki.
Málið var bara að hann kæmi sér
á framfæri. Og það hefur hann svo
sannarlega gert.“
Kalli og vinir hans í sveitinni
voru án áfengis í um tvö ár og
hjálpuðu hver öðrum að halda
sér á beinu brautinni. Þegar þeir
svo misstu tökin gerðist það sama
kvöldið. Í kjölfarið horfði Kalli
upp á einn sinn besta vin, sem
einnig var í sveitinni og var kallað-
ur Kiddi, falla í greipar fíknarinn-
ar á ný. Þeir stefndu á plötuútgáfu
saman. Það varð aldrei neitt úr
því. Kiddi missti tök á neyslunni
og sá enga aðra leið en sjálfsvíg.
Kalli ákvað síðar að heiðra minn-
ingu hans með laginu Til Kidda.
Andleg vakning á Skólavörðustíg
Barátta Kalla við fíknina hélt áfram
en í kringum um 18 ára aldurinn
flutti hann til Vopnafjarðar og
byrjaði á sjó. Þá var hann á togara.
Bjó Kalli meira og minna á Vopna-
firði næstu fjögur árin.
„Ég sá eftir að hafa ekki lokið
námi og ég var týndur og vissi
ekki hvað ég vildi. Flóttaleiðin
var áfengi og neyslan ágerðist. Í
kjölfarið var ég búinn að koma
mér í vandræði og hafði feng-
ið sektir vegna smábrota sem
tengdust neyslunni og þurfti að
sitja í sektarfangelsi í um viku á
Skólavörðustíg og var einnig um
tíma í Kópavogsfangelsinu.“ Þar
varð Kalli fyrir andlegri vakningu.
Í viðtali við DV árið 2004 rifjaði
hann upp fangelsisvistina:
„Mig fór allt í einu að dreyma,
og milli svefns og vöku sá ég sjálf-
an mig sem barn, þar sem spurt
var: Hvað ætlar þú að verða þegar
þú ert orðinn stór? Og ég sá ömmu
þar sem hún var að kenna mér um
allt hið góða í lífinu og ég sá Öllu
fyrir mér. Það breyttist allur minn
hugsunargangur í einu vettvangi
og ég fann það svo sterkt að líf mitt
eins og það var á þessum tíma-
punkti var ekki það sem ég lagði
upp með, það var ekki í samræmi
við það veganesti sem mér var
gefið af góðu fólki. Ég vil meina
að þarna hafi einhvers konar æðri
máttur verið að verki, þótt ég sé
efasemdarmaður í trúmálum.
Þetta var eins og faðir hefði tek-
ið son sinn, hent honum í sætið og
skipað honum að hlusta. Ég vakn-
aði upp, leit til baka og hugsaði:
Er ég bara búinn að vera sofandi
í öll þessi ár? Ég lokaði á allt þetta
lífsmunstur sem ég var búinn að
vera í og fetaði veginn alveg gjör-
samlega upp á nýtt. Fljótlega fann
ég gamalkunna, hlýja tilfinn-
ingu heima með konunni minni
og dóttur hennar, þessa öryggis-
tilfinningu sem ég hafði alltaf sem
barn heima hjá ömmu og það var
meiriháttar.“
Eignast barn
Kalli var um 23 ára þegar hann tók
ákvörðun um að fara í meðferð. Í
eftirmeðferð á Staðarfelli kynnt-
ist hann barnsmóður sinni
Öllu. Þau fluttu til Grinda-
víkur og árið 2001 eignuð-
ust þau son sem fékk nafnið
Maríus Máni. Þremur árum
síðar átti Kalli eftir að verða
þjóðþekktur. Á þeim tíma
gekk Kalla allt í haginn.
Hann var í góðri vinnu, há-
seti á frystitogara, í góðu hús-
næði og lífið lék við hann.
Vinnufélagar hans skráðu
hann að honum forspurðum
í Idol-stjörnuleit. Það má því
segja að þeir hafi haft gríðarleg
áhrif á líf hans. Kalli sló strax í gegn
í fyrsta þætti þar sem dómararn-
ir héldu ekki vatni yfir hæfileikum
hans. Meðan á keppninni stóð var
Kalli í landi og því litlar tekjur fyrir
fimm manna fjölskyldu.
„Síðustu tvær vikurnar fyrir úr-
slitakvöldið þá rétt skrimti maður.
Ég þurfti nánast að raka saman
öllu klinki sem til var svo hægt
væri að kaupa mjólk í grautinn. Á
tímabili þurfi ég að láta skrifa hjá
mér mjólkina í kaupfélaginu.“
Kalli var heimsfrægur á Íslandi
eftir keppnina. Alls staðar gjóaði
fólk á hann augum, vildi mynd-
ir eða áritanir. Lífið var breytt.
Hann var stjarna. Og fyrirmynd.
Kalli gagnrýnir helst skipulagið og
þrátt fyrir að hafa unnið keppn-
ina vissi hann ekki hvert hann
væri að stefna sem listamaður. Nú
átti hann að keppa við þá stóru
á markaðnum. Við tók hver við-
burðurinn á fætur öðrum og oft
var Kalli yfirbókaður. Átti hann að
syngja jafnvel á átta stöðum sama
daginn.
„Á endanum leitaði ég í kókaín
til að komast í gegnum daginn og
til að geta haldið áfram. Ég var
orðinn úrvinda eftir keppnina og
álagið jókst bara eftir hana. Ég hélt
að þetta væri lausnin en auðvitað
hafði ég rangt fyrir mér.“
Kalli gaf út plötu sem fékk
blendnar viðtökur. Neyslan jókst
og eftir því sem tíminn leið heyrð-
ist æ minna í Kalla. Í mars 2005
eignaðist hann svo sitt þriðja barn.
Tveimur árum síðar slitnaði upp
úr sambandi Kalla og Öllu. Skuld-
aði Kalli þá á aðra milljón króna
vegna neyslu og af ótta samþykkti
hann að flytja fíkniefni til landsins.
Kalli rifjaði upp þessa örlagaríku
ferð í Burðardýrum þar sem hann
greindi frá því að hann hefði stað-
ið í þeirri trú að um væri að ræða
700 grömm af kókaíni. Þegar Kalli
var stoppaður í tollinum í Keflavík
reyndist magnið vera tvö kíló.
Kalli greindi einnig frá því að
þegar hann var á leiðinni á Litla-
Hraun í lögreglubílnum hefði aug-
lýsing hljómað í útvarpinu. Kalli
lýsir augnablikinu á þennan hátt.
„Ég sat aftur í, í handjárnum og
fótajárnum. Allt í einu heyrist út-
varpsauglýsing, svakalega hress
rödd og það var verið að auglýsa
Sjóarann síkáta. „Ekki missa af
stemningunni á Sjóaranum síkáta
um helgina, Kalli Bjarni og Magni
á Móti sól mæta og halda uppi
stuðinu!““
Lögreglumaðurinn leit á Kalla,
glotti og spurði: „Á ekki að mæta?“
Missti bróður og
föður á sama árinu
Kalli sat í þrjá mánuði í gæslu-
varðhaldi. Þegar dyrnar lokuðust
fann hann aðeins fyrir létti. Hann
sá fram á að losna undan fíkninni
og þurfa ekki lengur að lifa í blekk-
ingu og feluleik. Kalli var ákveðinn
í að nýta þessa reynslu á jákvæðan
hátt og vinna í sjálfum sér. Hann
var vel liðinn af fangavörðum og
byrjaði að skrifa sögur til að geta
sagt börnum sínum. Ítrekað var
fjallað um málið í fjölmiðlum en
móðir hans sagði í viðtali við Stöð
2:
„Hann hlýtur að hafa verið
burðardýr fyrir aðra því ég vissi
alls ekki til þess að hann væri í
dópinu. Ég hefði átt að taka eftir
því eftir öll þessi ár sem við höfum
búið saman.“
Þá sagði mamma hans í öðru
viðtali:
„Enginn í fjölskyldunni okkar
væri á lífi í dag ef hann hefði sagt
frá þeim sem stóðu að smyglinu.
Þessi heimur er svo harður að það
kom aldrei til greina að segja til
þeirra manna sem stóðu á bak við
þetta.“
Kalli var dæmdur í tveggja
ára fangelsi vegna smyglsins og
ákvað að una dómi Héraðsdóms
Reykjaness. Hann hóf afplán-
un þann 1. maí 2008. Afplánunin
hófst í Hegningarhúsinu en hann
var fljótlega fluttur á Kvíabryggju.
Kalla leið vel á Kvíabryggju sem er
á hans heimaslóðum í Grundar-
firði. Þar vann Kalli við beitningar.
„Ég fékk kannski sjö þúsund
kall í laun á viku en þetta voru pen-
ingar sem ég vann inn með blóði,
svita og tárum. Ég lærði gildin upp
á nýtt og fór í ítarlega sjálfskoðun í
sveitinni. Meðan á vistinni stóð dó
faðir hans. Var það mikill missir.
Ári síðar dó bróðir hans. Þeir
sviptu sig báðir lífi. Sársaukinn var
gríðarlegur en Kalli var afar náinn
þeim báðum.
Fangelsisyfirvöld gáfu Kalla
leyfi sumarið 2009 til að dvelja á
Vernd síðustu þrjá mánuðina en
Vernd er opið úrræði. Þar stofnaði
Kalli hljómsveit ásamt bróður sín-
um. Eftir dvölina tók við tími í að
vinna inn traust fjölskyldunnar og
vina á ný.
Brást heilli þjóð
Síðustu ár hefur Kalli stundað sjó-
inn grimmt og reynt að halda sér
réttum megin við strikið. Þegar
blaðamaður DV heyrði í Kalla
var hann á leið í land með
„Ég fékk til mín
heilladísina
sem ég er ekkert smá
ástfanginn af og ham-
ingjusamur með. Hún er
búin að vera að hjálpa
mér og benda mér á þá
kosti sem ég bý yfir.
„Ég sat aftur í, í
handjárnum og
fótajárnum. Allt í einu
heyrist útvarpsauglýsing,
svakalega hress rödd og
það var verið að auglýsa
Sjóarann síkáta. „Ekki
missa af stemningunni
á Sjóaranum síkáta um
helgina, Kalli Bjarni og
Magni á Móti sól mæta
og halda uppi stuðinu!“
Von á barni Kalli Bjarni og Anna bíða spennt eftir syninum.
Hamingja Liturinn í
kökunni var blár. Drengur
á leið í heiminn í júní.