Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2018, Qupperneq 50
50 fólk - viðtal 2. mars 2018
fullfermi. Eftir að hafa landað afl-
anum var haldið strax á sjóinn aft-
ur. „Um það snýst lífið,“ segir Kalli.
„Að róa á miðin og draga aflann
að landi og leggja sitt af mörkum,
fyrir fjölskylduna og samfélagið.
Þú getur heimfært sjómennskuna
upp á allt í lífinu. Á sjónum finn ég
líka ró og öryggi.“
Kalli greindi enn fremur frá
því í Burðardýrum að hann hefði
lengi verið með samviskubit eftir
að hafa byrjað aftur að neyta fíkni-
efna eftir sigurinn í Idol um árið.
„Mér fannst ég hafa brugðist
heilli þjóð,“ sagði Kalli. „Ég vann
fyrsta Idolið. Hvað þýðir Idol? Það
þýðir fyrirmynd. Ég var ekki rosa-
lega góð fyrirmynd.“ Kalli hafði í
mörg ár reynt að hætta alfarið allri
neyslu en það aðeins tekist um
tíma. Hann ákvað því að nálgast
baráttuna við fíknina á annan hátt.
„Ég var orðinn þreyttur og það
tók á að vera endalaust í baráttu
og þrauka edrú í örfáa mánuði og
falla og særa fólk. Um leið og ég
hætti að berjast og reyndi frekar
að hafa hemil á neyslunni
gekk það betur og í raun mun
betur en ég þorði að vona.
Þetta dró úr löngun og ég
særi fjölskyldu mína minna á
þann hátt heldur en þegar ég
er ekki að drekka. Þetta bjarg-
aði lífi mínu, því þegar ég féll
fór ég alltaf á dýpri stað. Í dag
er ég meðvitaður um mínar
skyldur og mitt hlutverk.
Að vera í mikilli neyslu, það
er ekki líf. Þetta er ekki töff, þú
ert ekkert svalur. Það er enginn
kóngur nema rétt á meðan
kílóið er að klárast.“ Þá sagði
Kalli enn fremur í Burðardýr-
um: „Þótt ég hafi dottið mjög illa
í gegnum lífið hef ég alltaf náð að
standa upp, þurrka af hnjánum og
halda áfram. Ef maður er tilbúinn
til þess og tilbúinn til að læra af
mistökunum sínum, þá hlýtur
þetta að enda með því að maður
sé sáttur í eigin skinni.“
Amma til bjargar
Það er ekki hægt að kveðja Kalla
án þess að minnast á þáttinn
Burðardýr og lokasenuna í þeim
þætti. Óhætt er að segja að þá hafi
Kalli brætt hjörtu allra þeirra sem
horfðu á þáttinn.
Í hjartnæmu lokaatriði þáttarins
heimsótti Kalli Bjarni ömmu sína á
hjúkrunarheimili á Grundarfirði
þar sem hann gerði sér lítið fyr-
ir og setti upp einkatónleika inni
í herbergi hennar, en gamla kon-
an grét eftir að Kalli hafði sungið
finnskan sálm. Samband Kalla og
Elnu ömmu hans er einstakt enda
var hún um tíma móðir hans. Elna
hefur gengið í gegnum margt og
starfaði í Finnlandi í seinni heims-
styrjöldinni við að hjúkra særðu
fólki. Þá reynslu nýtti hún til að
bjarga Kalla.
„Amma er nagli,“ segir Kalli og
sýnir ör á handleggnum. Þegar
Kalli var um 10 ára gamall var
hann að fara upp stiga á heimili
þeirra. Það vildi svo illa til að í
efsta þrepinu skrikaði honum
fótur og hann féll niður. Kalli sat
á gólfinu og horfði á bein stingast
út úr handleggnum. Allar sinar
voru í sundur. Blóðið fossaði.
Ósæð og háræð voru í sundur.
Kalli var hreinlega í lífshættu.
„Amma reif sig síðan úr
sokkabuxunum og hnýtti þær
utan um mig. Svo dró hún mig
inn á bað og lét mig liggja með
höndina ofan í köldu vatni á með-
an hún hringdi á lækninn. Hún
var búin að vinna við að taka á
móti særðum hermönnum þegar
hún var 15 ára. Bæði ósæðin og
háræðin fóru í sundur.“
Eftir að hafa bjargað lífi barna-
barnsins tók við erfið endurhæf-
ing. Elna vissi að ef Kalli Bjarni
ætti að geta nýtt höndina seinna
á lífsleiðinni yrði hún að láta til
sín taka. Og hún fann lausnina og
keypti BMX-hjól. Hjólið mátti Kalli
hins vegar aðeins nota ef hann
stýrði með vinstri.
„Hún bannaði mér að nota
hægri höndina,“ segir Kalli og
hlær. „Eitt sinn kom hún að mér
inni í Grundarfirði þar sem ég var
á BMX-hjólinu mínu og var að
nota hægri. Hún tók af mér hjól-
ið, þannig að ég grenjaði og grenj-
aði með ekkasogum og hún lét
mig ekki hafa það fyrr en eftir tvo
mánuði,“ segir Kalli og bætir við að
á endanum hafi hann getað stýrt
og prjónað með vinstri höndinni.
Þessa konu, sem hefur alltaf
verið til staðar, ætlar Kalli að
heiðra síðar í mánuðinum með
lagi á afmælisdaginn.
Nýtt líf
Kalli bætir við að hann horfi til
þess að láta að sér kveða á ný í tón-
list. Hann lýsti því yfir í viðtali að
hann ætli seinna í mánuðinum, á
afmælisdegi ömmu sinnar að gefa
út nýtt lag. Þá er Kalli ástfanginn
upp fyrir haus en hann er
trúlofaður Önnu Valgerði Larsen.
Í þættinum Burðardýrum sagði
Kalli Bjarni um ástina:
„Þegar ég bjóst engan veginn
við því, þá finnst mér eins og
karma hafi gripið þarna inn í og
hugsað með sér, er þetta ekki
komið gott hjá Kalla í bili? Ég
fékk til mín heilladísina sem ég
er ekkert smá ástfanginn af og
hamingjusamur með. Hún er búin
að vera að hjálpa mér og benda
mér á þá kosti sem ég hef. Það er
það sem maður þarf, sálufélaga
með manni í liði,“ sagði Kalli og
augljóst að Anna Valgerður hafði
heillað hann upp úr skónum. Þá
er von á enn frekari tíðindum af
parinu því Anna Valgerður gengur
með barn þeirra undir belti.
„Þann 9. júlí mun lítið svein-
barn líta dagsins ljós,“ segir Kalli
og er eftirvæntingin mikil. Fram-
tíðin er björt. n
„Ég vann fyrsta
Idolið. Hvað þýðir
Idol? Það þýðir fyrirmynd.
Ég var ekki rosalega góð
fyrirmynd.
Söng fyrir ömmu Kalli Bjarni söng finnskan
sálm fyrir ömmu sína á hjúkrunarheimilinu.
Eftir sönginn brast sú gamla í grát.
Ausinn lofi Kalli bjóst aldrei við að komast áfram en dómararnir, Bubbi, Sigga Beinteins og
Þorvaldur, sáu strax að hann bjó yfir miklum hæfileikum.
Mikill missir
Kalli ásamt
sínum besta
vini, sem missti
tökin á neysl-
unni og framdi
sjálfsmorð.