Dagblaðið Vísir - DV - 02.03.2018, Síða 59
lífsstíll 592. mars 2018
Láttu þér ekki vera kalt
Sími 555 3100 www.donna.is
hitarar og ofnar
Olíufylltir ofnar 7 og 9
þilja 1500W og 2000 W
Keramik hitarar
með hringdreifingu
á hita
Hitablásarar
í úrvali
Ný vefverslun: www.donna.is
Erum nú á Facebook: donna ehf
Átta daga ævintýraferð til Ísrael og Jórdaníu
Dauðahafið. Masada er einn vin-
sælasti ferðamannastaður Ísrael
og er nánast helgur staður í aug-
um Ísraelsmanna. Einfölduð saga
staðarins er sú að Heródes hinn
mikli lét reisa fjallavígið á árunum
37 til 31 fyrir Krist. Frægð Masada
byggist helst á því að vígið hafði
verið hertekið af flokki andspyrn-
umanna af gyðingarkyni árið 66
eftir Krists en þá geisaði fyrsta
stríðið milli gyðinga og Róm-
verja. Vígið féll síðan aftur í hend-
ur Rómverja eftir langt umsátur en
um leið og varnirnar brustu sviptu
nánast allir íbúar fjallavígisins, um
1.000 talsins segir sagan, sig lífi.
Útsýnið og saga Masada er einstök
og óhætt er að mæla með stoppi
þar. Mjög auðvelt er að komast á
topp fjallsins í kláfi en einnig er
hægt að ganga ókeypis upp á fjall-
ið ef ferðalanga þyrstir í krefjandi
líkamsrækt. Fornminjarnar blikna
þó í samanburði við Petra að
mati undirritaðs. Eftir heimsókn-
ina í Masada var komið að stuttri
heimsókn að Dauðahafinu. Voru
yngstu ferðalangarnir þá orðnir
mjög lúnir og var því ákveðið að
koma í lengri heimsókn daginn
eftir enda var gist í bænum Arad
sem er í næsta nágrenni. Það var
því aðeins vaðið í Dauðahafinu
þann daginn. Sú ákvörðun að gista
í Arad var að mörgu leyti mistök.
Um rólegan og fallegan bæ er að
ræða en aðeins er tæpur klukku-
tími til Jerúsalem þar sem aldrei er
hægt að hafa nægan tíma til þess
að njóta þeirrar borgar. Þá hefði
einnig komið til greina að gista í
„baðstrandarstaðnum“ Ein Bokek
við hafið steindauða. Það var besti
staðurinn að mati undirritaðs til
þess að komast í tæri við náttúru-
undrið.
21. febrúar–23. febrúar:
Jerúsalem
Eftir stuttan sundsprett í Dauða-
hafinu var brunað til Jerúsalem í
gegnum Vesturbakkann, svokall-
aða. Reyndar um landsvæði sem
er að mestu leyti undir yfirráðum
Ísraelsmanna. Ekki gafst kostur á
að heimsækja helstu borgir og bæi
Palestínumanna og voru börnin
sérstaklega sorgmædd því ekkert
varð af heimsókn í Betlehem. Það
bíður síðari tíma. Það er tilgangs-
laust að reyna að lýsa Jerúsalem-
borg í stuttu máli. Borgin er stór-
fengleg í alla staði. Hægt er að
týna sér svo dögum skiptir í gamla
bænum og skoða heimsfræga
staði nánast við hvert fótmál. Jafn-
vel fyrir hundheiðna menn er það
afar tilkomumikið að heimsækja
tilbeiðslustaði eins og Grátmúrinn
og Grafarkirkjuna og fylgjast með
því sem fyrir augu ber.
Þá má ekki gleyma því að í
ógrynni frábærra veitingastaða
er í Jerúsalem. Þar var ýmislegt
spennandi í boði en að endingu
varð niðurstaða okkar að heim-
sækja ítalska veitingastaðinn
Luciana í Mamila-verslunar-
miðstöðinni, rétt fyrir utan Jaffa-
hliðið, fyrra kvöldið. Þar var boð-
ið upp á úrvalsmat í skemmtilegu
umhverfi.
Seinna kvöldið fundum við fyrir
tilviljun Anna Italian Café sem er
sérstakur veitingastaður í afar fal-
legu eldra húsi. Hugmyndafræði
staðarins er sú að gefa þar ungu
fólki sem hefur villst af réttri braut
í lífinu tækifæri og það skapar hlý-
legt og gott andrúmsloft. Maturinn
var síðan frábær.
Þá verður enginn svikinn af
falafel-vefju á skyndibitastaðnum
Moshiko ávið Ben Yehuda-stræti.
Unaðslegur matur og almennt er
það skylda ferðamanna í Ísrael að
troða sig eins mikið út af hummus
og unnt er. Ekkert sem er boðið
upp á hérlendis kemst í tæri við
hummusinn á þessum slóðum.
Þá er einnig óhætt að mæla
með ísraelskum rauðvínum sem
eru heilt yfir virkilega góð sem og
yfirleitt ódýrari en innflutt vín á
veitingastöðum. Ekki er vanþörf á,
því matur á veitingastöðum er dýr,
líklega um 80 prósent af verði á ís-
lenskum veitingastöðum, stund-
um meira.
23.–25. febrúar: Tel Aviv.
Síðustu tveir dagar ferðarinnar
voru í borginni sem WOW flýgur
til, Tel Aviv. Aðeins tekur tæpa
klukkustund að keyra á milli borg-
anna og kostar leigubíll um 4.000
krónur. Almennt er ágætis ráð að
dvelja yfir helgar í Tel Aviv frekar
en Jerúsalem enda er mörgum
stöðum í síðarnefndu borginni
lokað vegna hvíldardags gyðinga,
shabbat. Það sama gildir líka um
Tel Aviv að einhverju leyti en þó
eru borgarbúar þar mun frjálslegri
en í Jerúsalem.
Ef matarmenningin var góð í
Jerúsalem þá er hún einfaldlega
stórbrotin í Tel Aviv og þar geta
áhugamenn um mat fengið mikið
fyrir sinn snúð, þótt dýr sé. Ráð-
legt er að panta borð með góðum
fyrirvara, jafnvel nokkurra vikna,
því við rákum okkur á að nánast
ógjörningur var að fá borð með
skömmum fyrirvara á vinsælustu
stöðunum. Það var talsverður
ósigur og en þó verður að hafa í
huga að það er lítil hætta á að enda
á slæmum veitingastað í Tel Aviv.
Mannlífið er afar skemmti-
legt í borginni og þegar okkur bar
að garði á föstudegi sveif magnað
partíandrúmsloft yfir vötnum. Sér-
staklega í kringum Carmel-mark-
aðinn sem var afar eftirminnileg-
ur. Þá var ómissandi að eyða hluta
úr degi í hinni fornu borg Jaffa, en
þar er mikið af skemmtilegum litl-
um veitingastöðum og krám.
Upplifun fjölskyldunnar í
þessari ferð var afar jákvæð. Ein
helsta ástæða þess að fólk er tregt
til þess að fara í frí til Ísrael er lík-
lega sú að fólk óttast hreinlega um
öryggi sitt nú eða þá að pólitískar
ástæður ráða för. Hið síðarnefnda
er að einhverju leyti skiljanlegt en
áhyggjur af öryggi eru að mestu
óþarfar. Vissulega verður fólk vart
við vopnaða lögreglumenn víða í
stærstu borgunum en aldrei upp-
lifði fjölskyldan aðstæður þannig
að öryggi hennar væri ógnað.
Helsti gallinn á ferð til Ísrael er
kostnaðurinn við mat, drykk og
hótel. Með útsjónarsemi er þó
hægt að komast vel frá því enda er
hummusinn frekar ódýr og hann
má alveg borða í öll mál. n
Framandi matargerð Bedúínar í Wadi
Rum-eyðimörkinni elduðu hádegisverð
í niðurgrafinni tunnu. Hann var afar
ljúffengur.
Rósaborgin Petra Eitt þekktasta kennileiti borgarinnar er
„Fjárhirslan“ (e. The Treasury). Þar algjör skylda að taka mynd og
borga síðan nauðugur viljugur alltof hátt verð fyrir stuttan túr á
baki kameldýrs.
Kameldýrin
vöktu áhuga
Mjög víða má sjá
kameldýr spóka sig í
Jórdaníu. Þau vöktu
mikla athygli hjá
ungviðinu.Dauðahafið
Töfrandi og
friðsæll staður.