Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2018, Side 2
4 6. apríl 2018fréttir
sem hús sem mega alls ekki brenna
Á fimmtu-
daginn varð
stórbruni í
Miðhrauni
í Garðabæ. Í
húsinu var lager
Icewear og geymslur Geymslur
ehf. sem innihéldu eigur fólks og
jafnvel heilu búslóðirnar. Tjónið er
gríðarlegt, bæði peningalega séð
og tilfinningalega. Af því tilefni
tók DV saman lista yfir fimm hús á
Íslandi sem mega alls ekki brenna.
Costco
Segja má að verslun
Costco í Kauptúni
sé kirkja okkar
Íslendinga. Þorri
landsmanna er með
aðild að Costco og eru
margir sem vilja ekki
versla annars staðar.
Hallgrímskirkja
Stuðlabergskirkja
Guðjóns Samúelssonar
á Skólavörðuholti
er fyrir löngu orðin
eitt helsta kennileiti
höfuðborgarinnar. Svo
er Hallgrímskirkja einn
vinsælasti útsýnis-
staðurinn á Íslandi og
malar gull.
Harpa
Harpa kostaði lands-
menn alveg óskaplega
mikinn pening og er
nú orðin vettvangur
tónleika sem og
ráðstefna.
Nonnahús
Nonni átti heima
þarna þegar hann var
lítill. Brennuvargar,
látið Nonnahús í friði.
Árnagarður
Öll handritin sem Árni
Magnússon safnaði
eru geymd í Árnagarði
við Suðurgötu. Það tók
Árna langan tíma að
safna þeim og það var
mikið vesen að koma
þeim heim.
Á þessum degi,
6. apríl
1199 – Ríkarður I Englandskonungur
deyr vegna sýkingar sem hann fær í
kjölfar þess að ör er fjarlægð úr öxl hans.
1712 – Þrælauppreisnin í New York-
borg hefst. 23 afrískir þrælar ákveða að
segja hingað og ekki lengra. Þegar upp
er staðið liggja níu hvítir menn í valnum
og sex eru særðir. Um 70 þrælar eru
handteknir og fangelsaðir. Af þeim er
réttað yfir 27 og 21 síðan sakfelldur og
tekinn af lífi.
1895 – Rithöfundurinn Oscar Wilde
er handtekinn á Cadogan-hótelinu í
London eftir að hafa tapað meiðyrða-
máli gegn John Douglas, 9. markgreifa
af Queensberry.
1917 – Bandaríkin lýsa yfir stríði á
hendur Þjóðverjum í heimsstyrjöldinni
fyrri.
1974 – Sænski kvartettinn ABBA ber
sigur úr býtum í Eurovision-söngva-
keppninni með laginu Waterloo. Sig-
urinn markar upphafið að heimsfrægð
hljómsveitarinnar.
Síðustu orðin
„Snertu ekki hringana
mína.“
– stærðfræðingurinn Arki-
medes rétt áður en hann
var drepinn af rómverskum
hermanni í umsátrinu um
Sýrakúsu árið 212 f.Kr.
Hvaða ár?
n Kjalarnes varð hluti af
Reykjavík í mars þetta ár.
n Undralyfið Viagra kom á
markað, ófáum körlum til
yndisauka.
n Íslenska hljómsveitin Írafár
var stofnuð.
n Rush Hour og There's
Something about Mary voru
meðal vinsælustu mynda
ársins.
n Hugo Chavez var kjörinn
forseti Venesúela
Svar: 1998
„Ætli þeir grafi hann ekki úti“
Lík Kristjáns í líkhúsi í mánuð:
L
ík Kristjáns Ragnars Más
sonar, sem lést 47 ára gam
all á Benidorm þann 28.
febrúar, er nú fast á líkhúsi
á Spáni. Fjölskylda hans og sam
býliskona hafa ekki burði til til að
flytja það heim til greftrunar og
óvissa ríkir um hvort Kristján fái
að hvíla í íslenskri mold.
Snemma í mars greindi DV frá
sviplegu fráfalli Kristjáns en hann
stökk út um glugga á sjöttu hæð
íbúðar sem hann og sambýliskona
hans, Eva Rut Bragadóttir, dvöldu
tímabundið í. Kristján, sem hafði
verið í fíkniefnaneyslu og með
geðraskanir, hafði margsinnis
áður reynt sjálfsvíg og tvisvar lent
í fólskulegri líkamsárás, bæði á
Íslandi og á Spáni. Eftir árás á
nýársnótt 2017, þar sem hann var
sleginn ítrekað með hamri í höf
uðið, blindaðist hann og andleg
færni hans stórskaðaðist. Eftir það
þjáðist hann af tíðum höfuðverk
og uppköstum.
800 þúsund of stór biti
Skömmu eftir andlátið sagði Krist
ín Sveinsdóttir Strickland, móðir
Kristjáns, sem býr í Arizonafylki í
Bandaríkjunum, að faðir Kristjáns
vissi af málinu og ætlaði að reyna
að koma líkinu heim. Sjálf hefði
hún ekki burði til þess. Faðirinn,
Már Þorvaldsson, vildi ekki ræða
við DV þegar leitað var eftir því.
Eva Rut segir nú að upphæðin
sé mjög há fyrir fjölskylduna, um
800 þúsund krónur. Sjálf hefur hún
glímt við fjárhags og húsnæðis
vanda. Þá gekk hún undir krabba
meinsmeðferð fyrir nokkru. „Ég er
búin að reyna að afla peninga eins
og ég get en ég veit ekki hvort það
dugi. Faðir Kristjáns hafði sam
band við utanríkisráðuneytið en
þeir gátu ekkert hjálpað.“
Eva hefur verið í sambandi við
sjúkrahúsið þar sem lík Kristjáns
er geymt en hún veit ekki hversu
lengi hann verður geymdur þar.
Þau eiga tíu ára gamlan son á Ís
landi og æskilegt væri að hann
gæti heimsótt gröf föður síns.
Hvað verður gert ef hann verður
ekki fluttur heim?
„Ég veit það ekki. Ætli þeir grafi
hann ekki úti.“
ráðuneytið veitir aðeins
ráðgjöf
Svanhvít Aðalsteinsdóttir, sér
fræðingur hjá borgaraþjónustu
utan ríkisráðuneytisins, segist ekki
geta tjáð sig um einstök mál en að
ráðuneytið aðstoði Íslendinga er
lendis ekki fjárhagslega í tilvikum
sem þessum. Hvorki við jarðarfar
ir né líkflutning.
„Við getum í raun ekkert gert
annað en að leiðbeina fólki hvert
það geti snúið sér. Með slíkum
leiðbeiningum getur fólk jafn vel
lækkað kostn
aðinn við
flutningana og
greftrunina. En við erum háð
þeim reglum sem gilda ytra og
þær eru mjög mismunandi eftir
löndum og svæðum. Við reynum
að styðja við fólk eins og hægt er.“
Hún segir að tilfelli sem þessi
séu ekki mjög algeng en þau komi
fyrir, jafnvel nokkrum sinnum á
ári. Líkt og hér heima geti fólk þá
leitað til sveitarfélaga, félagsþjón
ustu eða annarra stofnana sem
aðstoða við
jarðarfarir
en fólk verði
að leita eftir
því sjálft. Hlutverk ráðuneytisins
sé fyrst og fremst upplýsingagjöf,
bæði þegar andlát ber að og til
aðstandenda sem vilja koma líki
heim til Íslands.
„Við vitum ekki alltaf af því
þegar Íslendingar látast í útlönd
um. Stundum sjá fjölskyldurnar
sjálfar alfarið um þetta.“ n
Kristinn Haukur Guðnason
kristinn@dv.is