Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2018, Blaðsíða 53
tímavélin 556. apríl 2018
Á
Sólheimum í Mýrdal
fæddist barn augna
laust eður með húð
yfir augun gróinni.“
– Espihólsannáll, 1797
Samtal við hressan Breiðfirðing
Í
júlímánuði árið 1967 leit
Jónas Jóhannsson bóndi
við á ritstjórnarskrifstofu
Tímans og sagði fréttir úr
heimahögum sínum í Öxney
á Breiðafirði. „Það hefur verið
kalt tíðarfar undanfarið. Vor
ið var kalt og mikil norðanátt,
og gróðri fór seint fram,“ sagði
Jónas. „Það var kalt um sauð
burðinn og yfirleitt kuldi út
júní.“
Hann hafði þungar áhyggj
ur af fuglavarpinu í eyjunum
sem var ógnað af minknum
sem væri orðinn yfirgnæfandi.
„Minkurinn hefur verið mesti
vágestur, sem hefur komið og
kemur í varplönd, og hann hef
ur eytt mestöllu fuglalífi úr eyj
unum. Hann étur líka hrogn
kelsin úr netunum, flettir
kviðnum af þeim öðru megin
og étur síðan fiskinn. Mink
urinn hefur verið með meira
móti í vor.“
Til að vinna á minknum
notaði Jónas hunda. En mink
urinn dvaldi í holum og mik
ill klaki hafði verið í eynni sem
gerði leitina erfiða.
Fáar eyjar í byggð og deyfð
yfir félagslífi
Jónas sagði fleiri hressandi
fréttir af Breiðafirði. „Það eru
fáar eyjar í byggð á Breiðafirði
núna. Í minni sveit eru tvær
og að nokkru leyti sú þriðja í
byggð, þegar ég man eftir fyrst
voru þær sjö, og fámennt orðið
yfirleitt. Í heimilum þar sem ég
man eftir tuttugu manns eru
nú tveir til þrír.“
Útlitið með byggðina í eyj
unum væri ekki glæsilegt. Brátt
væri hægt að fljúga út í eyjarn
ar og þá þyrfti fólk ekki að búa
þar heldur gæti háttað í Reykja
vík. „Þá þurfa engir að vera sjó
veikir, sjóveiki og píkuskræk
ir hverfa.“ Hann sagði að brátt
yrðu allir landsmenn fluttir til
Reykjavíkur og þyrfti þá ekki
stærra svæði undir byggð.
„Yfirleitt er deyfð yfir fé
lagslífi í sveitunum, einkum
að vetrinum, en þá er líka hver
maður upptekinn af starfi. Þó
kemur fyrir að fólk slær sér
saman og spilar, því að ef góð
er færð er það fljótt að skreppa
á milli á nútímafarartækjun
um, bílunum.“
Blaðamenn Tímans þökk
uðu Jónasi fyrir upplífgandi
spjall og óskuðu honum góðrar
heimferðar út í Öxney.
Margrét var
besta flugfreyja
Norðurálfu
L
augardaginn 15. júlí árið
1950 var haldin hæfileika
keppni flugfreyja í
London og tóku fimm
tán stærstu flugfélög Norður
álfu þátt. Keppninni lauk með
sigri íslenska keppandans,
Margrétar Guðmundsdóttur,
22 ára gamallar flugfreyju hjá
Loftleiðum. Keppt var í öllum
þeim kostum sem úrvalsflug
freyja verður að hafa, svo sem
lipri og alúðlegri framkomu,
snyrtimennsku, þokka og still
ingu ef eitthvað ber út af. Í
Morgunblaðinu segir: „Ekki var
um fegurðarsamkeppni ein
göngu að ræða. Málakunnátta
var t.d. einnig tekin til greina.“
Keppninni var sjónvarpað í
Bretlandi og töluvert fjallað um
hana í erlendum blöðum.
Úr annálum:
Forseti Finnlands
datt í Laxá
Í
ágúst árið 1977 kom Urho
Kekkonen Finnlandsfor
seti í heimsókn til Íslands en
hann var nokkuð þekktur á
alþjóðavísu fyrir þýð samskipti
heimalands síns við Sovétrík
in. Var Finnland gjarnan kall
að Kekkóslóvakía á þeim árum.
Kekkonen renndi fyrir lax í Laxá
í Kjós með fylgdarliði sínu. En
forsetinn hrasaði og fékk kalt
bað eins og kom fram á forsíðu
Dagblaðsins. Greint var frá því
að forsetinn hefði tekið þessu
eins og sannur íþróttamaður og
gert lítið úr atvikinu. Veiðinni
var haldið áfram með allgóð
um árangri og að minnsta kosti
einn lax var dreginn á land eft
ir fallið.
Fjölnir og Pete Við Hegningarhúsið
Fjölmiðlafár við
Hegningarhúsið
Mánudaginn 4. júlí fór Fjölnir
því að Hegningarhúsinu við
Skólavörðustíg til þess að taka út
sína refsingu fyrir líkfundinn. En
áður en hann fór hringdi hann í
Hundaræktarfélag Íslands og lét
þá vita hvað væri að gerast og
hvort þeir gætu litið eftir hund
inum á meðan hann sæti inni.
Þegar hann kom að fangelsinu sá
hann að þar hafði safnast saman
fólk, blaðamenn og formaður
Hundaræktarfélagsins sem var
mjög reiður og í miklu rifrildi við
fangavörð.
„Fangavörðurinn spurði mig
hvort ég væri með kvaðningu og
ég sagðist hafa týnt henni. „Þá
kemur þú ekki hér inn“ sagði
vörðurinn en áttaði sig síðan á
því hversu vitlaust það var og
hleypti mér inn. Síðan fann ég
hana í rassvasanum.“
Varstu ekkert smeykur við að
fara inn?
„Nei, nei. Pabbi stappaði í mig
stálinu og var stoltur af mér fyrir
framtakið.“
Áður en Fjölnir fór inn hafði
DV birt frétt um hvað til stæði.
Þegar hún birtist bauðst Guð
mundur Óskarsson, fisksali í Sæ
björgu, til þess að greiða sektina.
Hann sagði að fangelsið gæti tek
ið hana af 30 þúsund króna skuld
fangelsisins við hann. Þá stofnaði
Hundaræktarfélagið styrktarsjóð
fyrir Fjölni til að koma til móts
við vinnutap hans vegna fangels
unarinnar.
„Þjóðfélagið fór á hliðina því
fólki fannst það hneisa að fang
elsa 18 ára strák fyrir að hjálpa
löggunni. Á þessum tíma átti
Davíð Oddsson borgarstjóri
hundinn Tanna og Albert Guð
mundsson fjármálaráðherra tík
ina Lucy. Í blöðunum birtust oft
myndir af þeim með hundum
sínum. Það komu blaðamenn frá
Þýskalandi og Frakklandi til að
taka viðtal við mig.“
Þá birtist einnig umfjöllun um
málið í norrænum blöðum. Hér á
Íslandi fjallaði DV mest um mál
ið og Loki henti grín að því. „Voff
Voff“ og „Hvað ætli hundurinn sé
upp á marga fiska“.
Vandræðalegt fyrir lögregluna
Eftir einn dag inni var Fjölni
sleppt og honum sagt að ónefnd
ur maður hefði gert upp skuldina
um hádegisbil 5. júlí. Fjölnir seg
ist enn í dag ekki vita hver það var
eða hvort það sé yfir höfuð satt.
„Einhver huldumaður á að
hafa komið og leyst mig út og ég
kann honum bestu þakkir ef svo
er. En mig grunar að mér hafi
verið sleppt vegna þess að þetta
var vandræðalegt mál fyrir yfir
völd og þau vildu losa sig undan
þessu sem fyrst.“
Fjölnir segist hafa fundið fyrir
miklum stuðningi í þjóðfélaginu
í mörg ár eftir þennan atburð.
Ókunnugt fólk stöðvaði hann út
á götu til að þakka honum fyr
ir að standa á sínu. Úr styrkt
arsjóðnum fékk hann greiddar
tvö þúsund krónur og til stóð að
halda sjóðnum gangandi ef fleiri
sambærileg mál kæmu upp.
Hafði áhrif
„Fjöldi fólks var búinn að berj
ast fyrir að fá að halda hunda í
Reykjavík í mörg ár. Þetta varð
til þess að borgin fór að gefa út
undanþágur til hundaeigenda.“
Árið 1984, ári eftir fangelsun
Fjölnis, lét borgarstjórn undan
þrýstingi almennings og sam
þykkti að veita undanþágur frá
banninu. Undanþágurnar áttu
að gilda til ársins 1988 þegar at
kvæðagreiðsla var haldin um
málið. Samþykkt var að halda
óbreyttum reglum en atkvæða
greiðslan olli hins vegar miklum
deilum vegna orðalags spurn
ingarinnar sem borin var upp.
Hundahald var alfarið leyft í
Reykjavík árið 2012 en enn þá
þarf að sækja um leyfi.
Leiðir Fjölnis og Pete skildi
hins vegar skömmu eftir sumar
ið 1983. Fjölnir fór á verbúð um
haustið og móðir hans gaf þá
Pete frá sér. Fjölnir fagnaði því
þó að hann komst á gott heim
ili. n