Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2018, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2018, Blaðsíða 10
12 06. april 2018fréttir Þ ann 8. mars síðastliðinn úrskurðaði Persónuvernd í máli Önnu Guðrúnar Þór- hallsdóttur, fyrrverandi starfsmanns Landbúnaðarhá- skólans, gegn skólanum vegna birtingar viðkvæmra upplýsinga sem Sæmundur Sveinsson rektor birti á heimasíðu skólans. Þar var kveðið á um að birtingin hafi ekki samrýmst lögum um persónu- vernd. Eins og DV hefur áður greint frá hefur verið djúpstæð- ur ágreiningur í skólanum lengi og mörg mál komið upp sem hafa reynst starfsfólki erfið. Birti upplýsingar um veik- indaleyfi á vefnum Málið snýst um hlekk við grein sem Sæmundur Sveinsson rekt- or setti inn á fréttavef Landbún- aðarháskólans varðandi umfjöll- un Stundarinnar 27. október um málefni skólans. Í fréttinni kom fram að Önnu Guðrúnu prófess- or, sem starfað hefur við skól- ann 25 ár, hefði verið hótað upp- sögn í kjölfar kæru gegn henni til siðanefndar. Hlekkurinn vísaði á álit siðanefndar skólans frá 9. október. Deilur innan skólans hafa langan aðdraganda og DV hef- ur áður greint frá misheppnaðri sameiningu árið 2005 og um- deildri skipun Sæmundar sem margir vilja meina að hafi verið pólitísk. Í grófum dráttum snú- ast þær um nýtingu lands og upp- græðslu en nýskipaður rektor er sonur Sveins Runólfssonar, fyrr- verandi landgræðslustjóra. Full- trúi Kristjáns Þórs Júlíussonar, þáverandi landbúnaðarráðherra, stakk upp á skipun Sæmundar eftir að hætt hafi verið við ráðn- ingu samkvæmt auglýsingu þar sem þrír umsækjendur hafi verið metnir hæfir. Ólafur Arnalds, prófessor við skólann, kærði Önnu Guðrúnu til siðanefndar vegna tölvubréfa sem hún sendi til samstarfsfólks síns í tengslum við ráðstefnu Landbúnaðarháskólans 18. maí 2017, „Hvað getur Ísland gert?“. Þar taldi hún vera fram hjá sér gengið og að hópur innan skól- ans beindi spjótum sínum gegn bændum en siðanefnd úrskurð- aði að hún hefði brotið gegn siða- reglum með ummælum í bréfun- um. Í álitinu komu fram persónu- upplýsingar um Önnu Guðrúnu, meðal annars að hún hafi verið í veikindaleyfi á tilteknum tíma, og kærði hún birtinguna til Persónu- verndar sem komst að þeirri niðurstöðu að birtingin hefði varðað við lög. „Svona gerir fólk ekki“ Í samtali við DV segist Anna ekki ætla að höfða skaðabótamál vegna birtingarinnar. Hún segir: „Ég er búin að fá þetta á hreint og þetta var líka gert fyrir aðra. Ef enginn gerir ekki neitt skapar það vont fordæmi. Maður verður að fá það svart á hvítu að svona gerir fólk ekki. Fólk í þessari stöðu verður að sjá að persónu- verndarlög eru gild og það hefur afleiðingar að brjóta þau.“ Anna hefur ekki verið inn- an skólans um nokkurra mánaða skeið. Eftir að henni barst hótun um uppsögn neyddist hún til að sækja um að starfstöð hennar yrði flutt á Háskólann á Hólum. Hún hafi ekki átt annarra kosta völ en getað komist hjá uppsögn vegna stöðu sinnar sem prófessor. „Það virðast vera mjög sterk öfl sem telja sig hafa hagsmuni af því að losna við mig af því að ég er ekki með „réttar“ skoðanir. Bæði rannsóknir mínar og annarra sem ég hef kynnt sýna niðurstöður sem ekki þykja æskilegar. Þetta er opinber háskóli og mikilvægt að þar inni þrífist gagnrýnin hugsun og sjálfstæði í rannsóknum.“ Finnst skrýtið að upplýs- ingarnar séu taldar viðkvæmar Samkvæmt úrskurði Persónu- verndar átti Landbúnaðarhá- skólinn að senda skriflega staðfestingu á því að persónu- greinanlegar upplýsingar hafi verið afmáðar úr niðurstöðu siðanefndarinnar sem birtist á síðunni eigi síðar en 5. apríl næstkom- andi. Álitið hefur nú verið fjarlægt alfarið af vefnum. Í samtali við DV segir Sæmundur að honum hafi fundist það rétt að birta álitið eftir að málið komst í fréttirnar. Hann segir: „Starfsfólkið mitt vissi ekki alla söguna og hafði ekkert heildaryfirlit. Þau sáu þessi hræðilegu um- mæli sem Anna Guð- rún sendi á starfsfólk og vissi hver niður- staðan var. En mér fannst þetta vera þannig mál að það væru hagsmunir fyrir starfs- fólk að fá heildarmyndina. Það kom þarna fram að Anna Guðrún var í veikindaleyfi á tilteknum tíma og ég verð að segja að mér finnst skrýtið að upplýsingar um hvenær fólk er frá vegna veikinda séu viðkvæmar persónuupplýs- ingar. Ég hafði ekki áttað mig á því að Persónuvernd liti svo á.“ Þannig að það var van- kunnátta sem olli þessu broti? „Kannski vankunnátta. En eftir að hafa lesið lögin sé ég ekki að upplýsingar um veikindaleyfi séu viðkvæmar persónuupplýsingar. Ég sé hins vegar að upplýsingar um heilsuhagi séu það.“ Samkomulag um flutning starfsstöðvar Önnu Guðrúnar í beitarvistfræði til Hóla fól í sér að fjárveiting flyst einnig yfir milli skólanna. Um er að ræða 11 millj- ónir króna árlega til 10 ára, sam- anlagt 110 milljónir. Sæmundur segir að það verði ekki vandamál. „Við leysum það. Við þurfum ekki að ráða inn nýja manneskju. Menntamálaráðherra er búinn að vera mjög yfirlýsingaglaður í fjölmiðlum um að fullfjármagna háskólana. Með auknum fjár- veitingum gerum við ráð fyrir að bæta við starfsfólki.“ Eiginmaður Önnu enn starfs- maður Að sögn nokkurra starfsmanna innan skólans, sem DV hefur rætt við en þora ekki að koma fram undir nafni, er ástandið mjög erfitt og andrúmsloftið þrúgandi. Í skólanum vinnur margt sérhæft fólk sem hleypur ekki glatt inn í önnur störf hérlendis nema á allt öðrum vettvangi. Á starfsmanna- fundum þorir fólk því ekki að segja meiningu sína. Sæmundur segir: „Mér finnst leiðinlegt að heyra að fólk upplifi það. Það er búið að vera mjög erfitt ástand í skólan- um í langan tíma. Hér var ákveðin stjórnunarkrísa sem endaði með því að fyrrverandi rektor sagði starfi sínu lausu. Þar á und- an voru búin að vera mörg mál í gangi, en mörg af þeim tengd- ust Önnu Guðrúnu. Það er engin launung með það.“ Viðmælendur DV vilja hins vegar meina að ástandið hafi ekki batnað í skólanum eftir skipun Sæmundar nema síður sé. Fyrr- verandi rektor er Björn Þorsteins- son, eiginmaður Önnu Guðrúnar, sem er enn þá starfandi prófessor við skólann og heimili þeirra er á Hvanneyri. Björn sagði í samtali við Stundina í október að hann hefði fengið símtal frá Haraldi Benediktssyni, þingmanni Sjálf- stæðisflokksins. Í símtalinu kom fram að það myndi koma Birni persónulega mjög illa ef hann legðist gegn skipun Sæmundar sem rektors það haust. Haraldur neitaði því þá að hafa hótað Birni. Sæmundur vill hins vegar ekki meina að staða Björns sé erfið í ljósi undangenginna atburða.n Sími 555 3100 www.donna.is Ný vefverslun: www.donna.is Erum nú á Facebook: donna ehf Skjót fyrstahjálp, hjartahnoð og hjartastuðtæki björguðu lífi mínu Ég lifði af Rektor braut persónuverndarlög: Birti upplýsingar um veikindaleyfi á vef skólans Kristinn Haukur Guðnason kristinn@dv.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.