Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2018, Blaðsíða 28

Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2018, Blaðsíða 28
30 6. apríl 2018fréttir Ó hætt er að fullyrða að Ís- lendingar séu orðn- ir spenntir fyrir því að sjá íslenska landsliðið í fót- bolta mæta Argentínumönn- um í Moskvu þann 16. júní næst- komandi. Það gildir þó um fleiri en Íslendinga. Hin chileska Er- ika Wood, gift tveggja barna móð- ir sem búsett er í Englandi, getur ekki beðið eftir leiknum og keppn- inni enda er íslenski landsliðs- maðurinn Birkir Bjarnason henn- ar eftirlætis knattspyrnumaður. Ástæðan er einföld, Birkir ber af öðrum mönnum í útliti og þokka. Í dag skartar Erika forláta húð- flúri sem er gert eftir eiginhandar- áritun kappans og hyggst dvelja á Íslandi þegar liðið hefur leik á HM. Fékk gæsahúð yfir víkinga- klappinu Erika er kannski ekki líklegasti að- dáandi Birkis og íslenska lands- liðsins. Eins og áður segir er hún upphaflega frá Chile en hún hef- ur verið búsett í Englandi í ell- efu ár og er breskur ríkisborgari. Eins og áður segir er hún gift, Jim nokkrum Wood, og eiga þau tvo drengi saman. Hún starfar sem grunnskólakennari og hefur bara hóflegan áhuga á fótbolta. Allt þar til hún sá íslenska landsliðið og Birki Bjarnason spila. „Ég hafði aldrei séð til íslenska liðsins þar til að þeir spiluðu gegn Englandi á EM. Leikurinn var að kvöldi til og Jim, eiginmaður minn, var að fylgjast með leiknum í sjón- varpinu. Ég hef aldrei stutt enska liðið og var því bara lögst upp í rúm,“ segir Erika. Skyndilega hefði hún heyrt tilkomumikinn hávaða berast frá sjónvarpinu. „Ég gekk þá fram og spurði Jim hvað þetta eiginlega væri. Hann svaraði því til að þetta væru íslensku áhorfend- urnir að taka víkingaklappið. Ég fékk gæsahúð við að fylgjast með íslensku áhorfendunum og hélt með liðinu frá þessari stundu,“ segir Erika. Skömmu síðar snerti bláklædd- ur síðhærður Íslendingur boltann og Erika varð þegar uppnuminn. „Ég spurði Jim strax hver þetta væri og hann hafði ekki hugmynd og þekkti engan íslensku leik- mannanna. Ég komst stuttu síðar að því að þetta væri Birkir Bjarna- son og frá þessari stundu var hann orðinn uppáhaldsleikmaðurinn minn,“ segir Erika. Birkir skoraði í fyrsta leiknum Hún segist hafa fagnað ákaft þegar Íslendingum tókst hið ómögulega og sendu Englendinga heim og síðan þá hafi hún fylgst með liðinu og Birki. Á þessum tíma spilaði Birkir með svissneska liðinu Basel og því gat Erika ekki séð neina leiki með goðinu. Það breyttist í janú- ar 2017 þegar Birkir skrifaði und- ir samning við enska liðið Aston Villa frá Birmingham, sem er í rúmlega klukkutíma fjarlægð frá bænum þar sem Erika býr. „Ég fylgdist mjög lítið með enska boltanum. Ég var ánægð þegar Birkir gekk til liðs við Aston Villa, því þá vissi ég að ég gæti séð fleiri leiki með honum,“ segir Er- ika. Til marks um hversu lítið hún vissi um enska boltann þá hafði hún ekki hugmynd um að Aston Villa er í Birmhingham-borg sem er stutt frá heimili hennar. „Það var vinur minn sem benti mér á það skömmu eftir að hann gekk til liðs við liðið og þá varð ég náttúr- lega enn ánægðari,“ segir Erika. Eins og alþjóð veit þá átti Birk- ir erfitt uppdráttar hjá Aston Villa til að byrja með og var Erika upp- tekinn við að verja sinn mann á spjallborðum og samfélagsmiðl- um. „Hann fékk mjög ósanngjarna meðferð og stuðningsmenn Aston Villa gáfu honum engin grið,“ seg- ir Erika. Vegna anna í starfi og barna- uppeldi þá hefur hún átt erfitt með að komast á leiki með Aston Villa. Það tókst ekki fyrr en í ágúst í fyrra þegar Erika fór einsömul á leik Aston Villa gegn Wigan Athletic í Carabao-bikarnum, að sjálfsögðu íklædd íslensku landsliðstreyj- unni. Birkir var aldrei þessu vant í byrjunarliði Aston Villa og hann brást ekki væntingum Eriku. Hann rak smiðshöggið á 4-1 sigur Aston Villa með því að skora síðasta mark leiksins. Ekki minnkaði kæti Eriku eftir að hún fékk að hitta íslensku hetjuna sína eftir leikinn: „Ég var eiginlega alveg í losti og kom varla upp einu orði,“ segir Erika og gef- ur í skyn að það sé venjulega ekki vandamál hjá sér. Síðan skellihlær hún. Hún segir að Birkir hafi verið afar almennilegur á þessum stutta fundi þeirra og það hafi ekki dreg- ið úr aðdáun hennar á honum og íslenska landsliðinu. Erika hefur alla tíð verið hrifin af norðurljósunum og langað að berja þau augum. Hún hafi því ákveðið að skella sér ein í stutta ferð til Íslands í október í fyrra. „Maðurinn minn skildi ekkert í mér. Hann er ekki eins hvatvís og hrifnæmur og ég,“ segir Erika og hlær. Hún hafi skemmt sér afar vel í ferðinni og orðið enn hrifnari af landi og þjóð. Meðal annars brá hún sér á húðflúrstofu og lét listamanninn teikna eiginhand- aráritun Birkis á handlegg sinn. „Hann áritaði landsliðstreyjuna mína og mér fannst þetta alveg kjörið,“ segir Erika. Verður í Reykjavík þegar HM- ferðalagið hefst Önnur ferð hefur þegar verið skipulögð og nú verður eiginmað- urinn með í för. „Við erum búin að bóka ferð til Íslands í júní og ætl- um að vera í Reykjavík þegar Ís- land spilar gegn Argentínu. Ég get ekki beðið en Jim er enn hálf undr- andi yfir þessu öllu saman,“ seg- ir Erika og hlær dátt. Eins og áður segir er hún sjálf frá Chile og hún óskar frændum sínum frá Suð- ur-Ameríku alls ills á fótboltavell- inum. „Það er ekki hægt að halda með Argentínu í fótbolta, þeir eru svo góðir með sig,“ segir Erika. Að hennar sögn búist Argentínu- menn við öruggum sigri og það væri þeim líkt að vanmeta íslenska liðið. „Ísland mun koma þeim verulega á óvart,“ segir Erika. Það er ekki nóg með að Erika sé einlægur aðdáandi íslenska landsliðsins og Birkis Bjarnason- ar. Hún er líka á fullu í því að afla Íslendingum stuðnings í Suð- ur-Ameríku. „Ég og vinur minn erum með reikning á Twitter og Instagram þar sem við fjöllum um íslenska liðið og leikmenn þess. Á Twitter heitum við Adopta Is- landia og tilgangurinn er að hvetja fótboltaáhugamenn sem eiga ekki lið á HM að styðja Ísland,“ segir Er- ika. Þau eru nýlega farin af stað og ætla að setja enn meiri kraft í ver- kefnið þegar nær dregur HM. „Ég reyni að fylgjast með fréttum af íslensku landsliðsmönnunum í Championship-deildinni, Herði, Jóni Daða og Aroni Einari. Svo fylgist ég líka með Jóhanni Berg og Gylfa í úrvalsdeildinni eins og hægt er. Vinur minn sér síð- an um fréttir af öðrum leikmönn- um liðsins,“ segir Erika. Gjörvileiki Birkis dugar þó ekki einn til og til þess að vekja áhuga suðuram- erískra kvenna á liðinu þá er Erika með leynivopn uppi í erminni. „Ég sýndi vinkonum mínum frá Chile myndir af Rúrik Gíslasyni. Hann er ekki mín týpa, þótt glæsilegur sé, en þær kolféllu fyrir honum og ætla að styðja Ísland á HM. Það er eins gott að hann verði í hópnum,“ segir Erika og hlær. n Erika dýrkar Birki Björn Þorfinnsson bjornth@dv.is Erika lét flúra eiginhandaráritun Birkis á hand- legg sinn í heimsókn sinni til landsins í október.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.