Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2018, Blaðsíða 9

Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2018, Blaðsíða 9
6. apríl 2018 fréttir 11 Magni hafði barið hana þrisvar og sat enn ofan á henni. Nú tók hann upp bandið sem hann hafði haft meðferðis og reyndi að binda konuna. Konan barðist um á hæl og hnakka og tókst að verjast því. „Þú getur fengið alla þá pen- inga sem eru í húsinu ef það er það sem þú vilt,“ sagði konan í geðs- hræringu. Magni hristi höfuðið. „Hvað viltu þá?“ hrópaði konan. Magni potaði ofan til í kvið hennar. Konan skildi það á þann hátt að það væri hún sem hann vildi en Magni mælti ekki orð af vörum á meðan árásin stóð yfir. Árásinni var þó hvergi nærri lok- ið þarna. Í dómnum er tekið sér- staklega fram að Magni hafi ekki reynt að taka hana úr kjólnum eða fækka fötum sjálfur. Konan taldi hins vegar að Magni hefði brotist inn til hennar til að nauðga henni. Konan vissi hins vegar ekki á þess- um tímapunkti að maðurinn var hinn tvítugi Valbjörn Magni Björnsson sem hafði stundað að gægjast á glugga kvenna. Sá að þetta var Magni Konan baðst nú vægðar og sagði að hún væri ólétt. Sagðist hún þurfa vatn þar sem blóð rann úr nefi hennar ofan í kok hennar. Magni leyfði henni að standa upp og fór hún fram í eldhús og fékk sér vatn að drekka. Myrkur var á neðri hæðinni en ljós í ganginum. Í skímunni sá hún hver maðurinn var. Þetta var Valbjörn Magni. Hún gat ekki flúið eða reynt að hringja. Magni var búinn að skera á síma- línuna. Konan kom aftur inn í stofu og settist þar. Valbjörn var nú með klút fyrir andlitinu og með hettu á höfði sem náði langt fram fyrir andlitið. Hann var í mittisúlpu og í stígvélum. „Ef þú ferð út núna mun ég engum segja frá því sem gerð- ist,“ sagði konan biðjandi. Magni tvísteig um nokkra stund í stof- unni. Hann vissi ekki hvað hann ætti til bragðs að taka. Að lokum tók hann þá ákvörðun að fara og treysta því að konan myndi ekki segja til hans. Óttaðist um barnið Konan sat ein eftir í stofunni. Hún þorði ekki að hreyfa sig strax. Tíminn stóð í stað. Sek- úndur urðu að eilífð. Loks stóð hún á fætur og gægðist fram. Magni var farinn. Árásin hafði staðið í um klukkustund. Eigin- maður hennar kom af vakt um klukkan fjögur og hringdu þau strax í lögreglu. Konan var aum og marin eftir árásina og bólgin í andliti. Hún hafði þó mestar áhyggjur af því hvort eitthvað hefði komið fyrir ófætt barn þeirra hjóna. Konan var í áfalli eftir árásina og með áfallastreituröskun. Hún þorði hvergi að vera ein og var alltaf hrædd. Barnið kom síðan í heiminn og sagði konan að það væri óró- legt á taugum ef eitthvað væri að og rakti hún það til árásarinnar. Játaði allt Magni var yfirheyrður og var treg- ur til að tjá sig. Hann játaði að lok- um árásina en þvertók fyrir að hafa barið konuna með öskubakka og sagði öskubakkann hafa fallið á andlit konunnar þegar hann var að reyna verjast. Fingraför hans fundust á ljóskerinu þar sem hann hafði fyrir innbrotið skrúfað per- una lausa. „Ég gekk í kringum húsið til öryggis,“ sagði Magni í yfirheyrslu en bætti við að hann hafi ekki gert sér grein fyrir að fullu hvað hann ætlaði að gera þegar inn var kom- ið. Engu að síður var hann með band meðferðis. Magni sagði að hann hefði hul- ið andlit sitt með því að binda viskustykki fyrir andlit sitt. Magni gekkst undir geðrannsókn og var metinn sakhæfur. Helgina eft- ir árásina lét hann eins og ekkert hefði í skorist og lýsti því yfir við alla sem vildu heyra að hann væri saklaus og verið væri að ljúga upp á hann. Hann var íþróttahetja í bænum og tilfinning annarra sem bjuggu á svæðinu var að þagga ætti málið niður af yfirvöldum. Íþróttahetja fær dóm En svo kom að því að kveða upp dóm. Magni hafi játað meira og minna allt sem hann var sakaður um. Þorsteinn Skúlason bæjarfógeti kvað upp dóm. Fyrir skelfilega árás þótti hæfilegt að dæma hina ungu íþróttahetju í tveggja mánaða skilorðsbundið fangelsi til þriggja ára. Ekki einn dag sat Magni inni fyrir að rústa lífi þessarar konu. Refsiramminn var þrjú á þessum tíma. Margir í bænum upplifðu aðkomu yfirvalda sem þöggun. Og svo flutti Magni úr bænum. Og í næsta bæ fann hann annað fórnarlamb og svo annað og svo annað. Fær ekki nálgunarbann Sögurnar eru endalausar. Heim- ildarmenn á hverju strái sem telja Magna hættulegan. Þær sögur verða ekki raktar hér. En í dag hefur hann unnið mark- visst að því að eyðileggja líf Svan- hildar Sigurgeirsdóttur. Rétt eins og yfirvöld brugðust hinni ungu móður í Neskaupstað hefur Svan- hildur ekki fengið þá aðstoð sem hún þarf á að halda. Hún fær ekki einu sinni nálgunarbann á mann sem hefur barið ófríska konu með öskubakka og reynt að binda hana með snæri. n Magni braust inn uM Miðja nótt: barði ólétta konu Með öskubakka og reyndi að binda hana n Fékk tveggja mánaða skilorðsbundinn dóm n Elt konur í 40 ár n Braust inn um miðja nótt Mynd af rósunum sem Svanhildur og systir henn- ar lögðu á leiði föður þeirra á afmælisdegi hans. Magna þótti viðeigandi að taka þær og leggja á húddið á bíl Svanhildar til að hrella hana. D V fjallaði ítarlega um Magna í síðasta helgarblaði og ræddi við Svanhildi Sigurgeirsdóttur, fyrrverandi sambýliskonu Magna til skamms tíma. Eftir að hún sleit sambandinu hefur hún mátt þola skelfilegar ofsóknir, sem hafa verið allt frá því að Magni hafi hringt stöðugt í hana, setið um hús hennar, elt hana í búðum, áreitt fjölskyldu hennar, vini og kunningja og lagt fyrir utan hús henn- ar á hátíðisdögum, líkt og um jól og áramót. „Magni tók blóm af leiði föður míns og setti á húddið á bílnum mínum. Síðan hringdi hann í mig og tilkynnti mér að hann væri með skilaboð frá föður mínum sem var látinn. Hann lést áður en ég kynnt- ist Magna. Hann segist geta haft samband við framliðna og sagðist vera með skilaboð frá pabba um hvað mér væri fyrir bestu,“ sagði Svanhildur við DV. Hún hefur óskað eftir nálgunarbanni gegn honum en því hefur verið hafnað. Þá voru rifjaðar upp sögur fleiri kvenna sem Magni hefur eltihrellt. Fanney Björk Ingólfsdóttir, sem er frá Akureyri, var 26 ára þegar hún árið 2016 lýsti reynslu sinni af Magna. Sagði hún Magna hafa svipt hana geðheilsunni. Þá var sagt frá annarri konu, Hrefnu Jónsdóttur, sem sagði í samtali við DV að Magni hefði kúgað hana til þess að stunda kynlíf með honum gegn því að kynlífsmyndband sem hann tók upp af henni í leyfisleysi færi ekki í birtingu. Skelfilegar ofsóknir Magni er með tvær Facebook-síður. Á annarri þeirra er hann með sem einkennis- mynd mynd af honum ásamt fyrrverandi sambýliskonu sinni. Þannig heldur hann áfram að hrella hana. Einnig birtir hann mynd af úlfi og tígrisdýri en þeir sem þekkja til Magna líta á það sem hótun en vinsælt er að tákna siðblindu með þessum fallegu dýrum. Valbjörn Magni Björnsson eða Magni Línberg eins og hann kýs að kalla sig í dag flutti í götuna hjá konunni sem hafði kært hann fyrir ofsóknir á Akureyri. Þar gengur hann laus í dag.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.