Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2018, Síða 9
6. apríl 2018 fréttir 11
Magni hafði barið hana þrisvar
og sat enn ofan á henni. Nú tók
hann upp bandið sem hann hafði
haft meðferðis og reyndi að binda
konuna. Konan barðist um á hæl
og hnakka og tókst að verjast því.
„Þú getur fengið alla þá pen-
inga sem eru í húsinu ef það er það
sem þú vilt,“ sagði konan í geðs-
hræringu.
Magni hristi höfuðið.
„Hvað viltu þá?“ hrópaði
konan.
Magni potaði ofan til í kvið
hennar. Konan skildi það á þann
hátt að það væri hún sem hann
vildi en Magni mælti ekki orð af
vörum á meðan árásin stóð yfir.
Árásinni var þó hvergi nærri lok-
ið þarna. Í dómnum er tekið sér-
staklega fram að Magni hafi ekki
reynt að taka hana úr kjólnum eða
fækka fötum sjálfur. Konan taldi
hins vegar að Magni hefði brotist
inn til hennar til að nauðga henni.
Konan vissi hins vegar ekki á þess-
um tímapunkti að maðurinn
var hinn tvítugi Valbjörn Magni
Björnsson sem hafði stundað að
gægjast á glugga kvenna.
Sá að þetta var Magni
Konan baðst nú vægðar og sagði
að hún væri ólétt. Sagðist hún
þurfa vatn þar sem blóð rann úr
nefi hennar ofan í kok hennar.
Magni leyfði henni að standa upp
og fór hún fram í eldhús og fékk
sér vatn að drekka. Myrkur var á
neðri hæðinni en ljós í ganginum.
Í skímunni sá hún hver maðurinn
var. Þetta var Valbjörn Magni. Hún
gat ekki flúið eða reynt að hringja.
Magni var búinn að skera á síma-
línuna. Konan kom aftur inn í stofu
og settist þar. Valbjörn var nú með
klút fyrir andlitinu og með hettu
á höfði sem náði langt fram fyrir
andlitið. Hann var í mittisúlpu og
í stígvélum.
„Ef þú ferð út núna mun ég
engum segja frá því sem gerð-
ist,“ sagði konan biðjandi. Magni
tvísteig um nokkra stund í stof-
unni. Hann vissi ekki hvað hann
ætti til bragðs að taka. Að lokum
tók hann þá ákvörðun að fara og
treysta því að konan myndi ekki
segja til hans.
Óttaðist um barnið
Konan sat ein eftir í stofunni.
Hún þorði ekki að hreyfa sig
strax. Tíminn stóð í stað. Sek-
úndur urðu að eilífð. Loks stóð
hún á fætur og gægðist fram.
Magni var farinn. Árásin hafði
staðið í um klukkustund. Eigin-
maður hennar kom af vakt um
klukkan fjögur og hringdu þau
strax í lögreglu.
Konan var aum og marin eftir
árásina og bólgin í andliti. Hún
hafði þó mestar áhyggjur af því
hvort eitthvað hefði komið fyrir
ófætt barn þeirra hjóna. Konan
var í áfalli eftir árásina og með
áfallastreituröskun. Hún þorði
hvergi að vera ein og var alltaf
hrædd.
Barnið kom síðan í heiminn
og sagði konan að það væri óró-
legt á taugum ef eitthvað væri að
og rakti hún það til árásarinnar.
Játaði allt
Magni var yfirheyrður og var treg-
ur til að tjá sig. Hann játaði að lok-
um árásina en þvertók fyrir að
hafa barið konuna með öskubakka
og sagði öskubakkann hafa fallið á
andlit konunnar þegar hann var
að reyna verjast. Fingraför hans
fundust á ljóskerinu þar sem hann
hafði fyrir innbrotið skrúfað per-
una lausa.
„Ég gekk í kringum húsið til
öryggis,“ sagði Magni í yfirheyrslu
en bætti við að hann hafi ekki gert
sér grein fyrir að fullu hvað hann
ætlaði að gera þegar inn var kom-
ið. Engu að síður var hann með
band meðferðis.
Magni sagði að hann hefði hul-
ið andlit sitt með því að binda
viskustykki fyrir andlit sitt. Magni
gekkst undir geðrannsókn og var
metinn sakhæfur. Helgina eft-
ir árásina lét hann eins og ekkert
hefði í skorist og lýsti því yfir við
alla sem vildu heyra að hann væri
saklaus og verið væri að ljúga upp
á hann. Hann var íþróttahetja í
bænum og tilfinning annarra sem
bjuggu á svæðinu var að þagga
ætti málið niður af yfirvöldum.
Íþróttahetja fær dóm
En svo kom að því að kveða upp
dóm. Magni hafi játað meira
og minna allt sem hann var
sakaður um. Þorsteinn Skúlason
bæjarfógeti kvað upp dóm. Fyrir
skelfilega árás þótti hæfilegt að
dæma hina ungu íþróttahetju í
tveggja mánaða skilorðsbundið
fangelsi til þriggja ára. Ekki einn
dag sat Magni inni fyrir að rústa
lífi þessarar konu. Refsiramminn
var þrjú á þessum tíma. Margir
í bænum upplifðu aðkomu
yfirvalda sem þöggun. Og svo flutti
Magni úr bænum. Og í næsta bæ
fann hann annað fórnarlamb og
svo annað og svo annað.
Fær ekki nálgunarbann
Sögurnar eru endalausar. Heim-
ildarmenn á hverju strái sem
telja Magna hættulegan. Þær
sögur verða ekki raktar hér. En
í dag hefur hann unnið mark-
visst að því að eyðileggja líf Svan-
hildar Sigurgeirsdóttur. Rétt eins
og yfirvöld brugðust hinni ungu
móður í Neskaupstað hefur Svan-
hildur ekki fengið þá aðstoð sem
hún þarf á að halda. Hún fær ekki
einu sinni nálgunarbann á mann
sem hefur barið ófríska konu með
öskubakka og reynt að binda hana
með snæri. n
Magni braust inn uM Miðja nótt: barði ólétta
konu Með öskubakka og reyndi að binda hana
n Fékk tveggja mánaða skilorðsbundinn dóm n Elt konur í 40 ár n Braust inn um miðja nótt
Mynd af rósunum sem Svanhildur og systir henn-
ar lögðu á leiði föður þeirra á afmælisdegi hans.
Magna þótti viðeigandi að taka þær og leggja á
húddið á bíl Svanhildar til að hrella hana.
D
V fjallaði ítarlega um Magna í síðasta helgarblaði og ræddi við
Svanhildi Sigurgeirsdóttur, fyrrverandi sambýliskonu Magna
til skamms tíma. Eftir að hún sleit sambandinu hefur hún mátt
þola skelfilegar ofsóknir, sem hafa verið allt frá því að Magni
hafi hringt stöðugt í hana, setið um hús hennar, elt hana í búðum,
áreitt fjölskyldu hennar, vini og kunningja og lagt fyrir utan hús henn-
ar á hátíðisdögum, líkt og um jól og áramót.
„Magni tók blóm af leiði föður míns og setti á húddið á bílnum
mínum. Síðan hringdi hann í mig og tilkynnti mér að hann væri með
skilaboð frá föður mínum sem var látinn. Hann lést áður en ég kynnt-
ist Magna. Hann segist geta haft samband við framliðna og sagðist
vera með skilaboð frá pabba um hvað mér væri fyrir bestu,“ sagði
Svanhildur við DV. Hún hefur óskað eftir nálgunarbanni gegn honum
en því hefur verið hafnað.
Þá voru rifjaðar upp sögur fleiri kvenna sem Magni hefur eltihrellt.
Fanney Björk Ingólfsdóttir, sem er frá Akureyri, var 26 ára þegar hún
árið 2016 lýsti reynslu sinni af Magna. Sagði hún Magna hafa svipt
hana geðheilsunni. Þá var sagt frá annarri konu, Hrefnu Jónsdóttur,
sem sagði í samtali við DV að Magni hefði kúgað hana til þess að
stunda kynlíf með honum gegn því að kynlífsmyndband sem hann
tók upp af henni í leyfisleysi færi ekki í birtingu.
Skelfilegar ofsóknir
Magni er með tvær Facebook-síður. Á
annarri þeirra er hann með sem einkennis-
mynd mynd af honum ásamt fyrrverandi
sambýliskonu sinni. Þannig heldur hann
áfram að hrella hana. Einnig birtir hann
mynd af úlfi og tígrisdýri en þeir sem þekkja
til Magna líta á það sem hótun en vinsælt
er að tákna siðblindu með þessum fallegu
dýrum.
Valbjörn Magni
Björnsson eða
Magni Línberg
eins og hann kýs
að kalla sig í dag
flutti í götuna hjá
konunni sem hafði
kært hann fyrir
ofsóknir á Akureyri.
Þar gengur hann
laus í dag.