Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2018, Blaðsíða 8
10 6. apríl 2018fréttir
Magni braust inn uM Miðja nótt: barði ólétta
konu Með öskubakka og reyndi að binda hana
V
albjörn Magni Björnsson,
eða Magni Líndal, játaði að
hafa brotist inn til ófrískrar
konu um miðja nótt, ráðist
á hana og reynt að binda hana með
snæri sem hann hafði meðferð-
is. Þá gekk hann einnig í skrokk á
konunni og barði hana með ösku-
bakka. Fyrir þetta fékk Magni
tveggja mánaða skilorðsbund-
in dóm. Hann sat sem sagt ekki
einn dag í fangelsi fyrir árás sem
skipulögð var í þaula. Samkvæmt
heimildum DV hafði hann verið
með konuna á heilanum. Maður
konunnar var á næturvakt þegar
árásin átti sér stað. Þetta var í febr-
úar árið 1978 í Neskaupstað. Elti-
hrellirinn Magni gengur nú laus
á Akureyri og herjar þar á fyrrver-
andi sambýlis konu sína til skamms
tíma, Svanhildi Sigurgeirsdóttur,
sem ekki fær nálgunarbann.
Magni hefur í 40 ár fengið að eyði-
leggja líf kvenna. Magni hefur herj-
að á Svanhildi frá því að hún flúði
eigið heimili. Fyrir utan að sitja
um Svanhildi, elta hana í búðum,
hringja látlaust í hana hefur hann
tekið blóm af leiði föður hennar og
komið fyrir á bíl í hennar eigu. Eftir
umfjöllun DV segir hann að stríðið
sé rétt að byrja.
Íþróttastjarna og gluggagægir
DV hefur heimildir fyrir því að
Magni hafi strax sem ungur mað-
ur byrjað að hrella konur og hef-
ur hann komist upp með slíkt í um
40 ár. Á flestum þeim stöðum sem
hann hefur stungið niður fæti er
að finna sögur af þessum eltihrelli
sem eins og áður segir gengur
laus. Sögurnar eru endalausar og
hefur Magni nánast undantekn-
ingarlaust komist upp með að
eyðileggja líf kvenna.
DV hefur undir höndum dóm
frá árinu 1979. Um afar alvarlegt og
hrottalegt brot er að ræða og rétt
að vara við lýsingum sem hér fara
á eftir. Magni var íþróttastjarna í
bænum og tvítugur þegar þetta
gerðist. Margar konur höfðu greint
frá því að Magni væri að gægjast
á glugga hjá þeim en engin þeirra
þorði að leggja fram kæru. Ofbeldi
Magna í garð kvenna hófst því
strax á unga aldri. Um einbeittan
brotavilja var að ræða þegar Magni
gekk lengra en áður og ótrúlegt að
hann hafi ekki þurft að sitja í fang-
elsi fyrir að rústa lífi óléttrar konu.
Magni átti eftir að játa brot sín.
Með band í vasanum
Magni læddist að húsinu að nóttu
til með skrúfjárn og band í vas-
anum. Bandið ætlaði hann sér að
nota til að binda konuna. Áður
hafði hann skrúfað lausa peru
í útiljóskeri fyrir utan dyrnar.
Klukkan var um tvö um nóttina
þegar Magni braust inn í húsið.
Konan vaknaði við hljóð en vissi
ekki að Magni biði hennar í myrkr-
inu. Hún var ein heima. Maður-
inn hennar var á næturvakt. Þau
áttu von á barni. Hún fór fram úr
á náttkjólnum og varð þá þess vör
að hurð á milli innri og ytri gangs
hristist. Fór hún niður til þess að
loka dyrunum. Þegar hún opnaði
dyrnar til að loka þeim betur stökk
Magni á hana. Konan hrópaði upp
yfir sig skelfingu lostin. Magni
greip harkalega fyrir munn henn-
ar og fékk konan þá blóðnasir sem
hún taldi stafa vegna hræðslu.
Hann hafði lengi haft augastað á
henni og hann var kominn til að
binda þessa konu. Hún átti að vera
hans! Hann skyldi fá hana. Magni
ýtti óléttri konunni inn ganginn,
hrinti henni á gólfið og settist klof-
vega ofan á hana þar sem hún lá á
bakinu.
Konan greip öskubakka úr gleri
til að reyna að verja sig en Magni
hrifsaði hann af henni og barði
hana þrisvar í hausinn. Konan
fékk mar og stóra kúlu við hægra
eyra.
n Fékk tveggja mánaða skilorðsbundinn dóm n Elt konur í 40 ár n Braust inn um miðja nótt
Magni hefur elt konur í 40 ár. Samfélagið bregst
hvað eftir annað.