Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2018, Blaðsíða 33
FLUTNINGAR
06. april 2018
KYNNINGARBLAÐ
Ábyrgðarmaður: Steinn Kári Ragnarsson / steinn@dv.is Umsjón: Ágúst Borgþór Sverrisson / agustb@dv.is
Kranaleigan ÁB lyfting:
Stærsti krani landsins og sex
félagar hans
Kranaleigan ÁB lyfting er klár-lega fyrsti kostur þegar þörf er á kranaþjónustu við stærri
verkefni enda hefur fyrirtækið meðal
annars yfir að ráða stærsta krana
landsins. „ÁB lyfting hefur verið starf-
andi síðan árið 1999 en ég hef starfað
í þessu fagi í tæplega 40 ár,“ segir
framkvæmdastjórinn Ástþór Björns-
son.
„Við erum með sjö glussakrana sem
taka frá 35 tonnum upp í 300 tonn
en þessi 300 tonna er stærsti krani
landsins. Hann vegur einn og sér án
nokkurrar hleðslu heil 72 tonn. Þessir
kranar eru allir meira og minna stöð-
ugt í útleigu. Við þurfum sjálf að sjá al-
farið um alla vinnu á krönunum, þetta
eru það sérhæfð verkefni. Stór hluti af
verkefnunum er annars vegar hífingar
og lyftingar við byggingarvinnu og
hins vegar skipavinna, þ.e. uppskip-
un. en einnig eru þetta margs konar
önnur verkefni þar sem lyfta þarf mjög
þungum hlutum,“ segir Ástþór.
Meðal þekktra verkefna hjá ÁB
lyftingu eru hífingar á öllum vindmyll-
um sem reistar hafa verið á landinu.
enn fremur sér fyrirtækið um að lyfta
upp gömlum sögufrægum húsum fyrir
Minjavernd. „Við hífðum líka rafala og
túrbínur í Hellisheiðarvirkjun. auk þess
höfum við skipað upp gröfum fyrir
eimskip í Helguvík og Húsavík, svo fátt
eitt sé nefnt,“ segir Ástþór.
Þýska stálið blífur
allir sjö glussakranarnir í eigu Krana-
leigunnar ÁB lyfting koma frá einum
og sama framleiðandanum, grove í
Þýskalandi. Þjóðverjar eru annálaðir
fyrir framleiðslu á framúrskarandi
þungavinnuvélum og ÁB lyfting vill
bara notast við það besta á markaðn-
um. Myndir af grove-krönunum prýða
þessa grein.
Þeir sem vilja fá nánari upplýsingar
eða þurfa á fyrsta flokks kranaþjón-
ustu að halda geta hringt í síma 896-
2301 fyrir frekari upplýsingar. Einnig
má senda fyrirspurn í tölvupósti á
netfangið ablyfting@simnet.is.