Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2018, Blaðsíða 34

Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2018, Blaðsíða 34
Flutningar 06. april 2018KYNNINGARBLAÐ SendibílaStöðin ehf. fagnar 70 afmæli á næSta ári: „Trúin flytur fjöll en við flytjum allt annað“ Sendibílastöðin hf. var stofnuð 29. júní árið 1949. hún var upphaf-lega staðsett að ingólfsstræti 11 en flutti svo í borgartún 21 árið 1956. í dag er stöðin að Klettagörðum 1 og hefur verið síðan 1999. Sólveig Þóra Jónsdóttir, framkvæmdastjóri Sendibílastöðvarinnar hf., segir að á staðnum sé einkarekið mötuneyti fyrir bílstjórana og einnig er í boði kaffi og meðlæti allan daginn. „andrúmsloftið er gott og menn hittast hér og rabba, spila bridds og tefla þegar tími gefst til. Það er reyndar ekki oft því yfirleitt er mikið að gera.“ Allt annar rekstrargrundvöllur í dag „rekstur sendibílastöðva er með allt annan grundvöll í dag en áður var. árið 2002 komu ný lög/reglugerðir varðandi það að ekki var lengur skylda fyrir sendibílstjóra að vera á viður- kenndri sendibílastöð – eins og alltaf hafði verið. auk þess var sendibíla- stöðvum bannað að gefa út hámarks- gjaldskrá. Við fengum undanþágu frá Samkeppniseftirlitinu. Því hámarks- gjaldskrá er til verndar viðskiptavinin- um,“ segir hún. bílar hafa stækkað í gegnum tíðina og hafa þeir meiri burðargetu enda kallar markaðurinn á það. ný tæki hafa komið til sögunnar sem létta bílstjóran- um vinnuna, t.d. rafmagnsbrettatjakkar og rafmagnströpputrillur. að sögn Sólveigar flytur Sendibíla- stöðin allt frá umslögum upp í stór- flutninga. „Við erum með bíla allt frá fimm rúmmetrum upp í tæplega 50 rúmmetra burðargetu, allt að 17 tonn- um. Sumir eru með vagna aukalega sem eru um 50 rúmmetrar þar sem burður er allt að 13 tonnum. einnig höf- um við aðgang að krana og búslóða- lyftum sem ná allt að 50 metrum og bera 350 kíló í hverri ferð.“ Þjóna bæði fyrirtækjum og einstak- lingum „trúin flytur fjöll við flytjum allt annað,“ segir Sólveig brosandi. „Þjónusta okkar er víðtæk. Við þjónum bæði einstak- lingum og fyrirtækjum. á Sendibíla- stöðinni starfa tveir starfsmenn en á stöðinni eru alls 70 bílstjórar. Sendibílstjórarnir eru allir sjálfstæðir verktakar með sameiginlega símaþjón- ustu varðandi úthlutun túra og inn- heimtu reikninga þeirra fyrirtækja sem eru í reikningi á Sendibílastöðinni.“ Ísbjarnarflutningur aðspurð segir Sólveig að það skrýtn- asta sem fyrirtækið hefur flutt til þessa sé líklega ísbjörn. „hann var uppstopp- aður, sem betur fer,“ segir hún hlæj- andi. „annars er ekkert sem við neitum að flytja svo framarlega sem farmurinn kemst í bílana og allt sé löglegt. Við höfum hingað til ekki lent í því að þurfa að neita viðskiptavini um flutning.“ Sendibílastöðin hf. Klettagörðum 1, 104 Reykjavík. Símar: 553-5050 og 533-1000. www.sendibilastodin.is.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.