Dagblaðið Vísir - DV - 06.04.2018, Side 13
fólk - viðtal 156. apríl 2018
Enginn fer óvopnaður út fyrir bæjarmörkin
n Slóst við ísbjörn með berum hnefum n Strangar útivistarreglur n Hrókurinn stóð fyrir gleði á Grænlandi J
an Lorentzen er heppinn að
vera á lífi. Hann tókst á við
konung ísbreiðunnar í tæp-
lega 10 kílómetra fjarlægð frá
Ittoqqortoormiit og hafði betur.
Í dag gæðir hann sér á ljúffengu
kjöti, kjöti af birni sem hann felldi
þann 19. mars síðastliðinn, og
hefur sögu að segja.
„Ég hafði farið á snjósleðanum
að heimili okkar. Það var farið að
hvessa og ég neyddist til að ná í
olíu til kyndingar í lítinn kofa sem
er aðeins tuttugu metra frá hús-
inu. Þegar ég kom út tók ég strax
eftir að það voru nýleg ísbjarnar-
för í snjónum.“
Jan skimaði í kringum sig en sá
björninn hvergi.
„Ég lokaði dyrunum á eftir
mér og fór út. Þegar ég sneri
mér við tók ég strax eftir birnin-
um í nokkurra metra fjarlægð.
Við horfðum djúpt í augu hvor
annars. Riffillinn var inni í hús-
inu.“ Nú voru góð ráð dýr. Jan
gaf frá sér öskur til að reyna að
hræða björninn. Glorsoltið dýr-
ið haggaðist ekki og fylgdist með
hverri hreyfingu Grænlendings-
ins sem ákvað að reyna að hlaupa
að snjósleðanum og forða sér
þannig undan svöngu dýrinu.
Það var um líf eða dauða að tefla.
En björninn hindraði hann í að
komast leiðar sinnar og réðst nú
til atlögu.
„Ég kýldi hann á aftanverðan
hálsinn,“ segir Jan sem segir að
fyrst hafi björninn hikað en svo
ráðist að honum með galopinn
skoltinn. Jan tók nokkur skref
aftur á bak og baðaði út höndum
til að reyna að gera sig breiðan og
öskraði af lífs og sálar kröftum.
Hann komst að snjósleðanum en
tókst ekki að koma honum í gang.
Björninn gerði þá aðra atlögu.
Grænlendingurinn lét þá aft-
ur höggin dynja á birninum sem
leist ekkert á þessa bráð og virt-
ist velta fyrir sér hvaða hann ætti
til bragðs að taka. Jan nýtti þessar
fáu sekúndur vel, kom snjósleð-
anum í gang. Björninn stefndi nú
á hann ógnandi sem fyrr og sýndi
tennurnar. Jan gaf allt í botn og
snjórinn þeyttist undan sleðan-
um og yfir björninn. Þegar Jan
var kominn í örugga fjarlægð
frá birninum hafði hann sam-
band við son sinn. Skömmu síðar
felldu þeir björninn.
Jan er heppinn að vera ekki
alvarlega særður og vera á lífi.
Eina merkið um bardaga við
björninn er bólgin hönd.
Komið úr kafinu.Ittoqqortoormiit,
Grænlandi, 70°29´ 07´ N 21°58´
00´ W, þriðjudaginn 3. apríl.
Tugir bjarna hafa herjað á íbúa síðustu vikur og
mánuði. Ísinn við Austur-Grænland er ekki svipur
hjá sjón, vegna mikillar hlýnunar á norðurslóðum.
Á ísbjarnarveiðum.
Kátir krakkar í einum fallegasta bæ Grænlands.
Joey Chan elskar Grænland. Hún
var með listasmiðju Hróksins á
sínum snærum.
Grafreitur í Ittoqqortoormiit, afskekktasta þorpi
norðurslóða, næstum þúsund kílómetra frá
næsta byggða bóli.
„Dagur vináttu Íslands og Grænlands“ var haldinn í Ittoqqor-
toormiit og þar með lauk frábærri páskahátíð Hróksins í ísbjarnar-
og skákbænum miklla.
Teikning ísbjarnarbanans Jans Lorentzen af svæðinu.
Jan Lorentzen er heppinn að vera á lífi.